Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 46
Brynhildur
Björnsdóttir
brynhildur@365.is
Eitthvert sérstakt tímabil sem þú tengir við í tískunni? Já, ég hef alltaf verið veik fyrir vintage-
tískunni, sérstaklega kjólum frá 7.
áratugnum. Afar heppilegt þegar ég
bjó í Berlín en finna mátti margar
litlar vintage-búðir í hliðargötunum
í hverfinu mínu. Þar voru nú gerð
mörg góð kjólakaupin.
Áttu tískufyrirmynd? Nei, enga
sérstaka. Nema þá kannski mömmu,
hún er alltaf í stíl, kaupir vandaðar
flíkur og lætur jafnvel sauma á sig.
Hún er alltaf svo fín og smart.
Hvernig föt kaupir þú oftast? Ég
hef með árunum reynt að draga
úr fatakaupum og kaupi frekar
vandaðri flíkur sem duga lengur.
Klassísk snið verða oftast fyrir val-
inu, í svörtu, hvítu og bláu.
Hvar kaupir þú föt? Mjög misjafnt,
fer gjarnan í Cos og & Other stories
þegar ég er erlendis. Einnig í Mass-
imo Dutti. En skemmtilegastar eru
litlar hönnunarbúðir með öðruvísi
fötum. Mér finnst afar skemmtilegt
að versla til dæmis í Hollandi. Hér
heima fer ég stundum í Spúútnik,
Evu, Yeoman, Kron Kron og Maia.
Svo finnst mér gaman að fara í
íþrótta- og útivistarbúðir, þar missi
ég mig og kaupi á alla fjölskylduna.
Finnst þér skemmtilegt að kaupa
föt? Já, og mér finnst það skemmti-
legra með aldrinum. Ég er orðin svo
snögg að spotta það sem mér finnst
smart og ég þekki vel minn stíl.
Finnst þér gaman að klæða þig
upp á? Já, mjög gaman en ég geri nú
ekki nógu mikið af því. Vinnufötin
taka stundum alveg yfir en þegar
ég tek mig til þá elska ég að fara í
kjól, pinna upp hárið og setja á mig
varalit.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Svarti jakkinn minn. Klassískur og
töff. Ég er alltaf jafn fín í honum.
Hann er þessi dæmigerða tíma-
lausa flík og passar við allt. Mamma
saup hveljur þegar ég keypti hann á
Queen Street í Edinborg, hann var
svo dýr en hann hefur margborgað
sig.
Áttu þér uppáhaldshönnuð?
Filippa K er einn af mínum uppá-
halds og sparikjóllinn minn er
einmitt frá henni. Einföld, látlaus
og klæðileg lína. Svo lætur maður
sig dreyma um Chanel, svarti stutti
kjóllinn er alltaf klassískur og þessi
fallegi dökkblái litur sem er svo ein-
kennandi fyrir Chanel er algjörlega
bjútífúl.
Ertu veik fyrir aukahlutum? Nei,
svo sannarlega ekki. Jú, bíddu – fyrir
húfum! Á alls konar húfur, af öllum
stærðum og gerðum og litum.
Hvað kaupirðu þótt þú eigir nóg af
því? Húfur! Og jakka og varaliti
Áttu uppáhaldsskó? Já, ég keypti
mér alvöru senjorítuskó þegar ég
bjó í Sevilla. Opnir að framan, með
háum pinnahæl, svartri lakkslaufu
og ökklabandi – Olé!
Einhver skemmtileg saga sem
tengist fatakaupum? Ég á afar fal-
legan hettukraga sem Philippe
Clause, franskur hönnuður sem býr
á Seyðisfirði, prjónaði. Ég keypti
hann í Skaftfelli, myndlistarmið-
stöð þeirra Seyðfirðinga, og það
skemmtilegasta við hann er að hann
tengir mann rakleitt austur. Ég hef
til dæmis verið á rokktónleikum
með hettuna góðu og þar var kallað
í mannmergðinni Seyðisfjörður! og
við vorum þrjú sem rákum upp óp,
öll berandi prjónasnilld Philippes
um hálsinn.
Hvað er á döfinni hjá þér núna?
Á morgun erum við að brautskrá
stúdentsefnin okkar í Flensborgar-
skólanum. Útskrift á jólum er alltaf
mjög hátíðleg. Um kvöldið eru svo
jólatónleikar Dómkórsins. Það
er ákveðin stemning að syngja í
kirkjunni svona seint að kvöldi, en
tónleikarnir hefjast klukkan 22, um
leið og búðum er lokað. Tónleika-
gestir koma því gjarnan eftir bæjar-
röltið, njóta þess að slaka og hlusta
á falleg jólalög, hefðbundin sem ný,
íslensk og erlend í bland.
Hvað er fram undan? Dásamlegt
jólafrí með fjölskyldunni.
Uppáhaldsjakki frá Edinborg
Erla Ragnarsdóttir, söngkona í Dúkkulísunum og aðstoðarskólameistari Flensborgarskóla, hefur í
nógu að snúast þessa dagana og svarti jakkinn hennar mun nýtast við öll þessi tækifæri.
Erla Ragnarsdóttir, söngkona og aðstoðarskólameistari, keypti þennan jakka í Edinborg og hefur notað hann við fjölmörg tækifæri síðan. MYND/EYþóR
Erla er hrifin af hönnun prjónasnillingsins Philippes Clause frá Seyðisfirði.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
13.990
GALLAJAKKI
6 KYNNINGARBLAÐ FóLK 2 1 . D E S E M B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
9
3
-C
3
D
4
1
E
9
3
-C
2
9
8
1
E
9
3
-C
1
5
C
1
E
9
3
-C
0
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K