Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.12.2017, Qupperneq 58

Fréttablaðið - 21.12.2017, Qupperneq 58
Helga systir mín, nú veit ég ekki hvort þau eru borin út blöðin á þeim stað þar sem þú dvelur núna og ég veit heldur ekki hvort það þætti við hæfi að lesa þau. Ég ætla samt að taka sénsinn og skrifa þér örfáar línur í þeirri von að það minnki líkurnar á því að hjarta mitt springi af harmi og hver veit nema þið takið á móti flöskuskeytum í plássinu þínu nýja. Ég ætla að byrja á því elsku systir að segja þér að ég á engin orð sem ná utan um það æðruleysi sem þú sýndir eftir að þú lasnaðist og þurftir að horfast í augu við dauðann á hverjum degi. Auðvitað vannstu ekki störukeppnina, vegna þess að dauðinn er með þeim galla gerður að hann kann ekki að blikka. En þú blikk- aðir ekki heldur og hélst reisn þinni og gleði og mýkt og varst okkur öllum til óendanlegrar ánægju allt fram í andlátið. Ég var svo heppinn að koma til þín um miðnætti daginn áður en þú lést og þú settist upp í rúminu og við töluðum um lífið og tilveruna og meðan á því stóð hringdi hún Sólveig dóttir mín sem var að koma frá London til þess að hitta þig. Hún bað mig að skila því til þín að hún myndi koma til þín morguninn eftir. Þú brást við því með því að segja: „Nei, hún á að koma núna.“ Sólveig kom og þið áttuð ótrúlega fallegan fund og við föðmuðumst og hlógum og ég held að okkur hafi tekist að láta væntumþykju vera það alls eina sem var til í heiminum á þeirri stundu. Ég efast ekki um að þú manst eftir bók sem heitir Svo mikið veit ég, eftir bandaríska rithöfundinn Wally Lamb. Hún endar á þessari setningu: „Fjölskylda mín hefur kennt mér þrennt, að kærleikurinn spretti upp úr djúpum jarðvegi fyrirgefningar, að blendingar séu góðir hundar og að stað- festinguna á tilvist guðs sé að finna í mýktinni.“ Það var svo ótrúlega mikil mýkt í nærveru þinni og í öllu sem þú gerðir, meiri en ég hef fundið fyrir annars staðar, þannig að ef ég tryði á guð væri það sjálfsagt þér að kenna. Síðast þegar þú komst í heimsókn til mín upp á Vatnsenda sastu í sófanum hvíta og horfðir til austurs út um stóra glugga og dásamaðir útsýnið. Daginn eftir sat ég í sama sófa og horfði á sólarupp- rásina og lét hana plata mig til þess að semja eftirfarandi ljóð: Þegar himinninn heiðskír og glóandi af morgunroða vefur sig utan um það sem ætíð er fagurt og blítt verður úr því enn meiri og annars konar fegurð og blíða sem fá mig til að doka við og hætta öllu nema kannski hægum andardrætti og segja stundarhátt við sjálfan mig og það sem blasir við augum: Þessi hugmynd um að til sé algóður guð er alls ekki svo galin. Ég vildi að ég tryði á þennan guð þótt ekki væri nema vegna þess að þá vissi ég að það hefði verið vel tekið á móti þér hinum megin við móðuna miklu. Algóður guð hefði örugglega tekið á móti þér með fangið fullt af bókum. Meðal þeirra hefði verið Saga Ástu eftir Jón Kalman, vegna þess að guð hefði ekki sparað við þig það besta og ólíklegt að hann hefði tekið eftir því í annríki aðventunnar að þú ert auðvitað búin að lesa hana. Nú ef efasemdir mínar um tilvist guðs reynast réttar þá gerir það í sjálfu sér ekkert til, vegna þess að þú verður alltaf hérna í mannheimi endurborin í afkom- endum þínum, þeim sem eru til í dag og þeim sem munu fæðast síðar. Þannig heldur lífið okkar áfram þótt við deyjum og er bæði með okkur og án í sömu andrá. Elsku systir mín góða, ég er viss um að ég mun finna fyrir fjarveru þinni það sem ég á eftir ólifað, þótt ég vonist til þess að geta af og til séð einstaka hreyfingu og svip sem tilheyra þér og fundið fyrir mýktinni þinni með því að umgangast afkomendur þína. Það breytir því hins vegar ekki að heimurinn er nú allur annar. Kári Stefánsson Helga Stefánsdóttir Fædd 26. júlí 1945 og lést 6. desember 2017. Jarðsungin 21. desember 2017. Hópur tónlistarfólks frá Íslandi, Georgíu, Marokkó, Líbanon og Þýskalandi heldur í kvöld jólatónleika í húsnæði Hjálpræðis- hersins í Mjódd en ágóðinn af tónleik- unum rennur til Hjálpræðishersins og er meiningin að hann verði nýttur í opna daga sem eru á þriðjudögum og fimmtu- dögum þegar fólki er boðið að koma og fá mat, sækja sér margvíslega félagsþjón- ustu, ráðgjöf og fleira. „Ég hef haft það sem sið að halda tón- leika rétt fyrir jól og fæ til liðs við mig fjölbreytt tónlistarfólk úr mismunandi áttum. Í þetta skiptið, þegar ég stóð frammi fyrir annasömu hausti og fjöl- mörgum uppákomum, sviðsverkum, tónleikum og fleiru, reyndist erfitt að koma saman hópi og finna tónleikastað, í ljósi þess að nú hefur aldrei verið jafn mikil vertíð í jólatónleikahaldi,“ segir Bragi Árnason tónleikahaldari. „Ég komst svo í samband við aðstand- endur Hjálpræðishersins, þar sem ég hafði í huga að gera einhvers konar fjáröflunartónleika. Þeim leist mjög vel á framtakið, og buðu okkur upp á tón- leikaaðstöðu hjá sér í Mjódd, með frá- bæru sviði, hljóðkerfi, ljósum, heilt yfir frábærri aðstöðu. Aðgangur er ókeypis en það verða síðan söfnunarbaukar á svæðinu þar sem fólki er velkomið að leggja til frjáls framlög, sem renna beint til starfsemi Hjálpræðishersins.“ Hljómsveitina skipa Sigrún Krist- björg Jónsdóttir, Rusa Petriashvili, Imad, Thabit Lakh, Salome Onashvili, Valentin Valle Domring, Martin Tornow og Bragi Árnason. Bragi segir að komin séu á blað alls konar jóla-, vetrar- og stemmingslög og einnig segir Bragi, sem hefur fengist við uppistand, að það sé aldrei að vita nema einhver skemmtiatriði verði á milli laga. Tónleikarnir hefjast klukkan níu í kvöld. stefanthor@frettabladid.is Fjáröflunartónleikar í húsi Hjálpræðishersins Tónlistarfólk víða að úr heiminum leikur á sérstökum fjáröflunar-jólatónleikum í hús- næði Hjálpræðishersins í Mjóddinni. Ágóðinn rennur til opinna daga, verkefnis Hjálp- ræðishersins, þar sem fólk getur nálgast alls kyns þjónustu á þriðju- og fimmtudögum. Hópurinn sem leikur á tónleikunum er úr öllum áttum, m.a. frá Georgíu og Líbanon. 69 Vespasíanus verður keisari Rómar. 860 Aðalbert verður Englandskonungur. 1844 Jónas Hallgrímsson yrkir stökur, sem hefjast á: „Enginn grætur Íslending...“ 1929 Varðskipið Þór strandar við Húnaflóa, mannbjörg verður. Þetta er fyrsta íslenska varðskipið sem bar fallbyssu. 1930 Ríkisútvarpið hefur útsendingar. 1945 Ölfusárbrú er formlega opnuð fyrir umferð. Hún er hengibrú með 84 metra á milli stöpla og leysir af hólmi brú frá 1891. 1952 Kveikt er í fyrsta sinn á stóru jólatré á Austurvelli, sem er gjöf frá Óslóarbúum til Reykvíkinga. 1969 Árnagarður er vígður, en þar er Stofnun Árna Magnús- sonar til húsa auk kennsluhúsnæðis fyrir Háskóla Íslands. 1975 Sex manna hópur palestínskra skæruliða, þar á meðal Sjakalinn Carlos, tekur orkumálaráðherra þrettán OPEC-ríkja í gíslingu í Vínarborg. 1981 Belís fær sjálfstæði frá Bretlandi. 1984 Sovéska könnunarfarinu Vega 2 er skotið upp. 1988 Flugslys verður við Lockerbie í Bretlandi. Alls farast 270 manns, þar af 243 farþegar, 16 í áhöfn og 11 á jörðu niðri. 1990 Skipafélagið Samskip er stofnað um skiparekstur Sambands íslenskra samvinnufélaga. 2001 Ný kvikmyndalög taka gildi á Íslandi og Kvikmynda- miðstöð Íslands er stofnuð. 2012 Nýtt tímabil hefst samkvæmt tímatali Azteka. Merkisatburðir Ástkær sonur okkar, faðir, bróðir og mágur, Þorvaldur Magnússon lést 12. desember síðastliðinn. Útför hans fer fram í Grafarvogskirkju föstudaginn 22. desember kl. 13.00. Kristín Guðmundsdóttir Sigurður Óli Sigurðsson Særós Kristín Þorvaldsdóttir Engill Þór Hölluson Harpa Særós Magnúsdóttir Ólafur Jónsson Guðmundur F. Magnússon og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Sigrún Þorbjörnsdóttir Esjugrund 66, Reykjavík, lést á Landspítalanum 9. desember 2017. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ólafur Friðriksson synir, tengdadætur og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, Örn Erlendsson hagfræðingur, andaðist mánudaginn 18. desember. Útför hans fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 4. janúar kl. 15.00. Finnbogi Rútur Arnarson Þórunn Hreggviðsdóttir Sigríður Arnardóttir Kristján Franklín Magnús Ormur Jarl Arnarson Amanda Garner Rolf Hákon Arnarson Eva Sif Jóhannsdóttir og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför Helgu Guðmundsdóttur Dalbraut 20, Reykjavík. Gréta Jónsdóttir Kolbrún Jónsdóttir 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r42 T í m A m ó T ∙ F r É T T A b L A ð I ð tímamót 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -A B 2 4 1 E 9 3 -A 9 E 8 1 E 9 3 -A 8 A C 1 E 9 3 -A 7 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.