Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 68
Fyrsta frumsýning Íslenska dansflokksins á þessu sýningarári eru tvö ný verk á listahátíðinni Norður og niður sem er haldin af hljómsveitinni
Sigur Rós. Erna Ómarsdóttir, list-
dansstjóri Íslenska dansflokksins,
segir að upphaf þessa verkefnis
megi einfaldlega rekja til þess að
Jónsi í Sigur Rós hafi sett sig í sam-
band við hana og beðið hana um að
leika í tónlistarmyndbandi hjá þeim
við lagið Óveður. Út frá því hafi svo
kviknað þessi hugmynd að dans-
flokkurinn gerði efni við nýja tónlist
hljómsveitarinnar sem yrði svo hluti
af Norður og niður hátíðinni.
Læknuðu heimþrá
Erna segir að hún hafi reyndar aðeins
þekkt meðlimi hljómsveitarinnar frá
þeim tíma þegar hún bjó í Belgíu. „Þá
fór ég á nokkra tónleika með þeim og
kynntist þeim aðeins í framhaldinu.
Ég var stundum með mikla heimþrá
þegar ég bjó úti og þá var alveg rosa-
lega gott að fara á Sigur Rósar tón-
leika í þunglyndinu, gráta soldið og
hitta svo Íslendinga á eftir. Þetta var
svona smá sálarhreinsun,“ segir Erna
og hlær við tilhugsunina.
„Það var alveg búið að vera smá
draumur að fá að vinna að einhverju
með þeim en ég þorði ekki að nefna
það sjálf að fyrra bragði svo mér
fannst mjög gaman að þeir skyldu
svo leita til mín.“
Einlægni og lífsgleði
Verkin sem Íslenski dansflokkurinn
flytur verða frumsýnd þann 29. des-
ember, og svo aftur daginn eftir. Þau
koma svo mögulega einnig til sýninga
á Listahátíðinni í Reykjavík í vor en
þetta verkefni ÍD er í samvinnu við
hátíðina. Verkin sem um ræðir eru
tvö og Erna segir að hún hafi snemma
ákveðið að fá fleiri danshöfunda að
borðinu. „Það hafði komið til tals að
það væri gaman að gera eitthvað með
börnum og unglingum og slíkt er
einmitt á stefnuskránni að auka við
verk með börnum og fyrir börn. Það
lá því beint við að hafa samband við
Ásrúnu Magnúsdóttur, því hún hefur
gert stórkostleg verk með unglingum
ásamt Alexander Roberts sem vinnur
þetta líka með henni. Og nú eru þau
búin að gera dásamlegt, frábært verk
með tíu börnum á aldrinum átta til
sextán ára ásamt dönsurum Íslenska
dansflokksins. Þessi dásamlegi hópur
er búinn að vera að vinna saman
síðastliðnar vikur og það hefur
skapast einhver ótrúlega falleg orka
í kringum þetta verkefni enda ekki á
hverjum degi sem við erum að vinna
með svona skapandi hópi barna.“
Verk Ásrúnar og Alexanders kall-
ast The Great Gathering og Erna
segir að hér sé á ferðinni einlægt og
lífsglatt verk flutt við tónlist lista-
manna sem koma fram á hátíðinni.
Blóð, sviti og tár
Verk Ernu er flutt við tónlist frá
Sigur Rós og kallast Myrkrið faðmar.
Erna segir að þetta sé ný tónlist sem
Sigur Rós hafi verið að senda þeim
en Valdimar hafi svo séð um að
aðlaga það þörfum dansflokksins.
„Við höfum verið að vinna þetta
svona fram og til baka og þeir hafa
líka verið að koma á æfingar hjá
okkur.“
Þegar maður hugsar um tónlist
Sigur Rósar þá er dans ekki endilega
það sem kemur fyrst upp í hugann
en Erna segir að hún hafi reyndar
tekist á við þetta áður. „Ég gerði
reyndar sóló við lag á einni af fyrstu
plötunum þegar ég var í skóla og það
er mjög gefandi að dansa við þessa
tónlist. Þetta er tónlist sem veitir
manni mikinn innblástur og maður
fer svona í einhvers konar leiðsluást-
and sem hentar dansinum mjög vel.“
En er þetta verk, Myrkrið faðmar,
eitthvað sem er hugsað sérstaklega
fyrir þennan árstíma? „Já, þetta
verkefni kom til okkar með frekar
stuttum fyrirvara og þá er gott að fara
þá leið að að sækja sér innblástur í
tónlistina og aðstæður hverju sinni.
Við vorum mjög meðvituð um að
við værum að fara að sýna á þessum
dimmasta tíma ársins og þess vegna
varð myrkrið okkur að innblæstri.
Við bjuggum til einhvers konar
myrkraverur sem geta verið bæði
afar mannlegar og ómennskar í
senn. Þetta er verk sem fjallar fyrst og
fremst um hinn berskjaldaða líkama
sem er með öllu óvarinn í myrkrinu
þar sem maður veit aldrei á hverju
er von og er með öll skynfæri í við-
bragðsstöðu. Þessi berskjaldaði lík-
ami sem er í senn mjög máttlaus og
samt ofurspenntur.“
Blóð sviti og tár
Sýningarnar verða í Flóa í Hörpu
og Erna segir ástæðuna vera að þau
hafi viljað vera nálægt áhorfendum.
„Við vildum síður vera uppi á sviði og
þarna getum við verið í gólfhæð með
áhorfendur allt í kringum okkur.
Þetta er líka ákveðin andstæða við
tónleika Sigur Rósar í Hörpu sem
verða mikið og allt öðru vísi sjónar-
spil. Ég sá þá tónleika úti í Berlín um
daginn og þeir eru magnaðir, mikil
tækni, sjónræna o.s.frv. en ákaflega
áhrifaríkir og einlægir í senn. Við
vildum hins vegar vera bara með lík-
amann og tónlistina í aðalhlutverki.
Það verða engar fansí tæknibrellur
nema þær sem líkaminn getur fram-
kvæmt, þannig að þetta er líkaminn
í öllu sínu veldi, blóð, sviti og tár, í
mjög miklu návígi við fólk.“
Þetta er líkaminn í öllu
sínu veldi í návígi við fólk
Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í næstu viku tvö dansverk
á listahátíðinni Norður og niður sem er haldin af Sigur Rós en
Erna Ómarsdóttir segir tónlist þeirra fulla af innblæstri.
FréttaBLaðið/Eyþór
Erna ómarsdóttir stýrir hér æfingu á verkinu Myrkrið faðmar sem er eftir hana og Valdimar Jóhannsson sem sá um að aðlaga tónlistina frá Sigur rós. FréttaBLaðið/Eyþór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
menning
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-7
9
C
4
1
E
9
3
-7
8
8
8
1
E
9
3
-7
7
4
C
1
E
9
3
-7
6
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K