Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 68

Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 68
Fyrsta frumsýning Íslenska dansflokksins á þessu sýningarári eru tvö ný verk á listahátíðinni Norður og niður sem er haldin af hljómsveitinni Sigur Rós. Erna Ómarsdóttir, list- dansstjóri Íslenska dansflokksins, segir að upphaf þessa verkefnis megi einfaldlega rekja til þess að Jónsi í Sigur Rós hafi sett sig í sam- band við hana og beðið hana um að leika í tónlistarmyndbandi hjá þeim við lagið Óveður. Út frá því hafi svo kviknað þessi hugmynd að dans- flokkurinn gerði efni við nýja tónlist hljómsveitarinnar sem yrði svo hluti af Norður og niður hátíðinni. Læknuðu heimþrá Erna segir að hún hafi reyndar aðeins þekkt meðlimi hljómsveitarinnar frá þeim tíma þegar hún bjó í Belgíu. „Þá fór ég á nokkra tónleika með þeim og kynntist þeim aðeins í framhaldinu. Ég var stundum með mikla heimþrá þegar ég bjó úti og þá var alveg rosa- lega gott að fara á Sigur Rósar tón- leika í þunglyndinu, gráta soldið og hitta svo Íslendinga á eftir. Þetta var svona smá sálarhreinsun,“ segir Erna og hlær við tilhugsunina. „Það var alveg búið að vera smá draumur að fá að vinna að einhverju með þeim en ég þorði ekki að nefna það sjálf að fyrra bragði svo mér fannst mjög gaman að þeir skyldu svo leita til mín.“ Einlægni og lífsgleði Verkin sem Íslenski dansflokkurinn flytur verða frumsýnd þann 29. des- ember, og svo aftur daginn eftir. Þau koma svo mögulega einnig til sýninga á Listahátíðinni í Reykjavík í vor en þetta verkefni ÍD er í samvinnu við hátíðina. Verkin sem um ræðir eru tvö og Erna segir að hún hafi snemma ákveðið að fá fleiri danshöfunda að borðinu. „Það hafði komið til tals að það væri gaman að gera eitthvað með börnum og unglingum og slíkt er einmitt á stefnuskránni að auka við verk með börnum og fyrir börn. Það lá því beint við að hafa samband við Ásrúnu Magnúsdóttur, því hún hefur gert stórkostleg verk með unglingum ásamt Alexander Roberts sem vinnur þetta líka með henni. Og nú eru þau búin að gera dásamlegt, frábært verk með tíu börnum á aldrinum átta til sextán ára ásamt dönsurum Íslenska dansflokksins. Þessi dásamlegi hópur er búinn að vera að vinna saman síðastliðnar vikur og það hefur skapast einhver ótrúlega falleg orka í kringum þetta verkefni enda ekki á hverjum degi sem við erum að vinna með svona skapandi hópi barna.“ Verk Ásrúnar og Alexanders kall- ast The Great Gathering og Erna segir að hér sé á ferðinni einlægt og lífsglatt verk flutt við tónlist lista- manna sem koma fram á hátíðinni. Blóð, sviti og tár Verk Ernu er flutt við tónlist frá Sigur Rós og kallast Myrkrið faðmar. Erna segir að þetta sé ný tónlist sem Sigur Rós hafi verið að senda þeim en Valdimar hafi svo séð um að aðlaga það þörfum dansflokksins. „Við höfum verið að vinna þetta svona fram og til baka og þeir hafa líka verið að koma á æfingar hjá okkur.“ Þegar maður hugsar um tónlist Sigur Rósar þá er dans ekki endilega það sem kemur fyrst upp í hugann en Erna segir að hún hafi reyndar tekist á við þetta áður. „Ég gerði reyndar sóló við lag á einni af fyrstu plötunum þegar ég var í skóla og það er mjög gefandi að dansa við þessa tónlist. Þetta er tónlist sem veitir manni mikinn innblástur og maður fer svona í einhvers konar leiðsluást- and sem hentar dansinum mjög vel.“ En er þetta verk, Myrkrið faðmar, eitthvað sem er hugsað sérstaklega fyrir þennan árstíma? „Já, þetta verkefni kom til okkar með frekar stuttum fyrirvara og þá er gott að fara þá leið að að sækja sér innblástur í tónlistina og aðstæður hverju sinni. Við vorum mjög meðvituð um að við værum að fara að sýna á þessum dimmasta tíma ársins og þess vegna varð myrkrið okkur að innblæstri. Við bjuggum til einhvers konar myrkraverur sem geta verið bæði afar mannlegar og ómennskar í senn. Þetta er verk sem fjallar fyrst og fremst um hinn berskjaldaða líkama sem er með öllu óvarinn í myrkrinu þar sem maður veit aldrei á hverju er von og er með öll skynfæri í við- bragðsstöðu. Þessi berskjaldaði lík- ami sem er í senn mjög máttlaus og samt ofurspenntur.“ Blóð sviti og tár Sýningarnar verða í Flóa í Hörpu og Erna segir ástæðuna vera að þau hafi viljað vera nálægt áhorfendum. „Við vildum síður vera uppi á sviði og þarna getum við verið í gólfhæð með áhorfendur allt í kringum okkur. Þetta er líka ákveðin andstæða við tónleika Sigur Rósar í Hörpu sem verða mikið og allt öðru vísi sjónar- spil. Ég sá þá tónleika úti í Berlín um daginn og þeir eru magnaðir, mikil tækni, sjónræna o.s.frv. en ákaflega áhrifaríkir og einlægir í senn. Við vildum hins vegar vera bara með lík- amann og tónlistina í aðalhlutverki. Það verða engar fansí tæknibrellur nema þær sem líkaminn getur fram- kvæmt, þannig að þetta er líkaminn í öllu sínu veldi, blóð, sviti og tár, í mjög miklu návígi við fólk.“ Þetta er líkaminn í öllu sínu veldi í návígi við fólk Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í næstu viku tvö dansverk á listahátíðinni Norður og niður sem er haldin af Sigur Rós en Erna Ómarsdóttir segir tónlist þeirra fulla af innblæstri. FréttaBLaðið/Eyþór Erna ómarsdóttir stýrir hér æfingu á verkinu Myrkrið faðmar sem er eftir hana og Valdimar Jóhannsson sem sá um að aðlaga tónlistina frá Sigur rós. FréttaBLaðið/Eyþór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð menning 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -7 9 C 4 1 E 9 3 -7 8 8 8 1 E 9 3 -7 7 4 C 1 E 9 3 -7 6 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.