Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 70

Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 70
Í þetta skiptið ætlaði ég að skrifa vampÍrusögu en svo varð ég fljótt þreytt á þvÍ og þess vegna hætti ég að hugsa um formið – leyfði huganum að ráða. „Við Hrafnhildur Árnadóttir sópran og Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanóleikari ætlum að halda hugljúfa jólatónleika í Fríkirkjunni í kvöld og fagna því í leið- inni að sólin fer að hækka á lofti strax á morgun,“ segir Heiðdís Hanna Sig- urðardóttir sópransöngkona glaðlega. Um dagskrána segir hún að þar verði jólalög úr ýmsum áttum, bæði íslensk og erlend í bland við óperudúetta. „Það getur verið svolítið snúið að finna fína dúetta fyrir tvo sóprana en við fundum að minnsta kosti þrjá góða.“ Heiðdís Hanna segir þær Hrafn- hildi hafa kynnst í Íslensku óperunni þar sem þær hafi aðallega verið á vara- mannabekknum þegar Don Giovanni var á fjölunum. „Við Ingileif Bryndís kynntumst í námi í Freiburg í Þýska- landi og þær Hrafnhildur og Ingileif voru samtímis í MR, þannig að við tengjumst með ýmsum hætti,“ Jóladagskrá vinkvennanna hefst í Fríkirkjunni klukkan 20. Þar munu kertaljós auka á hátíðleikann. – gun Jólatónleikar á vetrarsólstöðum Hrafnhildur og Heiðdís Hanna syngja í Fríkirkjunni í kvöld. Það sem mig langar til þess að segja, núna þegar ég sit hér og er búin að úða í mig piparkökum og drekka of mikið kaffi, er að mér fannst ég ekki geta leyft mér að skrifa einfalda ástarsorgarsögu. Því á okkar tímum viðgengst svo mikið ofbeldi að við verðum að vera í andspyrnuhreyfingu. Þessi bók er stríðsyfirlýsing,“ segir Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur hin hress- asta. Oddný hefur löngum farið eigin leiðir í sínum skáldskap og nýjasta skáldsaga hennar, Undir- ferli, er engin undantekning frá því. Orð Oddnýjar komu í framhaldi af spurningunni um það hverrar bók- menntategundar Undirferli sé í raun og veru en hæglega má skilgreina hana sem ástarsögu, vísindaskáld- skap og jafnvel spennu- eða morð- sögu. En við orðin um stríðsyfirlýs- inguna hefur Oddný þessu að bæta: „Um leið og þetta er stríðsyfirlýsing þá er þetta tilraun til þess að skilja að stríðið sem við stöndum í er von- andi allt öðruvísi en öll önnur stríð. Þessi bók er vopn í því stríði þótt þetta sé engin hríðskotabyssa.“ Mitt eigið #metoo Oddný segir að stríðið sem um ræðir sé yfirgangurinn í öllum sínum myndum. „Þessi bók er mitt #metoo. Áður en það hugtak var orðið til þá var ég að takast á við það sem #metoo gengur út á. Undir- ferli gengur út á yfirganginn í öllum sínum myndum og ég er meðal annars að reyna að skilja á milli svarta galdurs og hvíta galdurs, en stundum reynist erfitt að greina þar á milli. Við erum annars vegar með yfirgang sem er mjög augljós eins og ofbeldi sem á einfaldlega ekki að líðast lengur. En svo er það gráa svæðið, huldi og duldi yfirgangurinn, en þar er ég að leitast við að skilja, til að mynda hvað er andlegt ofbeldi? Hvað er áreiti? Þarna þurfum við virkilega að vanda okkur og skoða málið frá öllum hliðum.“ Undirferli er ekki auðskilgreinan- leg bók í forminu og Oddný segir að það sé einmitt hluti af því ferli að láta hugann ráða för fremur en mörk viðkomandi forms hverju sinni. „Mér hefur alltaf þótt spenn- andi hvernig hugurinn lætur ekk- ert hemja sig. Hann fer þangað sem honum sýnist. Í þetta skiptið ætlaði ég að skrifa vampírusögu en svo varð ég fljótt þreytt á því og þess vegna hætti ég að hugsa um formið – leyfði huganum að ráða.“ Frá öllum hliðum En er ekki rétt að þessi skoðun eða rannsókn þín sem höfundar sé ein- hvers konar eðlilegt framhald af þínum fyrri verkum? „Jú, það má alveg segja það. Þótt manni finn- ist maður vera að gera eitthvað splúnku nýtt og ekki í neinu eðli- legu framhaldi þá er maður líklega í einhverju ómeðvituðu flúkti við sjálfan sig .“ Oddný segir að það hafi ekki endilega verið á dagskrá að skrifa þessa bók, að hún hafi í raun ætlað að halda áfram að skrifa sjálfsævi- sögulegt verk í framhaldi af síðustu bók. „En svo bara tók þessi bók yfir og fór sínar eigin leiðir. Það var mjög gaman að skrifa hana, ég byrj- aði bara að leika mér og leikurinn með sínum grallaraskap skoraði þetta erfiða viðfangsefni á hólm.“ Virðir engin mörk Oddný lítur á skáldsöguna sem sína tilraunastofu. „Þar sem Undir- ferli fjallar um yfirganginn og það þegar vaðið er yfir viðkvæm mörk, þá er spennandi áskorun fyrir mig sem rithöfund og listamann að skrifa um það með því að fara yfir listræn mörk. Sem listamaður er maður nefnilega alltaf að fara yfir mörk. Maður ryður sér inn á ýmis bókmenntasvið og hlær svo bara og skellir sér á lær,“ segir Oddný og hlær en bætir við að hún beri samt mikla virðingu fyrir ólíkum bók- menntagreinum. #Metoo er rosalega mikilvægt fyrir okkur öll. Eðli ofbeldis er að lít- ilsvirða. Kynferðislegt ofbeldi hefur til að mynda tilhneigingu til að lít- ilsvirða kynorku annarra, þessa lífs- orku sem við eigum öll og þurfum á að halda sem manneskjur og líka sem listamenn. Þegar við erum að berjast gegn ofbeldinu verðum við að gæta þess að lítilsvirða ekki þessa lífsorku. Við verðum að beita nýjum vopnum sem virða lífið. Það er mikil áskorun að gera þetta vel svo breytingin verði raunveruleg. Við þurfum öll að gera okkar besta með auðmýkt, hugrekki og opnum hug. Leikurinn skoraði þetta erfiða viðfangsefni á hólm „Við þurfum öll að gera okkar besta með auðmýkt, hugrekki og opnum huga,“ segir Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur. Fréttablaðið/antOn brink oddný eir ævars- dóttir sendi ný- verið frá sér skáld- söguna undirferli. verk sem hún segir að sé í raun og veru stríðsyfirlýsing og vopn í því stríði. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r54 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -8 D 8 4 1 E 9 3 -8 C 4 8 1 E 9 3 -8 B 0 C 1 E 9 3 -8 9 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.