Fréttablaðið - 21.12.2017, Qupperneq 70
Í þetta skiptið
ætlaði ég að skrifa
vampÍrusögu en svo varð ég
fljótt þreytt á þvÍ og þess
vegna hætti ég að hugsa um
formið – leyfði huganum að
ráða.
„Við Hrafnhildur Árnadóttir sópran og
Ingileif Bryndís Þórsdóttir píanóleikari
ætlum að halda hugljúfa jólatónleika í
Fríkirkjunni í kvöld og fagna því í leið-
inni að sólin fer að hækka á lofti strax
á morgun,“ segir Heiðdís Hanna Sig-
urðardóttir sópransöngkona glaðlega.
Um dagskrána segir hún að þar verði
jólalög úr ýmsum áttum, bæði íslensk
og erlend í bland við óperudúetta. „Það
getur verið svolítið snúið að finna fína
dúetta fyrir tvo sóprana en við fundum
að minnsta kosti þrjá góða.“
Heiðdís Hanna segir þær Hrafn-
hildi hafa kynnst í Íslensku óperunni
þar sem þær hafi aðallega verið á vara-
mannabekknum þegar Don Giovanni
var á fjölunum. „Við Ingileif Bryndís
kynntumst í námi í Freiburg í Þýska-
landi og þær Hrafnhildur og Ingileif
voru samtímis í MR, þannig að við
tengjumst með ýmsum hætti,“
Jóladagskrá vinkvennanna hefst í
Fríkirkjunni klukkan 20. Þar munu
kertaljós auka á hátíðleikann. – gun
Jólatónleikar á vetrarsólstöðum
Hrafnhildur og Heiðdís Hanna syngja í Fríkirkjunni í kvöld.
Það sem mig langar til þess að segja, núna þegar ég sit hér og er búin að úða í mig piparkökum og drekka of mikið kaffi, er að
mér fannst ég ekki geta leyft mér
að skrifa einfalda ástarsorgarsögu.
Því á okkar tímum viðgengst svo
mikið ofbeldi að við verðum að vera
í andspyrnuhreyfingu. Þessi bók er
stríðsyfirlýsing,“ segir Oddný Eir
Ævarsdóttir rithöfundur hin hress-
asta. Oddný hefur löngum farið
eigin leiðir í sínum skáldskap og
nýjasta skáldsaga hennar, Undir-
ferli, er engin undantekning frá því.
Orð Oddnýjar komu í framhaldi af
spurningunni um það hverrar bók-
menntategundar Undirferli sé í raun
og veru en hæglega má skilgreina
hana sem ástarsögu, vísindaskáld-
skap og jafnvel spennu- eða morð-
sögu. En við orðin um stríðsyfirlýs-
inguna hefur Oddný þessu að bæta:
„Um leið og þetta er stríðsyfirlýsing
þá er þetta tilraun til þess að skilja
að stríðið sem við stöndum í er von-
andi allt öðruvísi en öll önnur stríð.
Þessi bók er vopn í því stríði þótt
þetta sé engin hríðskotabyssa.“
Mitt eigið #metoo
Oddný segir að stríðið sem um
ræðir sé yfirgangurinn í öllum
sínum myndum. „Þessi bók er mitt
#metoo. Áður en það hugtak var
orðið til þá var ég að takast á við
það sem #metoo gengur út á. Undir-
ferli gengur út á yfirganginn í öllum
sínum myndum og ég er meðal
annars að reyna að skilja á milli
svarta galdurs og hvíta galdurs, en
stundum reynist erfitt að greina þar
á milli. Við erum annars vegar með
yfirgang sem er mjög augljós eins
og ofbeldi sem á einfaldlega ekki að
líðast lengur.
En svo er það gráa svæðið, huldi
og duldi yfirgangurinn, en þar er ég
að leitast við að skilja, til að mynda
hvað er andlegt ofbeldi? Hvað er
áreiti? Þarna þurfum við virkilega
að vanda okkur og skoða málið frá
öllum hliðum.“
Undirferli er ekki auðskilgreinan-
leg bók í forminu og Oddný segir
að það sé einmitt hluti af því ferli
að láta hugann ráða för fremur en
mörk viðkomandi forms hverju
sinni. „Mér hefur alltaf þótt spenn-
andi hvernig hugurinn lætur ekk-
ert hemja sig. Hann fer þangað
sem honum sýnist. Í þetta skiptið
ætlaði ég að skrifa vampírusögu en
svo varð ég fljótt þreytt á því og þess
vegna hætti ég að hugsa um formið
– leyfði huganum að ráða.“
Frá öllum hliðum
En er ekki rétt að þessi skoðun eða
rannsókn þín sem höfundar sé ein-
hvers konar eðlilegt framhald af
þínum fyrri verkum? „Jú, það má
alveg segja það. Þótt manni finn-
ist maður vera að gera eitthvað
splúnku nýtt og ekki í neinu eðli-
legu framhaldi þá er maður líklega
í einhverju ómeðvituðu flúkti við
sjálfan sig .“
Oddný segir að það hafi ekki
endilega verið á dagskrá að skrifa
þessa bók, að hún hafi í raun ætlað
að halda áfram að skrifa sjálfsævi-
sögulegt verk í framhaldi af síðustu
bók. „En svo bara tók þessi bók yfir
og fór sínar eigin leiðir. Það var
mjög gaman að skrifa hana, ég byrj-
aði bara að leika mér og leikurinn
með sínum grallaraskap skoraði
þetta erfiða viðfangsefni á hólm.“
Virðir engin mörk
Oddný lítur á skáldsöguna sem
sína tilraunastofu. „Þar sem Undir-
ferli fjallar um yfirganginn og það
þegar vaðið er yfir viðkvæm mörk,
þá er spennandi áskorun fyrir mig
sem rithöfund og listamann að
skrifa um það með því að fara yfir
listræn mörk. Sem listamaður er
maður nefnilega alltaf að fara yfir
mörk. Maður ryður sér inn á ýmis
bókmenntasvið og hlær svo bara
og skellir sér á lær,“ segir Oddný og
hlær en bætir við að hún beri samt
mikla virðingu fyrir ólíkum bók-
menntagreinum.
#Metoo er rosalega mikilvægt
fyrir okkur öll. Eðli ofbeldis er að lít-
ilsvirða. Kynferðislegt ofbeldi hefur
til að mynda tilhneigingu til að lít-
ilsvirða kynorku annarra, þessa lífs-
orku sem við eigum öll og þurfum
á að halda sem manneskjur og líka
sem listamenn. Þegar við erum að
berjast gegn ofbeldinu verðum við
að gæta þess að lítilsvirða ekki þessa
lífsorku. Við verðum að beita nýjum
vopnum sem virða lífið. Það er
mikil áskorun að gera þetta vel svo
breytingin verði raunveruleg. Við
þurfum öll að gera okkar besta með
auðmýkt, hugrekki og opnum hug.
Leikurinn skoraði þetta erfiða viðfangsefni á hólm
„Við þurfum öll að gera okkar besta með auðmýkt, hugrekki og opnum huga,“ segir Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur. Fréttablaðið/antOn brink
oddný eir ævars-
dóttir sendi ný-
verið frá sér skáld-
söguna undirferli.
verk sem hún segir
að sé í raun og veru
stríðsyfirlýsing og
vopn í því stríði.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r54 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-8
D
8
4
1
E
9
3
-8
C
4
8
1
E
9
3
-8
B
0
C
1
E
9
3
-8
9
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K