Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 76
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r60 b í l A r ∙ F r É T T A b l A ð I ð
Bílar
Með sífellt meiri kröfum IIHS um
öryggi nýrra bíla komust aðeins 15
nýir bílar í hæsta flokk, þ.e. „Top
Safety Pick Plus“. IIHS hefur mælt
öryggi bíla sem seldir eru í Banda-
ríkjunum frá árinu 1959 og hefur
það markmið að fækka slysum og
meiðslum í umferðinni þar í landi. Í
mælingum IIHS (Insurance Institute
for Highway Security) fengu aðrir
47 bílar einkunnina „Top Safety
Pick“, en náðu ekki í Plus-flokkinn.
Af þessum 15 bílum eru 12 fólks-
bílar og þrír jeppar. Athygli vekur
að af þessum 15 bílum eru fjórir frá
Subaru, sem ekki getur talist með
stærstu bílaframleiðendum heims,
né lúxusbílaframleiðandi. Kia,
Hyundai, Genesis, sem er frá lúxus-
bíladeild Hyundai og Mercedes
Benz, eiga svo hvert sína tvo bílana
á listanum góða. Þó svo þessar próf-
anir séu gerðar á bílum sem seldir
eru í Bandaríkjunum er aðeins einn
bíll sem framleiddur er af banda-
rískum bílaframleiðanda, þ.e. Lin-
coln Continental. Listi þessara 15
nýju bíla sem teljast þeir öruggustu
í umferðinni í ár er þessi:
BMW 5 Series
Genesis G80
Genesis G90
Hyundai Santa Fe
Hyundai Santa Fe Sport
Kia Forte Sedan
Kia Soul
Lincoln Continental
Mercedes-Benz E-Class
Mercedes-Benz GLC
Subaru Impreza
Subaru Legacy
Subaru Outback
Subaru WRX
Toyota Camry
Fimmtán öruggustu bílarnir í ár
Subaru á fjóra bíla á þessum eftirsótta lista og Kia,
Hyundai, Mercedes Benz og Genesis tvo hvert.
Árið 2017 verður metár í sölu bíla á
Íslandi, en við síðustu mánaðamót var
búið að nýskrá 22.221 fólks- og sendi-
bíl og stefnir heildarsala á árinu í um
23.300 bíla, en á fyrri helmingi þessa
mánaðar bættust við 477 nýskrán-
ingar. BL er með talsvert mikla for-
ystu fram yfir önnur umboð landsins
hvað sölu varðar, en BL hafði selt 6.157
bíla við síðustu mánaðamót. BL hefur
aukið sölu sína um 23 prósent frá fyrra
ári og var með 27,7 prósenta hlutdeild
af heildarsölunni. Í fyrra var BL með
25,8 prósent af heildarsölunni og
hefur því í ár enn aukið við sig tæpum
tveimur prósentum og selur nú meira
en fjórða hvern bíl sem selst á landinu.
Næsta umboð á eftir BL í sölu er
Toyota með 3.977 bíla nýskráða og 21
prósents vöxt á milli ára. Í þriðja sæti er
Hekla með 3.587 bíla, Brimborg í fjórða
með 3.263 bíla og Askja í fimmta með
2.740 selda bíla. Bílaumboðin á Íslandi
eru nú níu eftir að Ísband bættist í hóp-
inn í fyrra. Fjögur minnstu umboðin,
þ.e. Suzuki, Bílabúð Benna, Bernhard
og Ísband, ná ekki samanlagt sölu
fimmta stærsta umboðsins, en heildar-
sala þeirra er 2.310 bílar og markaðs-
hlutdeild samtals 10,5 prósent. Af því
er Suzuki með 702 bíla, Benni með 665,
Bernhard 573 og Ísband 370 bíla.
BL langstærsta umboðið
Meira en fjórði hver nýr bíll frá BL í ár
og salan þar á sjöunda þúsund bíla.
Í ár hefur verið vöxtur í fólks-bílasölu á tveimur af stærstu bílamörkuðum heims, þ.e. í Kína og í Evrópu, en lítilleg minnkun í Bandaríkjunum.
Að auki hefur verið vöxtur í löndum
sem áður höfðu þurft að þola mikinn
samdrátt í sölu, svo sem í Brasilíu og
í Rússlandi. Salan í Japan hefur líka
verið með ágætum og einnig í hinu
fjölmenna Indlandi en þar í landi
gæti stóraukin sala skipt miklu fyrir
bílaframleiðendur á næstu árum.
Á næsta ári er því til dæmis spáð
að bílasala í Indlandi fari fram úr
sölunni í Þýskalandi og nái 3,6 millj-
óna bíla sölu og 10 prósenta aukn-
ingu á milli ára. Hvað varðar bílasölu
heimsins í heild í ár er búist við að
hún aukist um 1 prósent og muni
nema 85,7 milljónum bíla.
Hægist á aukningunni í Kína
Sala bíla í Kína heldur áfram að
aukast og verður á milli 24 og 25
milljóna bíla í ár og spáð er að hún
gæti farið yfir 25 milljónir bíla á
næsta ári. Hin hraða aukning í bíla-
sölu þar á undanförnum árum er þó
á undanhaldi og tveggja stafa tölur
í aukningu milli ára eru ekki sjáan-
legar á næstu árum. Bílasala í Evrópu
fer líklega í 15,6 milljónir bíla þrátt
fyrir talsverðan samdrátt í Bretlandi
og álíka sölu á stærsta markaðnum í
Þýskalandi. Það eru önnur lönd álf-
unnar sem halda aukningunni uppi,
svo sem Frakkland, Ítalía og Spánn.
Ágæt aukning er líka í mörgum af
minni löndum álfunnar og er Ísland
þar ekki undanskilið.
Þýskir bílaframleiðendur drjúgir
Spáð er áframhaldandi vexti í sölu
í hinum fjölmennu löndum Rúss-
landi og Brasilíu á næsta ári og gæti
munað um minna fyrir bílafram-
leiðendur heims. Til marks um
mikilvægi Þýskalands sem bílafram-
leiðanda þá munu þýskir bílafram-
leiðendur framleiða 16,7 milljónir
bíla á næsta ári þar sem 5,6 milljónir
þeirra verða framleiddir í heima-
landinu og 4,3 milljónir verða fluttar
til annarra landa, en 11,1 milljón
bíla framleidd í öðrum löndum.
Þýskir bílaframleiðendur framleiða
fleiri bíla á ári en seljast í Evrópu allri
á ári, en meirihluti þýskra bíla selst
utan álfunnar.
Vöxtur í bílasölu heimsins stefnir í 1% í ár
Stefnir í sölu 85,7 milljóna fólksbíla og þar af 24,5 milljónir í Kína. Salan í Evrópu nemur 15,6 milljónum bíla.
Sala bíla í Kína heldur áfram að aukast og verður á milli 24 og 25 milljóna bíla í ár og spáð er að hún gæti farið yfir 25 milljónir bíla á næsta ári.
Meira en fjórði hver nýr bíll var frá BL í ár.
Subaru Outback er einn af fimmtán öruggustu bílunum.
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-8
8
9
4
1
E
9
3
-8
7
5
8
1
E
9
3
-8
6
1
C
1
E
9
3
-8
4
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K