Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 86
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
Sogavegi 3
Höfðabakka 1
HUMAR
3.900
Stærð 30/40 kr.kg
Sprelligosarnir og snillingarnir í
Harlem Globetrotters eru á leið
til landsins og munu þeir spila tvo
leiki, á Akureyri og í Reykjavík. Þeir
eru væntanlegir til landsins þann
30. maí.
Harlem Globetrotters þarf ekki
að kynna fyrir neinum, enda hafa
þeir verið tíðir gestir hér á landi frá
árinu 1980. Síðast voru þeir í heim-
sókn 2015 og héldu tvær sýningar í
Reykjavík fyrir troðfullu húsi. Mikil
ásókn var í miða á þær sýningar og
varð stór hópur gesta frá að hverfa
sem ætlaði sér að kaupa miða við
inngang á sýningardag.
Í þetta skiptið ætla Harlem
Globe trotters að spila á Akureyri
þann 30. maí en þangað komu þeir
síðast 2002. Daginn eftir munu þeir
svo mæta í Laugardalshöllina.
Samkvæmt tilkynningu elska
leikmenn Harlem Globetrotters að
koma til landsins og skemmta
Íslendingum. Einnig hafa þeir notið
Íslands í allri sinni dýrð og hér hefur
þeim fundist einna skemmtilegast
að sýna, segja íslenska áhorfendur
þá bestu.
Miðasala hefst í febrúar 2018 á
Tix.is og verður hún auglýst nánar
í nýju ári. – bb
Harlem Globetrotters aftur til landsins
Harlem Globetrotters hafa verið á ferðinni í 90 ár Fréttablaðið/Pjetur
Þrif og hagnýt húsráð Sól-rúnar Diego er í fimmta sæti á uppsöfnuðum lista yfir mest seldu bækur ársins. Aðeins glæpasagnahöfundarnir
Arnaldur og Yrsa ásamt barnabóka-
höfundunum Ævari Þór og Gunnari
Helgassyni skáka henni.
Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra
Hússtjórnarskólans, hefur marga
fjöruna sopið í þrifmálum og kann
öll trixin í bókinni – bókstaflega.
Hún gaf út bókina Allt á hreinu, sem
fjallaði um ræstingu á heimilinu,
umhirðu um fatnað, þvotti og frá-
gangi. Einnig voru gefin fjölmörg
gagnleg húsráð, gömul og ný.
Aðspurð hvort nýir tímar séu
komnir í þrif heimilisins segir hún
ekki svo vera. Hún sjái fáein góð ráð,
eins og að setja eldhúspappír í vask-
inn áður en karlmenn raka sig, en
það sé ekki mikið nýtt undir sólinni.
„Það eru líkindi með þessari bók
og minni bók. Það er ekkert verið
að finna upp hjólið,“ segir hún. „Ég
myndi ekki nenna að gera allt sem er
í þessari bók. Húsmóðirin sem er að
vinna úti og þrífur í einu hendings-
kasti – það þarf að hugsa um hana
líka.“
Margrét segir það frábær tíðindi
að svo margir fylgist með Sólrúnu
þrífa og hafi áhuga á því en það eru
nokkur ráð í bókinni sem seint verða
kennd í Hússtjórnarskólanum. „Kafl-
inn um þvottinn á handklæðum
fer fyrir brjóstið á mér. Ég myndi
ekki vilja nota þá þvottapoka eða
það handklæði sem er þvegið á 30°
eins og bent er á í bókinni. Hand-
klæðið sem ég fer með í ræktina til
dæmis það kemur við gólfið og fer
á bekkinn þar sem fólk situr þegar
ég þurrka á mér lappirnar. Þar hafa
setið berrassaðar konur og ég myndi
aldrei þvo það handklæði á 30°.
Bómullarefni þola suðuna og 90°.“
Í bók Sólrúnar er sagt að hand-
klæði sem eru ekki verulega óhrein
sé yfirleitt nóg að þvo á 30-40°hita.
Nokkrir kaflar í bókinni fá fína
einkunn frá Margréti og trúlega gæti
Sólrún útskrifast frá Hússtjórnar-
skólanum með góða einkunn. „Kafl-
inn um stofur er ekki góður. Þar er
talað um að þvo leðursófa upp úr
ediksvatni sem er súr blanda en leðr-
ið þarf fitu. Uppþvottalögur, græn-
sápa og fleiri sápur eru búnar til úr
fitu. Svo þarf að bera leðurfeiti á til að
sófinn springi ekki og endist lengur.
Um borð er talað um að strjúka af
bletti með hringlaga strokum. Maður
nuddar aldrei við þannig heldur eftir
því hvernig viðurinn liggur. Tekk-
borð myndi ég aldrei nudda í hring,“
segir hún og bendir á tekkborðið
í stofunni í skólanum sem er mjög
gamalt en lítur út eins og nýtt þrátt
fyrir mikla notkun á þessum árum.
Heilt yfir er Margrét ánægð með
að fólk hafi áhuga á þrifum og að ný
bók sé komin í þrifflóruna en hún
segir að ekkert nýtt sé í henni.
benediktboas@365.is
Margrét skólar Sólrúnu Diego til
Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, segir nýja þrifbók Sólrúnar Diego ágæta til síns
brúks en sum ráðin í bókinni fá hana til að hrista hausinn. Bók Sólrúnar er fimmta söluhæsta bók landsins.
Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans, með bókina fyrir framan sig. Hún segir lítið nýtt koma fram í henni, ekkert sem hún hafi ekki séð áður.
Fréttablaðið/eyþór.
rifjárn: Það á ekki að skola það
með heitu vatni því þá límist
osturinn við. Það þarf að skola það
með köldu vatni.
rúmfötin: Maður þvær þau á
því hitastigi sem gefið er upp en
bómullarrúmföt eru gefin upp
fyrir 60-90°.
uppþvottavél: Þó að framleið-
endur segi að það þurfi ekki að
skola leirtau þá er betra að skola
með köldu vatni. Vélin sér um
fituna en leifarnar fara beint í
síurnar.
Hnífapör í uppþvottavél: Það
er betra að blanda hnífapörum
því skeiðablöðin geta fest saman.
Maður er vissulega fljótari að
taka upp úr en það er betra að
blanda. Ég geri þetta þannig að
ég legg úr vélinni á viskastykki til
að taka um handföngin því ekki
vill maður handleika hnífapörin
með skítugum puttunum – það er
sóðalegt.
Hreinsa hár úr niðurfalli: Nota
heklunál. Passa sig bara að missa
hana ekki niður.
Gardínur: Það á ekki að hrista
gardínur inni. Maður tekur þær
niður og dustar þær úti því rykið
fer út um allt.
Sængurföt: Þurfa að kólna áður
en búið er um rúmin og ekki nota
þungt rúmteppi.
þvottavél: Hafa hana opna,
þurrkarann líka. Það á líka að
ryksuga þurrkarann að innan og
ekki gleyma síunni sem er undir.
Muna að nota lítið þvottaefni, það
þarf ekki að nota svona mikið.
Nokkur Heilræði MarGrétaréG MyNDi ekki vilja
Nota þá þvotta-
poka eða það HaNDklæði
SeM er þveGið á 30°.
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r70 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
Lífið
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-8
3
A
4
1
E
9
3
-8
2
6
8
1
E
9
3
-8
1
2
C
1
E
9
3
-7
F
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K