Fréttablaðið - 21.12.2017, Page 86

Fréttablaðið - 21.12.2017, Page 86
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina Sogavegi 3 Höfðabakka 1 HUMAR 3.900 Stærð 30/40 kr.kg Sprelligosarnir og snillingarnir í Harlem Globetrotters eru á leið til landsins og munu þeir spila tvo leiki, á Akureyri og í Reykjavík. Þeir eru væntanlegir til landsins þann 30. maí. Harlem Globetrotters þarf ekki að kynna fyrir neinum, enda hafa þeir verið tíðir gestir hér á landi frá árinu 1980. Síðast voru þeir í heim- sókn 2015 og héldu tvær sýningar í Reykjavík fyrir troðfullu húsi. Mikil ásókn var í miða á þær sýningar og varð stór hópur gesta frá að hverfa sem ætlaði sér að kaupa miða við inngang á sýningardag.  Í þetta skiptið ætla Harlem Globe trotters að spila á Akureyri þann 30. maí en þangað komu þeir síðast 2002. Daginn eftir munu þeir svo mæta í Laugardalshöllina. Samkvæmt tilkynningu elska leikmenn Harlem Globetrotters að koma til landsins og skemmta Íslendingum. Einnig hafa þeir notið Íslands í allri sinni dýrð og hér hefur þeim fundist einna skemmtilegast að sýna, segja íslenska áhorfendur þá bestu. Miðasala hefst í febrúar 2018 á Tix.is og verður hún auglýst nánar í nýju ári. – bb Harlem Globetrotters aftur til landsins Harlem Globetrotters hafa verið á ferðinni í 90 ár Fréttablaðið/Pjetur Þrif og hagnýt húsráð Sól-rúnar Diego er í fimmta sæti á uppsöfnuðum lista yfir mest seldu bækur ársins. Aðeins glæpasagnahöfundarnir Arnaldur og Yrsa ásamt barnabóka- höfundunum Ævari Þór og Gunnari Helgassyni skáka henni. Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans, hefur marga fjöruna sopið í þrifmálum og kann öll trixin í bókinni – bókstaflega. Hún gaf út bókina Allt á hreinu, sem fjallaði um ræstingu á heimilinu, umhirðu um fatnað, þvotti og frá- gangi. Einnig voru gefin fjölmörg gagnleg húsráð, gömul og ný. Aðspurð hvort nýir tímar séu komnir í þrif heimilisins segir hún ekki svo vera. Hún sjái fáein góð ráð, eins og að setja eldhúspappír í vask- inn áður en karlmenn raka sig, en það sé ekki mikið nýtt undir sólinni. „Það eru líkindi með þessari bók og minni bók. Það er ekkert verið að finna upp hjólið,“ segir hún. „Ég myndi ekki nenna að gera allt sem er í þessari bók. Húsmóðirin sem er að vinna úti og þrífur í einu hendings- kasti – það þarf að hugsa um hana líka.“ Margrét segir það frábær tíðindi að svo margir fylgist með Sólrúnu þrífa og hafi áhuga á því en það eru nokkur ráð í bókinni sem seint verða kennd í Hússtjórnarskólanum. „Kafl- inn um þvottinn á handklæðum fer fyrir brjóstið á mér. Ég myndi ekki vilja nota þá þvottapoka eða það handklæði sem er þvegið á 30° eins og bent er á í bókinni. Hand- klæðið sem ég fer með í ræktina til dæmis það kemur við gólfið og fer á bekkinn þar sem fólk situr þegar ég þurrka á mér lappirnar. Þar hafa setið berrassaðar konur og ég myndi aldrei þvo það handklæði á 30°. Bómullarefni þola suðuna og 90°.“ Í bók Sólrúnar er sagt að hand- klæði sem eru ekki verulega óhrein sé yfirleitt nóg að þvo á 30-40°hita. Nokkrir kaflar í bókinni fá fína einkunn frá Margréti og trúlega gæti Sólrún útskrifast frá Hússtjórnar- skólanum með góða einkunn. „Kafl- inn um stofur er ekki góður. Þar er talað um að þvo leðursófa upp úr ediksvatni sem er súr blanda en leðr- ið þarf fitu. Uppþvottalögur, græn- sápa og fleiri sápur eru búnar til úr fitu. Svo þarf að bera leðurfeiti á til að sófinn springi ekki og endist lengur. Um borð er talað um að strjúka af bletti með hringlaga strokum. Maður nuddar aldrei við þannig heldur eftir því hvernig viðurinn liggur. Tekk- borð myndi ég aldrei nudda í hring,“ segir hún og bendir á tekkborðið í stofunni í skólanum sem er mjög gamalt en lítur út eins og nýtt þrátt fyrir mikla notkun á þessum árum. Heilt yfir er Margrét ánægð með að fólk hafi áhuga á þrifum og að ný bók sé komin í þrifflóruna en hún segir að ekkert nýtt sé í henni. benediktboas@365.is Margrét skólar Sólrúnu Diego til Margrét Sigfúsdóttir, skólastýra Hússtjórnarskólans í Reykjavík, segir nýja þrifbók Sólrúnar Diego ágæta til síns brúks en sum ráðin í bókinni fá hana til að hrista hausinn. Bók Sólrúnar er fimmta söluhæsta bók landsins. Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans, með bókina fyrir framan sig. Hún segir lítið nýtt koma fram í henni, ekkert sem hún hafi ekki séð áður. Fréttablaðið/eyþór. rifjárn: Það á ekki að skola það með heitu vatni því þá límist osturinn við. Það þarf að skola það með köldu vatni. rúmfötin: Maður þvær þau á því hitastigi sem gefið er upp en bómullarrúmföt eru gefin upp fyrir 60-90°. uppþvottavél: Þó að framleið- endur segi að það þurfi ekki að skola leirtau þá er betra að skola með köldu vatni. Vélin sér um fituna en leifarnar fara beint í síurnar. Hnífapör í uppþvottavél: Það er betra að blanda hnífapörum því skeiðablöðin geta fest saman. Maður er vissulega fljótari að taka upp úr en það er betra að blanda. Ég geri þetta þannig að ég legg úr vélinni á viskastykki til að taka um handföngin því ekki vill maður handleika hnífapörin með skítugum puttunum – það er sóðalegt. Hreinsa hár úr niðurfalli: Nota heklunál. Passa sig bara að missa hana ekki niður. Gardínur: Það á ekki að hrista gardínur inni. Maður tekur þær niður og dustar þær úti því rykið fer út um allt. Sængurföt: Þurfa að kólna áður en búið er um rúmin og ekki nota þungt rúmteppi. þvottavél: Hafa hana opna, þurrkarann líka. Það á líka að ryksuga þurrkarann að innan og ekki gleyma síunni sem er undir. Muna að nota lítið þvottaefni, það þarf ekki að nota svona mikið. Nokkur Heilræði MarGrétaréG MyNDi ekki vilja Nota þá þvotta- poka eða það HaNDklæði SeM er þveGið á 30°. 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r70 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð Lífið 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -8 3 A 4 1 E 9 3 -8 2 6 8 1 E 9 3 -8 1 2 C 1 E 9 3 -7 F F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.