Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 88
Lífsannáll
2017
Árið 2017 var viðburðaríkt í
heimi dægurmála. Lífið hefur
tekið saman nokkur athyglis
verð mál sem vöktu eftirtekt
á árinu sem er að líða. Hér
kennir ýmissa grasa.
JóiPé og Króli fram á sjónarsviðið
Tónlistarmennirnir JóiPé og Króli slógu ræki-
lega í gegn á árinu, sérstaklega með laginu
B.O.B.A. Það lag byggir á fleygum orðum sem
tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens lét flakka
í beinni útsendingu árið 2002. Þá ætlaði Bubbi
að stafa orðið „bomba“ en í miklum ákafa
gleymdist einn bókstafur. „Lagið er flott,“
sagði Bubbi í viðtali við Lífið.
Í laginu fjalla JóiPé og Króli líka um Hyundai
i30-bílinn og Lífið heyrði í Hyundai umboðinu
og kannaði hvort vinsældir bílsins hefðu aukist
eftir að lagið sló í gegn. „Síðustu tíu daga hefur
verið að seljast meira af þessum bíl. Hvort það
er laginu að þakka eða ekki veit ég ekki. Hann
er reyndar mjög góður,“ sagði Kristinn Páll
Teitsson, sölumaður hjá Hyundai umboðinu.
Athugasemd um holdafar vakti athygli
Í mars á þessu ári hratt athugasemd um holdafar á Instagram
af stað umræðu um líkamsvirðingu og fordóma. Athugasemd-
in kom frá leikkonunni Ágústu Evu og var beint til Manuelu
Óskar. Lífið heyrði þá í Elvu Björk Ágústsdóttur, varaformanni
Samtaka um líkamsvirðingu. Það kom henni ekki á óvart að
athugasemdin hefði vakið athygli. „Umræðan um fordóma
gagnvart útliti, mikilvægi þess að vera sáttur við líkama sinn
og bera virðingu fyrir honum og öðrum hefur aukist undan-
farið finnst mér. Í dag sjáum við fólk bregðast við og svara
þegar neikvæð umræða fer af stað um útlit og líkama fólks.“
Stóra endurgreiðslumálið
Lífið fjallaði um stóra endurgreiðslumálið svokallaða sem
snýst meðal annars um að þáttaröðin Kórar Íslands
fékk ekki endurgreiðslu upp á 25 prósent af fram-
leiðslukostnaði frá nefnd sem heyrir undir Kvik-
myndasjóð. Ástæðan er að þáttaröðin þótti ekki
nógu menningarleg. Það sem vakti athygli er að
þættirnir Biggest Loser, japanska kakkalakka-
myndin Terra Formars og bandaríska stórmynd-
in The Fate of the Furious fengu endurgreiðslu.
Límmiðaverkefnið sem fór misvel í fólk
Tónlistarkonan Þórunn Antonía greindi
í viðtali við Lífið frá verkefni sem tón-
listarhátíðin Secret Solstice setti á
laggirnar og var forseti Íslands verndari
þess. Verkefnið snerist um að láta
útbúa sérstaka límmiða sem áttu að
koma í veg fyrir að hægt væri að lauma
nauðgunarlyfi ofan í glös. Þetta verk-
efni fór misvel í fólk og í fram-
haldi skapaðist mikil umræða
um hvort með þessu væri
verið að varpa ábyrgðinni á
fórnarlömb í stað gerenda.
„Við ættum auðvitað ekkert
að þurfa að vera að pæla í
svona löguðu, það er í raun
fáránlegt. En staðreyndin er
sú að það er fólk sem er að
gera þetta af ásettu ráði,“
sagði Þórunn í samtali við
Lífið.
Áttan grunsamlega vinsæl
Lagið Neinei með Áttunni náði svo miklum vinsældum í mars
að netverjar klóruðu sumir sér í höfðinu. Þá skapaðist um-
ræða á Twitter um hvort vinsældirnar væru mögulega keyptar
en Aron Ingi Davíðsson þvertók fyrir það þegar Lífið hafði
samband við hann. „Það er náttúrulega algjör della,“ sagði
hann. Síðan lagið kom út hafa vinsældir þess verið á blússandi
siglingu og meirihluti Íslendinga kann líklegast núna textann
við lagið utanbókar.
Gulltennur voru
fermingargjöfin í ár
„Grillz“, sem er tannskart,
eins konar gómur oftast
úr gulli eða silfri, var heit-
asti fylgihluturinn þetta
árið hjá unga fólkinu en
slíkt skart hefur lengi
verið í tísku í hipphopp-
senunni. „Ég fann fyrir að
það var brjáluð eftir-
spurn eftir þessu þannig
að ég hugsaði með mér
að ég hlyti eiginlega að
geta gert þetta sjálfur,“
sagir Hlynur Snær Andra-
son, vinsæll grillz-smiður,
í viðtali við Lífið.Tónlistarhátíðinni
Night + Day aflýst
Í maí var tilkynnt að breska
hljómsveitin The xx væri á leið
til Íslands og myndi halda Night
+ Day tónlistarhátíðina við
Skógafoss. Lífið heyrði í söng-
konu og gítarleikara sveitarinn-
ar, Romy Madley Croft, og hún
greindi frá því að hún tryði varla
að hátíðin yrði að veruleika.
Hún hafði rétt fyrir sér því
hátíðin var blásin af. Ástæðan
er viðkvæmt ástand
svæðisins við fossinn, að
sögn skipuleggjenda.
Umhverfisstofnun setti
svæðið á rauðan lista á
dögunum.
Svín sem gæludýr
Svín sem gæludýr náðum auknum
vinsældum á þessu ári og reyndar
svo miklum að MAST sá tilefni til
að senda frá sér leiðbeiningar um
hvernig hugsa eigi um grísi. Lífið
tók þá Vigdísi Tryggvadóttur,
dýralækni hjá Matvælastofnun,
tali. „Það er ekki fyrir hvern sem
er að halda og sinna 200-300 kílóa
svíni. Hér á landi eru einungis stærri
og hefðbundnari svínakyn til fram-
leiðslu, Landrace, Yorkshire og Duroc,
en ekki klassísk gæludýrasvín, til
dæmis Miniature og Pot belly.“
Biðraðir eftir strigaskóm
Íslendingar hljóta að eiga heimsmet í að standa í röð fyrir
utan búðir og það vita eigendur verslunarinnar Húrra vel því
reglulega myndast langar biðraðir fyrir utan búðina þegar
nýir Yeezy-skór koma í hús. Lífið fór á stúfana og spjallaði við
nokkra einstaklinga sem hikuðu ekki við að bíða í röð í margar
klukkustundir í febrúar eftir skóm. „Ég vaknaði klukkan 6.45,
klæddi mig vel og var mættur í kringum 7.00. Ég beið í fimm
tíma til að komast inn í búðina en það var fínt veður svo þetta
leið hratt. Það voru alveg einhverjir gaurar sem biðu í 16 tíma
sem mér finnst persónulega of mikið fyrir skópar,“ sagði Aron
Kristinn Jónasson.
Drama í kringum gerviaugnhár
Gerviaugnhár frá Tanja Yr Cosmetics vöktu mikið umtal í
mars og umræðan var áberandi á Twitter. Þar fór orðrómur
á flug um að augnhárin væru keypt á netsíðum á borð við
Aliexpress, sett í nýjar umbúðir og seld á uppsprengdu
verði. Tanja Ýr Ástþórsdóttir, konan á bak við Tanja Yr
Cosmetics, tók sig þá til og ræddi málið á Snapchat. „En ég
er í smá sjokki yfir því að enginn geri sér grein fyrir því hvað
ég er búin að leggja ógeðslega mikla vinnu í þetta fyrirtæki,“
sagði hún meðal annars.
Best klædda fólkið í framboði
Í október leitaði Lífið til álitsgjafa til að velja best
klædda fólkið í framboði. Óttarr Proppé, Baldur
Borgþórsson og Björt Ólafsdóttir voru meðal þeirra
sem komust á lista. „Hún styður vel við íslenska
hönnun án þess að vera með hrosshársnælur eða
því um líkt,“ sagði einn álitsgjafinn um Björt.
Samfestingurinn sem gerði allt vitlaust
Samfestingurinn sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klædd-
ist í Söngvakeppni Sjónvarpsins í mars olli miklu fjaðrafoki á
samfélagsmiðlum enda var hann nokkuð nákvæm eftirlíking
af samfestingi frá tískuhúsinu Balmain. „Þetta er augljós
stuldur,“ sagði Linda Björg Árnadóttir, hönnuður og lektor
í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, um samfestinginn í
viðtali við Lífið. Klæðskerinn Elma Bjarney Guðmundsdóttir
saumaði samfestinginn á Ragnhildi Steinunni. „Við vissum ná-
kvæmlega að við værum að gera svipaða
flík, þetta er bara öðruvísi efni og öðru-
vísi belti en útlitið er svipað. Skikkjan
er reyndar öðruvísi,“ sagði Elma.
Rapparar Íslands í Costco
Sannkallað Costco-æði greip um sig í
sumar þegar bandaríska verslanakeðjan
opnaði útibú hér á landi. Það lá því
beinast við að rapparar Íslands tækju
upp myndband í versluninni. „Því að það
eru allir í Costco, maður! Mér fannst það
bara liggja beint við,“ sagði Joey Christ,
eða Jóhann Kristófer Stefánsson, um
myndbandið við lagið Joey Cypher. Með
honum í laginu og myndbandinu eru þeir
Birnir, Herra Hnetusmjör og Aron Can en
eins og alþjóð veit hafa þessir menn allir
verið að gera það gott í rappbransanum.
2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r72 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
2
1
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
9
3
-9
7
6
4
1
E
9
3
-9
6
2
8
1
E
9
3
-9
4
E
C
1
E
9
3
-9
3
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K