Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 88

Fréttablaðið - 21.12.2017, Síða 88
Lífsannáll 2017 Árið 2017 var viðburðaríkt í heimi dægurmála. Lífið hefur tekið saman nokkur athyglis­ verð mál sem vöktu eftirtekt á árinu sem er að líða. Hér kennir ýmissa grasa. JóiPé og Króli fram á sjónarsviðið Tónlistarmennirnir JóiPé og Króli slógu ræki- lega í gegn á árinu, sérstaklega með laginu B.O.B.A. Það lag byggir á fleygum orðum sem tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens lét flakka í beinni útsendingu árið 2002. Þá ætlaði Bubbi að stafa orðið „bomba“ en í miklum ákafa gleymdist einn bókstafur. „Lagið er flott,“ sagði Bubbi í viðtali við Lífið. Í laginu fjalla JóiPé og Króli líka um Hyundai i30-bílinn og Lífið heyrði í Hyundai umboðinu og kannaði hvort vinsældir bílsins hefðu aukist eftir að lagið sló í gegn. „Síðustu tíu daga hefur verið að seljast meira af þessum bíl. Hvort það er laginu að þakka eða ekki veit ég ekki. Hann er reyndar mjög góður,“ sagði Kristinn Páll Teitsson, sölumaður hjá Hyundai umboðinu. Athugasemd um holdafar vakti athygli Í mars á þessu ári hratt athugasemd um holdafar á Instagram af stað umræðu um líkamsvirðingu og fordóma. Athugasemd- in kom frá leikkonunni Ágústu Evu og var beint til Manuelu Óskar. Lífið heyrði þá í Elvu Björk Ágústsdóttur, varaformanni Samtaka um líkamsvirðingu. Það kom henni ekki á óvart að athugasemdin hefði vakið athygli. „Umræðan um fordóma gagnvart útliti, mikilvægi þess að vera sáttur við líkama sinn og bera virðingu fyrir honum og öðrum hefur aukist undan- farið finnst mér. Í dag sjáum við fólk bregðast við og svara þegar neikvæð umræða fer af stað um útlit og líkama fólks.“ Stóra endurgreiðslumálið Lífið fjallaði um stóra endurgreiðslumálið svokallaða sem snýst meðal annars um að þáttaröðin Kórar Íslands fékk ekki endurgreiðslu upp á 25 prósent af fram- leiðslukostnaði frá nefnd sem heyrir undir Kvik- myndasjóð. Ástæðan er að þáttaröðin þótti ekki nógu menningarleg. Það sem vakti athygli er að þættirnir Biggest Loser, japanska kakkalakka- myndin Terra Formars og bandaríska stórmynd- in The Fate of the Furious fengu endurgreiðslu. Límmiðaverkefnið sem fór misvel í fólk Tónlistarkonan Þórunn Antonía greindi í viðtali við Lífið frá verkefni sem tón- listarhátíðin Secret Solstice setti á laggirnar og var forseti Íslands verndari þess. Verkefnið snerist um að láta útbúa sérstaka límmiða sem áttu að koma í veg fyrir að hægt væri að lauma nauðgunarlyfi ofan í glös. Þetta verk- efni fór misvel í fólk og í fram- haldi skapaðist mikil umræða um hvort með þessu væri verið að varpa ábyrgðinni á fórnarlömb í stað gerenda. „Við ættum auðvitað ekkert að þurfa að vera að pæla í svona löguðu, það er í raun fáránlegt. En staðreyndin er sú að það er fólk sem er að gera þetta af ásettu ráði,“ sagði Þórunn í samtali við Lífið. Áttan grunsamlega vinsæl Lagið Neinei með Áttunni náði svo miklum vinsældum í mars að netverjar klóruðu sumir sér í höfðinu. Þá skapaðist um- ræða á Twitter um hvort vinsældirnar væru mögulega keyptar en Aron Ingi Davíðsson þvertók fyrir það þegar Lífið hafði samband við hann. „Það er náttúrulega algjör della,“ sagði hann. Síðan lagið kom út hafa vinsældir þess verið á blússandi siglingu og meirihluti Íslendinga kann líklegast núna textann við lagið utanbókar. Gulltennur voru fermingargjöfin í ár „Grillz“, sem er tannskart, eins konar gómur oftast úr gulli eða silfri, var heit- asti fylgihluturinn þetta árið hjá unga fólkinu en slíkt skart hefur lengi verið í tísku í hipphopp- senunni. „Ég fann fyrir að það var brjáluð eftir- spurn eftir þessu þannig að ég hugsaði með mér að ég hlyti eiginlega að geta gert þetta sjálfur,“ sagir Hlynur Snær Andra- son, vinsæll grillz-smiður, í viðtali við Lífið.Tónlistarhátíðinni Night + Day aflýst Í maí var tilkynnt að breska hljómsveitin The xx væri á leið til Íslands og myndi halda Night + Day tónlistarhátíðina við Skógafoss. Lífið heyrði í söng- konu og gítarleikara sveitarinn- ar, Romy Madley Croft, og hún greindi frá því að hún tryði varla að hátíðin yrði að veruleika. Hún hafði rétt fyrir sér því hátíðin var blásin af. Ástæðan er viðkvæmt ástand svæðisins við fossinn, að sögn skipuleggjenda. Umhverfisstofnun setti svæðið á rauðan lista á dögunum. Svín sem gæludýr Svín sem gæludýr náðum auknum vinsældum á þessu ári og reyndar svo miklum að MAST sá tilefni til að senda frá sér leiðbeiningar um hvernig hugsa eigi um grísi. Lífið tók þá Vigdísi Tryggvadóttur, dýralækni hjá Matvælastofnun, tali. „Það er ekki fyrir hvern sem er að halda og sinna 200-300 kílóa svíni. Hér á landi eru einungis stærri og hefðbundnari svínakyn til fram- leiðslu, Landrace, Yorkshire og Duroc, en ekki klassísk gæludýrasvín, til dæmis Miniature og Pot belly.“ Biðraðir eftir strigaskóm Íslendingar hljóta að eiga heimsmet í að standa í röð fyrir utan búðir og það vita eigendur verslunarinnar Húrra vel því reglulega myndast langar biðraðir fyrir utan búðina þegar nýir Yeezy-skór koma í hús. Lífið fór á stúfana og spjallaði við nokkra einstaklinga sem hikuðu ekki við að bíða í röð í margar klukkustundir í febrúar eftir skóm. „Ég vaknaði klukkan 6.45, klæddi mig vel og var mættur í kringum 7.00. Ég beið í fimm tíma til að komast inn í búðina en það var fínt veður svo þetta leið hratt. Það voru alveg einhverjir gaurar sem biðu í 16 tíma sem mér finnst persónulega of mikið fyrir skópar,“ sagði Aron Kristinn Jónasson. Drama í kringum gerviaugnhár Gerviaugnhár frá Tanja Yr Cosmetics vöktu mikið umtal í mars og umræðan var áberandi á Twitter. Þar fór orðrómur á flug um að augnhárin væru keypt á netsíðum á borð við Aliexpress, sett í nýjar umbúðir og seld á uppsprengdu verði. Tanja Ýr Ástþórsdóttir, konan á bak við Tanja Yr Cosmetics, tók sig þá til og ræddi málið á Snapchat. „En ég er í smá sjokki yfir því að enginn geri sér grein fyrir því hvað ég er búin að leggja ógeðslega mikla vinnu í þetta fyrirtæki,“ sagði hún meðal annars. Best klædda fólkið í framboði Í október leitaði Lífið til álitsgjafa til að velja best klædda fólkið í framboði. Óttarr Proppé, Baldur Borgþórsson og Björt Ólafsdóttir voru meðal þeirra sem komust á lista. „Hún styður vel við íslenska hönnun án þess að vera með hrosshársnælur eða því um líkt,“ sagði einn álitsgjafinn um Björt. Samfestingurinn sem gerði allt vitlaust Samfestingurinn sem Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir klædd- ist í Söngvakeppni Sjónvarpsins í mars olli miklu fjaðrafoki á samfélagsmiðlum enda var hann nokkuð nákvæm eftirlíking af samfestingi frá tískuhúsinu Balmain. „Þetta er augljós stuldur,“ sagði Linda Björg Árnadóttir, hönnuður og lektor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, um samfestinginn í viðtali við Lífið. Klæðskerinn Elma Bjarney Guðmundsdóttir saumaði samfestinginn á Ragnhildi Steinunni. „Við vissum ná- kvæmlega að við værum að gera svipaða flík, þetta er bara öðruvísi efni og öðru- vísi belti en útlitið er svipað. Skikkjan er reyndar öðruvísi,“ sagði Elma. Rapparar Íslands í Costco Sannkallað Costco-æði greip um sig í sumar þegar bandaríska verslanakeðjan opnaði útibú hér á landi. Það lá því beinast við að rapparar Íslands tækju upp myndband í versluninni. „Því að það eru allir í Costco, maður! Mér fannst það bara liggja beint við,“ sagði Joey Christ, eða Jóhann Kristófer Stefánsson, um myndbandið við lagið Joey Cypher. Með honum í laginu og myndbandinu eru þeir Birnir, Herra Hnetusmjör og Aron Can en eins og alþjóð veit hafa þessir menn allir verið að gera það gott í rappbransanum. 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r72 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -9 7 6 4 1 E 9 3 -9 6 2 8 1 E 9 3 -9 4 E C 1 E 9 3 -9 3 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.