Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 94

Fréttablaðið - 21.12.2017, Side 94
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 13.12.17 - 19.12.17 1 2 5 6 7 8 109 43 Syndafallið Mikael Torfason Saga Ástu Jón Kalman Stefánsson Myrkrið veit Arnaldur Indriðason Gatið Yrsa Sigurðardóttir Mistur Ragnar Jónasson Fuglar Hjörleifur H. / Rán F. Sakramentið Ólafur Jóhann Ólafsson Amma best Gunnar Helgason Þitt eigið ævintýri Ævar Þór Benediktsson Heima Sólrún Diego Steinunn Anna Sigurjóns-dóttir, sem starfar sem sál-fræðingur hjá Litlu kvíða-meðferðarmiðstöðinni, þekkir það vel af eigin raun hversu kvíðvænlegur tími jólin geta verið fyrir suma. „Ég hef átt jól þar sem ég íhugaði sjálfsvíg. Reyndar er það ekki svo sjaldgæft að íhuga sjálfsvíg þegar okkur líður illa. Það er bara stund- um erfitt að vera til. Og þegar það er erfitt að vera til þá eru jólin sérstak- lega erfið.“ Steinunn Anna verður vör við að fyrri skjólstæðingar sæki aftur til hennar í desember. „Jólin eru mjög tilfinningaþrunginn tími og þau virðast ýfa upp tilfinningar okkar, hvort sem þær eru gleðilegar eða erfiðar.“ En hvað ráðleggur hún þeim sem glíma við erfiðar hugsanir á aðvent- unni og í kringum jól að gera? „Það er sérstaklega gaman að eiga kærasta á jólunum og það er enn þá þungbærara að vera einhleyp/ur á jól num (ef þig langar ekki að vera ein- hleypur). Það er frábært að kaupa sér jólakjól þegar þú ert ánægð/ur með útlitið og til hvers að kaupa sér jólaföt þegar maður lítur hvort eð er svona illa út? Allt sem er æðislegt verður stór- kostlega æðislegt og allt sem er ömur- legt verður óyfirstíganlega ömurlegt. Næstum allir hjónaskilnaðir sem ég hef orðið vitni að í kringum mig hafa átt sér stað í nóvember eða desember. Ég er ekki viss um að við ættum að taka stórar ákvarðanir um lífið á þessum árstíma. Ef þú hefur einhvern tímann kynnst miklum missi þá finnur þú fyrir því á þessum árstíma. Ef þú ert ekki á góðum stað í lífinu, þá hellist sorgin yfir þig af fullum þunga, eða eru þetta fyrstu jólin eftir mikinn missi? Ef þér líður vel með líf þitt í dag eða lengra er liðið frá missi þá verður þetta svona ljúfsár tilfinning. Þú situr á jólatónleikum og kórinn byrjar að syngja Nóttin var sú ágæt ein og þú ert full/ur af gleðisorg, eins og gulbláu kúlurnar í Inside Out (ef þú hefur ekki séð hana, mæli ég með henni). Grátur sem felur í sér sorg/þakk- læti fyrir að vera ekki á þeim stað sem þú varst á einu sinni á jólunum er mjög gefandi. Þá geta jólin verið ofboðslega góður árstími þó að stutt sé í erfiðar tilfinningar og grátinn. Þú, sem langar ekki að vera til akk- úrat núna, bíddu bara aðeins. Kveiktu samt á kertum, gráttu dálítið, taktu á móti sorginni, dep- urðinni og einmanaleikanum með eins mikilli hlýju og þér er unnt. Ekki gera ráð fyrir að þér muni líða svona illa á nýju ári. Þetta eru líka bara þessi jól, segir Steinunn Anna.“ astahrafnhildur@frettabladid.is Jólin eru ekki alltaf gleði og gaman Jólin með öllu sínu glimmeri og glitri eru í huga flestra tími gleði og hamingju, en raunin er sú að þessi hátíð vekur einnig upp kvíða og depurð hjá fjölmörgum. Ýmislegt er samt hægt að gera. Steinunn Anna Sigurjónsdóttir ráðleggur þeim sem kvíða jólunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Góð ráð fyrir þá sem eru einir og einmana á jólum l Gefðu þér leyfi til að gera það sem þig langar til eins og þér veitist kostur á. l Er komin sería á Netflix sem þig langar að sjá? l Ertu búin að spila Witcher III í PS4? l Gætir þú hugsað þér að fara í heitt bað með nýjustu bókina hennar Yrsu? l Göngutúrar í upplýstum kirkju­ görðum eru notalegir, líka heimsóknir til ömmu og afa. l Áttu vin sem þú hefur ekki heyrt í lengi, sem væri til í koma með þér í bíó eða kíkja í kaffi? l Áttu pening og gætir þess vegna ákveðið að fara til Taí­ lands yfir jólin? l Áttu hlýja sokka og náttslopp til þess að ganga um í heima hjá þér? l Gætir þú hugsað þér að baka lakkrístoppa (það er mjög ein­ falt og ódýrt)? l Jólin geta verið falleg, líka fyrir okkur sem langar stundum ekki að vera til. 2 1 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r78 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð 2 1 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 7 F B 0 9 6 s _ P 0 9 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 9 3 -6 A F 4 1 E 9 3 -6 9 B 8 1 E 9 3 -6 8 7 C 1 E 9 3 -6 7 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.