Morgunblaðið - 03.06.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
Vöruhús veitingamannsins
allt á einum stað
Höfðabakka 9 | 110 Reykjavík | Sími 595 6200 | bakoisberg.is
Opið virka daga kl. 8.30-16.30
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Vandaðar þakrennur
Allir fylgihlutir fáanlegir
Frábært
verð!
Sjá verðlista á:
www.murbudin.is
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Forgangsröðun ráðherra ogþingmanna kemur stundum á
óvart. Nefna má að velferð-
arráðherra lagði allt undir til að fá
samþykkt frumvarp um jafn-
launavottun, sem
mun hlaða kostnaði á
atvinnurekstur í
landinu, sennilega án
þess að það skili
nokkrum árangri.
Á sama tíma er af-greiðslu frum-
varps ráðherrans um
notendastýrða per-
sónulega aðstoð
(NPA) við fatlað fólk
leyft að frestast.
Annað dæmi umforgangsröðun er að finna í
fjármálaáætlun fjármálaráðherra
til 2022. Í nefndaráliti meiri hluta
fjárlaganefndar um fjármálaáætl-
unina má lesa að raunaukning á
framlögum til Ríkisútvarpsins eigi
að vera 23,2% á gildistíma fjár-
málaáætlunarinnar.
Á sama tíma er gert ráð fyrir aðframlag til almanna- og rétt-
aröryggis skuli aukast um 2,8%.
Framlag til háskólamenntunarskuli aukast um 7,7%.
Framlag til málefna aldraðraskuli aukast um 13,1%.
Hafa starfsmenn Ríkisútvarps-ins virkilega svona mikil tök á
ráðherrum og þingmönnum?
Eða getur verið að þingmennséu þeirrar skoðunar að Ríkis-
útvarpið skuli vaxa um 23,2% á
sama tíma og útgjöld aukist að
meðaltali um 13%?
Varla.
Þorsteinn
Víglundsson.
Er Ríkisútvarpið
forgangsmál?
STAKSTEINAR
Benedikt
Jóhannesson.
Veður víða um heim 2.6., kl. 18.00
Reykjavík 9 rigning
Akureyri 8 rigning
Nuuk 3 heiðskírt
Þórshöfn 10 léttskýjað
Ósló 9 skýjað
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 12 heiðskírt
Helsinki 7 skýjað
Lúxemborg 23 léttskýjað
Brussel 26 heiðskírt
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 20 þrumuveður
París 20 þrumuveður
Amsterdam 23 heiðskírt
Hamborg 23 heiðskírt
Berlín 25 heiðskírt
Vín 26 léttskýjað
Moskva 6 léttskýjað
Algarve 25 léttskýjað
Madríd 31 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 26 heiðskírt
Aþena 29 heiðskírt
Winnipeg 25 léttskýjað
Montreal 11 alskýjað
New York 21 heiðskírt
Chicago 25 léttskýjað
Orlando 28 rigning
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:17 23:36
ÍSAFJÖRÐUR 2:30 24:33
SIGLUFJÖRÐUR 2:10 24:19
DJÚPIVOGUR 2:36 23:16
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lokahnykkur Hreyfiviku UMFÍ er
um helgina og eru aðstandendur
átaksins ánægðir með undirtekt-
irnar. „Þetta hefur gengið frábær-
lega vel,“ segir Sabína Steinunn
Halldórsdóttir, landsfulltrúi hjá
UMFÍ. „Í þessari
átaksviku í Evr-
ópu eru flestir
viðburðir skráðir
á Íslandi auk
þess sem við höf-
um verið fyrirmynd hvað varðar að
fá stóra bakhjarla fyrir verkefnið og
hugmyndir úr grasrótinni.“
Fjölbreytni á Akranesi
Íþróttabandalag Akraness hefur
boðið upp á mjög fjölbreytta dag-
skrá alla vikuna. Þar má nefna
gönguferðir, göngu á línu, hlaupa-
æfingar, kraftlyftingar, vatns-
leikfimi, sjósund, samflot, hreyfi-
stjórn, körfubolta og fleira.
Hildur Karen Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri ÍA, segir að vel
hafi gengið vegna sameiginlegs
átaks flestra aðildarfélaga. Allir hafi
gefið vinnu sína og frítt hafi verið á
alla viðburði. Hún hafi haldið úti
síðu á Facebook, Hreyfivika á Akra-
nesi, og þar hafi hún sett reglulega
inn myndir og fleira. „Það var til
dæmis fullt í fimleika fyrir full-
orðna, eins í samflotinu og hreyfi-
stjórnun var mjög vinsæl,“ segir
hún. „Akranes er mikill hjólabær og
hjólakynningu hjá hjólahópnum var
vel tekið.“ Hildur bætir við að þrjár
gönguferðir á Akrafjall hafi verið
vinsælar og skemmtilegt hafi verið
að sjá hvað margir hafi viljað reyna
sig í kraftlyfting-
um. Klifurfélagið
hafi boðið upp á
klifuræfingar og
sennilega hafi
ekki víða annars
staðar verið boðið upp á að ganga á
línu.
Fjölbrautaskólinn á Akranesi er
heilsueflandi framhaldsskóli og
kominn í frí. Hildur segir það mið-
ur, því á næsta ári vilji hún höfða
meira til skólanna, en nægur tími sé
til þess að finna lausn á því. „Áhug-
inn er mikill og við erum rétt að
byrja,“ segir hún.
Sabína áréttar að UMFÍ hafi það
alltaf að leiðarljósi að allar vikur
séu hreyfivikur. Öflugir boðberar
um allt land hafi gert þessa hreyfi-
viku sérstaka, þar sem í boði hafi
verið yfir 400 viðburðir. Að loknu
átakinu fari nöfn boðberanna í pott
og verðlaunahafar verði dregnir út í
næstu viku. „Allir boðberar eiga því
möguleika á að vinna glæsileg verð-
laun,“ segir hún.
Hreyfivika á Akranesi Anna Bjarnadóttir og Dóra Björk Scott á Akrafjalli.
Flestir viðburðir
skráðir á Íslandi