Morgunblaðið - 03.06.2017, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
skrifstofur Áburðarverksmiðjunnar.
Skipulag svæðisins sé á vissan hátt
tilraunaverkefni. Mikilvægt sé að
fyrirtæki hafi þar rými til að vaxa.
Hann segir aðspurður svæðið geta
orðið ódýrara en t.d. miðborgin.
„Ef okkur ber gæfu til að leyfa
þessu að vera hrátt og öðruvísi án
þess að leggja út í dýra bílakjallara
eða slíkt á þetta að geta verið það.“
Bátar tengi borgarhluta
Hér fyrir ofan má sjá drög að
nýrri bryggju í Gufunesinu. Dagur
segir hugmyndir um að sundastrætó
sigli þaðan til miðborgarinnar, t.d. að
Hörpu. Þá sé í skoðun að koma við í
Bryggjuhverfinu og víðar. Hann úti-
loki t.d. ekki siglingar í Kársnes.
„Við höfum falið umhverfis- og
skipulagssviði að kanna raunhæfni
bátasamgangna milli miðborgarinn-
ar og Gufuness. Eins og skipulags-
samkeppnin um Gufunes dró fram er
þetta mjög áhugaverður kostur fyrir
þá sem eru að fara frá Gufunesinu í
miðbæinn. Siglingin tekur stuttan
tíma og þetta er þægilegur og
skemmtilegur ferðamáti sem myndi
ekki skapa jafnmikla umferð og ef
við myndum fara hefðbundar leiðir.
Við ætlum jafnframt að hefja til-
raunasiglingar milli Reykjavíkur og
Akraness um miðjan júní,“ segir
Dagur og víkur að þeim möguleikum
sem nýja Akraborgin muni skapa.
„Ef þú getur skutlast með nýju
Akraborginni á innan við 30
mínútum og siglt inn í miðborgina og
verið þar í seilingarfjarlægð við
næstu hjólaleigu, þar sem þú getur
rúllað þér út í háskóla eða hvert sem
er, þá ertu alls ekki lengra ofan af
Skaga en frá ýmsum öðrum ná-
grannasveitarfélögum borgarinnar,“
segir Dagur B. Eggertsson.
Nýtt kvikmyndaþorp að rísa
Áformað er að hefja kvikmyndagerð í húsi gömlu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi fyrir áramót
Borgarstjóri boðar siglingar með „sundastrætó“ Muni draga úr annarri umferð frá Grafarvogi
Mikið rými Páll Hjaltason hefur teiknað skrifstofur fyrir RVK Studios í „bragganum“.Nýtt hverfi Hugmyndir eru um blandaða byggð með atvinnustarfsemi og íbúðum.
Morgunblaðið/Hanna
Á jarðhæð Unnið er að því að taka niður gamlan búnað og tæki.
Á útleið Gamli búnaðurinn verður sendur í endurvinnslu.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Framkvæmdir við að breyta gömlu
Áburðarverksmiðjunni í kvikmynda-
ver standa yfir og er stefnt að því að
hefja þar framleiðslu fyrir áramót.
Iðnaðarmenn eru að sjóða í sund-
ur tæki og búnað sem áður var hluti
af verksmiðjunni. Með því lýkur
kafla í iðnsögu Íslands en um leið
hefst nýr kafli í kvikmyndagerðinni.
Hér á síðunni má sjá drög að því
hvernig húsakynnin munu líta út.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir áformað að svæðið verði mið-
stöð skapandi greina. Þá verði þar
jafnvel yfir þúsund íbúðir.
Nýtt deiliskipulag í haust
Hann rifjar upp að í fyrrahaust
sigraði arkitektastofan Jvantspijker
+ Felixx í hönnunarsamkeppni um
nýtt Gufunes. Hann reiknar með að
nýtt deiliskipulag liggi fyrir í haust.
Hann segir RVK Studious, Kukl
tækjaleigu, Félag kvikmynda-
gerðarmanna, IRMU leikmynda-
gerð og ýmis fyrirtæki munu verða
frumbyggja í nýja kvikmyndahverf-
inu. Kvikmyndafólkið vilji taka
svæðið í notkun sem fyrst. Fjöldi
fyrirtækja vilji hafa þar aðsetur.
Dagur segir Félag kvikmynda-
gerðarmanna munu verða með skrif-
stofuhótel í húsnæði þar sem voru
Teikning/Páll HjaltasonTeikning/Jvantspijker + Felixx
Teikning/Páll Hjaltason
Mikil breyting „Gamli bragginn“ mun taka stakkaskiptum.
Páll Hjaltason arkitekt hefur unnið
að endurhönnun gömlu Áburðar-
verksmiðjunnar
svo hún henti
undir starfsemi
RVK Studios.
Verksmiðjan var í
mörgum húsum
og kallar Páll
þennan hluta
„gamla bragg-
ann“. Á mynd hér
fyrir ofan er sýnt
þversnið af
bragganum. Til
glöggvunar á stærðinni hefur þar
verið teiknuð inn farþegaþota.
Gætu þurft mikinn mannskap
Páll segir húsið um 3.200 fermetra
og með 13 metra lofthæð í sal.
„Þetta gæti orðið mjög stór vinnu-
staður. Kvikmyndagerðarfólkið tal-
ar um að allt að 200 manns geti starf-
að við verkefnin,“ segir Páll.
Páll segir aðspurður að fram-
kvæmdir þurfi ekki að taka langan
tíma. Það þurfi enda ekki að byggja
húsin heldur aðeins að innrétta þau.
„Ég hef verið að endurskipuleggja
vélahúsið sem er utan á bragganum
þar sem kvikmyndaverið verður. Þar
verður innréttað skrifstofuhús-
næði,“ segir Páll um vesturhlutann.
Þök hönnuð fyrir sprengingar
Það þurfi meðal annars að skipta
um lagnir og leggja ljósleiðara svo
svæðið henti undir starfsemina.
Páll bendir á að þakið á sumum
byggingunum sé ekki áfast þeim,
heldur liggi þökin á þyngd sinni. Sú
hönnun hafi tekið mið af hættunni á
sprengingum í gömlu Áburðarverk-
smiðjunni. Það hafi verið talið betra
að þakið lyftist upp en að veggir
þrýstust út við sprengingu.
Hann segir heildarmynd svæðis-
ins munu skýrast þegar búið er að
vinna tillögur upp úr vinningstillög-
unni sem kynnt var í fyrrahaust.
Hann segir borgina sjá fyrir sér að
norðurhluti svæðisins þróist fyrst.
Ákveðin kaflaskil verði með því að
Íslenska gámafélagið fari 2022.
„Þróunarsvæðið mætti vel lengi
vera að byggjast upp. Hér mætti
lengi hafa lóðir og aðstöðu fyrir
fyrirtæki til að flytja hingað. Þegar
hér er kominn kjarni með sambæri-
legri starfsemi er gott að geta bætt í
hópinn. Það styrkir það sem fyrir er.
Þá er ágætt að vera ekki búinn að
klára uppbygginguna.“
Rúmar hundruð
starfsmanna
Arkitekt endurhannar „braggann“
Páll
Hjaltason.