Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Ný og stærri verslun
Spennandi opnunartilboð
Kr. 5.900
Str. s-xxl
Opið í dag 11-16
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Blúndu
toppar
Við höfum lækkað vöruverð í samræmi við tolla og gengi Kringlunni 4c – Sími 568 4900
FLOTT Í
SUMAR
Buxur
6.995,-
Bolur
4.995,-
Peysa
4.995,-Jakki
10.995,-
Tunika
9.995,-
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Nýtt frá
GERRYWEBER
Rómantískt
og töfrandi
Sömu verð og á hinum
Norðurlöndunum
Fylgdu okkur á facebook.com/laxdal.is
Laugavegi 63, Skipholti 29b • S. 551 4422
Fyrir þremur dögum hófst nætur-
innritun í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og er innritunin opin frá
miðnætti kvöldið fyrir morgun-
flug. Fyrst um sinn verður þetta
einungis í boði fyrir þá farþega
Icelandair, WOW og Primera Air
sem eiga morgunflug. Guðni Sig-
urðsson, upplýsingafulltrúi Isavia,
segir að næturinnritunin sé við-
brögð við auknu álagi en oft voru
hundruð farþega mættir við innrit-
unarborðin á morgnana. „Við vor-
um oft að eiga við það að nokkur
hundruð manns voru að bíða á
nóttunni eftir því að geta innritað
sig, morguninn eftir myndaðist
síðan nokkur örtröð í flugstöðinni.
Þetta er því gert til þess að létta á
álaginu við innritun og örygg-
isleit,“ segir
Guðni.
Til að byrja
með verður næt-
urinnritunin til
reynslu út júní
og einungis fyrir
farþega fyrr-
greindra flug-
félaga. Guðni
segir að fylgst
verði með þró-
uninni í júní og svo tekin ákvörðun
um hvort framhald verði á. „Þetta
hefur farið ágætlega af stað, á
bilinu 300-400 manns hafa nýtt sér
þetta fyrstu tvær næturnar. Það er
strax munur á ásýndinni í innrit-
unarsal á morgnana.“
aronthordur@mbl.is
Opnað fyrir næturinnritun í Leifsstöð
Örtröð Fjölmenni í
Leifsstöð.
Tvær konur frá kúrdíska hluta
Tyrklands halda fyrirlestra í Iðnó í
dag kl. 12. Ebru Günay var í lög-
fræðingateymi Öcalans og var
fangelsuð fyrir vikið. Hinn fyrirles-
arinn er Havin Guneser sem er
mjög fróð um málefni Kúrda.
Um málefni Kúrda
Elín Margrét Böðvarsdóttir
elinm@mbl.is
Þorsteinn Víglundsson, félags- og
jafnréttismálaráðherra, og Björt
Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, kynntu í gær nýjan sátt-
mála um húsnæðismál með 14 að-
gerðum til að bregðast við þeim
vanda sem að er á húsnæðismarkaði.
Við sama tækifæri undirrituðu
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og
efnahagsráðherra, og Dagur B. Egg-
ertsson, borgarstjóri Reykjavíkur-
borgar, viljayfirlýsingu um aukið
framboð lóða á höfuðborgarsvæðinu.
Húsnæðismarkaðurinn brást
Í samtali við mbl.is sagði Þor-
steinn að að húsnæðismarkaðurinn
hefði tvívegis á síðastliðnum áratug-
um brugðist fólkinu í landinu og með
þessu verkefni væri verið að koma í
veg fyrir að slíkt gerðist aftur. „Í
stuttu máli er niðurstaðan sú að hér
vantar 9.000 íbúðir á næstu þremur
árum,“ sagði Þorsteinn.
Nokkrir þættir sem snúa að þess-
um aðgerðum felast í breytingu laga
og reglna.
Þá verða gjaldtaka innviða eða
samfélagsgjald skoðað og metið
með það að markmiði að hvati verði
til þess að byggja smærri íbúðir, en
einnig er stefnt að því að settir
verði hvatar til almennrar notkun-
ar íbúðarhúsnæðis, m.a. innheimtu
tómthúsagjalds og með skattaleg-
um hvötum, fræðsla til leigjenda og
leigusala verður aukin og reglu-
verk byggingamála verður einfald-
að.
Þá á einnig að flýta fyrir og fjölga
sértækum húsnæðisúrræðum fyrir
fatlað fólk og leita leiða til þess að ná
niður kostnaði við byggingu slíkra
úrræða.
„Við ætlum að með þessum að-
gerðum getum við hraðað því að
jafnvægi náist aftur á fasteigna-
markaði þannig að við metum þetta
svo að með þessum aðgerðum myndi
jafnvægi nást í kringum árið 2019,“
sagði Þorsteinn.
Markaðurinn hef-
ur brugðist of oft
Húsnæðissáttmáli var kynntur í gær
Deiliskipulag ekki samþykkt
Í frétt gærdagsins um deilu íbúa
Árbæjar við Reykjavíkurborg kom
fram að Reykjavíkurborg hafi breytt
deiliskipulagi fyrir Elliðaárdalinn,
en slíkt er ekki rétt. Um er að ræða
tilkynningu um breytt deiliskipulag
sem viðmælendur sáu í fjölmiðlum
en nýtt deiliskipulag hefur ekki ver-
ið samþykkt. mhj@mbl.is
LEIÐRÉTT