Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 20

Morgunblaðið - 03.06.2017, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager og á leiðinni Sími 4 80 80 80 2017 Ford F-350 Lariat 6,7L Diesel , 440 Hö, 925 ft of torque með upphituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver altert-pakki og Trailer tow camera system. VERÐ 9.290.000 2017 Suburban LTZ Perluhvítur Suburban LTZ, Cocoa Dune að innan. Keyrður 12 þús. km. 7 manna bíll með 4 kapteinsstólar, Blu Ray spilari með tvo skjái, sóllúga og fl. 5,3L V8, 355 hö. VERÐ 12.990.000 2017 Chevrolet Silverado High Country Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upp- hitað stýri, BOSE hátalaraker- fi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Einnig til hvítur. VERÐ 9.590.000 2017 GMC Denali Með sóllúgu, heithúðaðan pall, hita í styri og fl. Nýja 6,6L Duramax Diesel vélin 445 hö. Einnig til hvítur og Dark Slate. VERÐ 9.890.000 Ath að myndin er af sambærilegum bíl 3. júní 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 98.78 99.26 99.02 Sterlingspund 126.82 127.44 127.13 Kanadadalur 73.15 73.57 73.36 Dönsk króna 14.897 14.985 14.941 Norsk króna 11.681 11.749 11.715 Sænsk króna 11.322 11.388 11.355 Svissn. franki 101.85 102.41 102.13 Japanskt jen 0.8883 0.8935 0.8909 SDR 136.58 137.4 136.99 Evra 110.84 111.46 111.15 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 137.9085 Hrávöruverð Gull 1260.95 ($/únsa) Ál 1929.0 ($/tonn) LME Hráolía 51.17 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Íslensk verðbréf hafa lokið fyrsta áfanga í fjármögnun fyrir þrjá milljarða króna á nýjum framtakssjóði sem ber heitið TFII slhf. Hluthafar eru lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar, alls 18 talsins. Sjóðurinn mun fjárfesta í eignarhlutum í félögum með trausta rekstrarsögu og taka virkan þátt í uppbyggingu og virðis- aukningu þeirra. TFII mun meðal ann- ars horfa til fjárfestingatækifæra á landsbyggðunum. Stefnt er að því að ljúka síðari hluta fjármögnunar sjóðsins fyrir árslok og að stærð hans verði þá fimm milljarðar króna, segir í tilkynn- ingu. Framkvæmdastjórar sjóðsins verða tveir: Sigþór Jónsson, fram- kvæmastjóri Íslenskra verðbréfa, og Jón Steindór Árnason. Hann hefur á undanförnum árum m.a. stýrt fjárfest- ingafélaginu Tækifæri, en það fjárfestir í nýsköpun á Norðurlandi. Íslensk verðbréf voru í árslok 2016 með tæpa 130 milljarða króna í virkri stýringu fyrir viðskiptavini sína. Íslensk verðbréf með þriggja milljarða sjóð BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Fasteignafélagið Heimavellir hyggst afla frekara hlutafjár með skráningu á hlutabréfamarkað síðar á árinu, á fjórða ársfjórðungi, til þess að styðja við vöxt félagsins, að sögn Guð- brands Sigurðssonar framkvæmda- stjóra. Stjórnendur félagsins stefna að því að kaupa 400 íbúðir á næstu 18-24 mánuðum, einkum á höfuð- borgarsvæðinu. Það á nú um tvö þús- und íbúðir. Iða Brá Benediktsdóttir, fram- kvæmdastjóri fjárfestingarbanka- sviðs Arion banka, benti á að um yrði að ræða fyrstu skráningu frá fjár- málahruninu 2008 þar sem fyrirtæki aflar aukins hlutafjár. Þetta kom fram á Kauphallardögum Arion banka. Tekjur jukust um milljarð Heimavellir er stærsta almenna leigufélag landsins. Félaginu var komið á fót árið 2014 og hefur fyrst og fremst vaxið með kaupum á eignasöfnum og sameiningum við leigufélög. „Við höfum ekki verið að kaupa eignir á markaði,“ sagði hann. Leigutekjur námu 1,5 milljörðum króna í fyrra og jukust um milljarð á milli ára. Um þessar mundir eru hluthafar um 80. Viðskiptafélagarnir Tómas Kristjánsson og hjónin Finnur Reyr Stefánsson og Steinunn Jónsdóttir eru stærstu hluthafar Heimavalla með 23% hlut í gegnum þrjú félög á þeirra vegum. Guðbrandur sagði að félagið eigi erindi í Kauphöll og að eðlismunur væri annars vegar á starfsemi fast- eignafélaga sem leigja út íbúðir og hins vegar þeirra sem leigja út at- vinnuhúsnæði, eins og fasteigna- félögin þrjú sem fyrir eru í Kauphöll- inni. Hann sagði að leiguverð og íbúða- verð hafi haldist í hendur frá árinu 2011 til 2014 en þá hafi fasteignaverð hækkað mun skarpar en leiguverð. „Leiguverð mun ekki fara í sömu hæðir og fasteignaverð en að sama skapi mun það ekki fara í sömu dali og íbúðaverð,“ sagði Guðbrandur. Á árunum fyrir hrun bjuggu 13- 14% íbúa landsins í leiguhúsnæði en eftir fjármálahrunið 2008, þegar margir misstu heimili sín, fjölgaði hratt á leigumarkaði. „Undanfarin ár hefur hlutfallið haldist stöðugt í 22-23% og við reiknum ekki með að það verði mikil breyting á því hlut- falli,“ sagði hann. Vaxtartækifæri Heimavalla liggja meðal annars í því að leigja þeim sem eru á eftirlaunaaldri í meira mæli. Eins og sakir standa eru 28% leigj- enda 20-29 ára og 30% eru 30-39 ára. Bróðurpartur leigjenda er því undir fertugu, eða 58%. Hlutfall viðskipta- vina á aldrinum 40-49 er 18%, hlut- fall þeirra sem eru á aldrinum 50-59 er 12%, 60-69 ára er 8% og þeir sem eru sjötugt og eldri eru 5%. „Þjóðin er að eldast hratt. Á næstu 20 árum mun þeim sem eru 68 ára og eldri fjölga um 30.000,“ sagði hann. Um er að ræða hóp sem oft á stærri heimili og mun minnka við sig. „Ef það eru 1,5 á hverju heimili að meðaltali þarf íbúðum að fjölga um 900 á ári fyrir þennan hóp,“ sagði hann. Kynslóðirnar sem fæddar eru á árunum 1955-1960 og síðar eigi „verulega“ betri lífeyriséttindi en þeir sem eldri eru.. „Þau munu því hafa meiri fjárráð,“ sagði hann. Tveir risar Landslagið á almenna leigumark- aðnum hefur breyst hratt, að sögn Guðbrands. Á fáeinum árum hafa risið tvö stór leigufélög. Heimavellir á um tvö þúsund íbúðir og Almenna leigufélagið á um 1.400, að hans sögn. Að öðru leyti byggist markað- urinn fyrst og fremst á einstakling- um sem mögulega eigi eina til fimm íbúðir. Áætlað er að almenni leigu- markaðurinn á höfuðborgarsvæðinu telji 16.500 íbúðir Nýta skráningu til að styðja við vöxt Morgunblaðið/Eggert Leiga Heimavellir eiga m.a. íbúðir við Tangabryggju í Bryggjuhverfinu. Stærsta leigufélagið » Heimavellir eru stærsta almenna leigufélag landsins og á um tvö þúsund íbúðir. » Félaginu var komið á fót árið 2014 og hefur fyrst og fremst vaxið með kaupum á eigna- söfnum og sameiningum við leigufélög » Það stefnir á hlutabréfa- markað síðar á árinu og hyggst afla fjár til frekari vaxtar. » Hluthafar eru 80.  Heimavellir fyrstir frá hruni til að sækja fé við skráningu Þjónustujöfnuður var 43,1 milljarður króna á fyrsta ársfjórðungi sam- kvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í vikunni. Það er 44% meiri afgangur á þjónustuviðskiptum en á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Í umfjöllun í Hagsjá hagfræði- deildar Landsbankans um þróun þjónustuviðskipta er bent á að án vaxtar í ferðaþjónustu hefði jöfnuð- urinn dregist saman. Þjónustuútflutningur nam 126 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi og jókst um 11,3% á milli ára. Lands- bankinn bendir á að hlutdeild ferða- þjónustu í þjónustuútflutningi hafi verið um 72% í síðasta fjórðungi, en til samanburðar var þetta hlutfall 49% árið 2013. Ferðaþjónusta í þjónustujöfnuði skiptist annars vegar í ferðalög, sem eru öll útgjöld erlendra ferðamanna hér á landi, og hins vegar farþega- flutninga með flugi, sem eru útgjöld erlendra ferðamanna til íslenskra flugfélaga hvort sem þeir koma hing- að til lands eða ekki. Landsbankinn bendir á að á síðustu árum hefur lið- urinn ferðalög vegið mun þyngra til aukningar útflutnings en farþega- flutningar, sem rekja má til gríðar- legrar fjölgunar erlendra ferða- manna hér á landi á síðustu árum. Farþegaflutningar hafa á hinn bóg- inn þróast meira í takt við alþjóð- legan vöxt ferðaþjónustu í heimin- um. Þjónustuinnflutningur nam 83 milljörðum króna og dróst lítillega saman á milli ára. Morgunblaðið/Ómar Ferðamenn Þjónustuútflutningur jókst um 11,3% á fyrsta fjórðungi. Þjónustuafgangur jókst um 44% á fyrsta fjórðungi  Ferðaþjónustan nemur nú yfir 70% af þjónustuútflutningi Bílar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.