Morgunblaðið - 03.06.2017, Síða 31

Morgunblaðið - 03.06.2017, Síða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017 ✝ Þorsteinn Ósk-arsson fæddist 26. nóvember 1945 á Firði í Múla- hreppi, Austur Barðastrandar- sýslu. Hann lést 25. maí 2017. Hann var sonur hjónanna Óskars Þórðarsonar hreppstjóra, f. 10. mars 1910, d. 19. apríl 1979, og Ólafíu Kristínu Þorsteinsdóttur húsmóður, f. 25. ágúst 1915, d. 18. apríl 2012. Systkini Þorsteins voru Jens Valgeir, f. 1941, Einar, f. 1944, Þórður, f. 1947, Bergljót Ósk, f. 1953, Óskar Kristinn, f. 1957, d. 15. mars 1987, og Brynjólfur, f. 1958. Þorsteinn giftist Hrönn Ágústsdóttur, f. 1.4. 1951, þann 30.12. 1972. Hún er dóttir Matthildur Bylgja, f. 2014. 3) Brynjar Davíð, f. 6.11. 1980, maki Natalie Anne Pearce, f. 1987. Þau eiga tvo syni: a) Erik Jón Þorsteinn, f. 2015, og b) Leon Alexander, f. 2017. Þorsteinn ólst upp við hefð- bundin sveitastörf og gekk í fjarskóla í sveitinni. Hann var 16 ára gamall þegar hann fór fyrst á sjóinn á Tálknafirði. Hann lauk 2. stigi í Stýrimannaskólanum vorið 1970. Lengst af starfaði hann sem skipstjóri á hinum ýmsu bátum, bæði hjá öðrum og sín- um eigin. Má þar nefna Höfr- ung II GK 27 og Sandvík GK 325. Hann starfaði hjá Bláa lóninu sem næturvörður í fimm ár, fór þaðan að vinna í Grindavíkurhöfn sem hafn- arvörður og vann þar í 10 ár þar til hann þurfti að hætta vegna aldurs. Hann var heiðr- aður af sjómanna- og vélstjóra- félagi Grindavíkur fyrir störf sín á sjónum á sjómannadaginn 2016. Útför Þorsteins fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 3. júní 2017, klukkan 13. hjónanna Matt- hildar Sigurð- ardóttur frá Grindavík, f. 1.6. 1914, d. 10.9. 2005, og Sveinbjörns Ágústs Sigurðs- sonar frá Skaga- strönd, f. 11.8. 1906, d. 28.6. 1975. Þorsteinn og Hrönn áttu saman þrjú börn, þau eru: 1) Ólafía Kristín, f. 21.12. 1971, maki Jóhann Björn Elíasson, f. 1971. Þau eiga tvö börn: a) Hrönn María, f. 1992, maki Karl Martin Lövstad, f. 1988. Þau eiga saman tvo syni: Emil, f. 2011 og Oliver, f. 2015. b) Elías Bjarni, f. 2002. 2) Sal- björg Júlía, f. 6.7. 1975, maki Magnús Már Jakobsson, f. 1969. Þau eiga tvær dætur: a) Elísabet María, f. 2001, og b) Elsku pabbi minn. Mitt hjarta er brostið og púsl í það vantar. Þú fórst allt of fljótt frá okkur og héldum við í vonina til síðasta dags og erfitt var að horfa á veikindin sem drógu af þér á degi hverjum. Ég á svo margar góðar minningar með þér – jól, áramót, páska, útilegur, sum- arbústaðaferðir, utanlandsferðir, ferðir í sveitina, alla rúntana hvort sem var á bryggjuna eða skoða landið okkar eða bæjar- ferðirnar. Öll matarboðin og varst þú sérstaklega duglegur og iðinn við heimilisstörfin hvort sem það var matargerð, þvottur eða þrif. Þú varst fljótur til verka. Einstaklega handlaginn ef eitthvað bilaði og þurfti að líma eða gera við. Hjálpsamur og fannst lítið mál að skutlast í bæ- inn eftir hinu og þessu. Ráðagóð- ur varstu og leitaði ég mikið til þín eftir ráðum. Þú áttir það til að vera svartsýnn og vil ég meina að ég hafi það frá þér að búa mig undir það versta og þá verð ég svo glöð ef hlutirnir fara betur en ég taldi í fyrstu. Ég var oft beinskeytt við þig og veit ég vel að þú varst ekki alltaf sáttur við mig, hvernig ég skellti orðum mínum fram en alltaf tókstu því. Þú varst ekki sáttur þegar ég hringdi á Landspítalann og pant- aði tíma í kæfisvefnsmælingu en þegar þú fannst að vélin hjálpaði þér og þú fannst mun á svefn- inum þá sættir þú þig við tækið og mig. Þú varst frábær afi og finnst mér það miður að Matt- hildur Bylgja fái ekki að eiga eins margar stundir og minning- ar með þér og Elísabet María, eldri dóttir mín. Þú varst alltaf tilbúinn í að skutla, smyrja hjól- ið, segja sögur, fara með vísur, lesa bækur, horfa á leiksýningar og koma á hinar ýmsu uppákom- ur í leikskólanum, grunnskólan- um og íþróttunum. Einnig varstu alltaf tilbúinn að leggja þitt af mörkum í að passa dætur mínar. Þú komst á þorrablót eldri borg- ara til Matthildar í leikskólann á bóndadaginn, þar áttuð þið gæðastund saman. Þú varst mjög söngelskur og elskaðir að syngja og hlusta á tónlist, ég var ekki gömul þegar ég byrjaði að hlusta á plöturnar þínar og syngja með. Lagið Angelína mun alltaf minna mig á þig og heyrði ég þig oft syngja það fallega lag. Þú áttir mjög náið samband við Jens, bróður þinn, og töluðuð þið saman á hverjum degi. Það var margt líkt með þér og Beggu, systur þinni, drifkrafturinn, dugnaðurinn, lundarfarið. Ástarþakkir fyrir allar yndis- legu stundirnar okkar saman og allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Ég er þakk- lát fyrir að hafa fengið að vera hjá þér ásamt mömmu, Stínu og Brynjari þegar þú kvaddir þenn- an heim. Ég kveð þig með orð- unum sem ég sagði við þig á hverjum degi á gjörgæsludeild- inni, bless pabbi minn, ég elska þig, eigðu góða nótt í nótt, sjáumst á morgun. En það verð- ur eitthvað lengra í að við sjáumst, en ég veit að þú munt fylgjast með þínu fólki eins og þér er einum lagið. Að lokum vil ég fyrir hönd mömmu og okkar systkinanna þakka starfsfólki gjörgæsludeildarinnar í Foss- vogi fyrir góða umönnun og stuðning við okkur aðstandend- ur. Einnig viljum við þakka öll- um þeim sem sýndu okkur stuðning og gáfu okkur styrk í veikindum þínum, sérstaklega ber þar að nefna Beggu frænku og Svenna. Elsku mamma, systkini mín, barnabörn, systkini pabba og aðrir aðstandendur, ég og fjöl- skylda mín sendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Minningin um yndislegan pabba mun lifa. Þín dóttir, Salbjörg Júlía. Elsku besti pabbi, orð geta ekki lýst hversu mikilvægur þú varst í lífi mínu og hversu mikið mér þótti vænt um þig. Þetta ljóð finnst mér komast næst því. Guð gaf mér engil sem ég hef hér á jörð Hann stendur mér hjá og heldur um mig vörð Hann stýrir mér í gegnum lífið með ljósi sínu Ég er svo þakklát að hafa hann í lífi mínu Ég vona að hann viti að hann er mér kær Allar mínar bestu hugsanir hann fær Hans gleði og viska við alla kemur Við flestalla honum vel semur Hann stendur mér hjá þegar illa liggur við Hann víkur ekki frá minni hlið Nema sé þess viss að allt sé í lagi Fer þá að vesenast í málarastússi af ýmsu tagi Hann er vandvirkur og iðinn hann sinnir alltaf sínu vel hann segir það aðalatriðin sem er rétt, það ég tel Hann hefur kennt mér að vera þolin- móð og sterk hvetur mig áfram að stunda mín dags- verk „þú skalt alltaf standa á þínu,“ hann ávallt hefur sagt mikla áherslu á það lagt Þótt svo hann segi ekki við mann oft mikið Þá meinar hann alltaf margt Hann getur aldrei neinn svikið það getur hann ekki á neinn lagt Hann er bara þannig maður Hann er bara þannig sál Hann er aldrei með neitt þvaður Hann meinar allt sitt mál Hann sýnir mér svo mikla ást Hann vill aldrei sjá neinn þjást Hann er minn klettur og hann er mín trú Hann er minn besti pabbi, staðreyndin er sú! (Katrín Ruth) Við munum ávallt sakna þín. Við munum ávallt elska þig. Hvíldu í friði. Brynjar Davíð Þorsteinsson og fjölskylda. Það hefur stórt skarð verið höggvið í tengdafjölskyldu mína með fráfalli Þorsteins Óskars- sonar, tengdapabba míns. Hann var frá Firði í Múlasveit við Skálmanes. Ég er virkilega þakklátur fyrir margt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjöl- skyldu, elsku Steini. Fyrsta vandræðalega „mómentið“ okkar var á Þorláksmessu árið 1994 þegar við Salbjörg Júlía, dóttir þín, vorum nýbyrjuð saman og þú skutlaðir mér á flugvöllinn í Reykjavík, til að ég kæmist nú í foreldrahús yfir jólin. Við Sal- björg Júlía vorum að koma af metsíldarvertíð á Hornafirði og ég að tékka mig inn, en farang- urinn of þungur og ég átti ekki eina krónu. Það voru þung spor fyrir mig að ganga til þín og biðja um lán fyrir yfirvigtinni, heilar 1.000 kr., já sjálfstraustið mitt var hrunið, en þér minn kæri fannst ekkert mál að redda þessu. Á þessum tímapunkti hét ég því að ég skyldi ekki verða baggi á þér, elsku Steini, og vona að ég hafi staðið við það. Stuttu seinna bauðst þú mér að koma með þér og Sævari vini þínum á net á Sandvíkinni, sem þið áttuð saman, og með okkur voru líka þeir Jóhann Björn, svili minn, tengdasonur þinn og Viggi frændi þinn. Það var virkilega gaman að róa með ykkur öllum, þvílíkir snillingar allir saman, og annað eins fiskirí hef ég bara aldrei séð. Sex dagar og kvótinn búinn sem átti að duga okkur í tvo mánuði allt upp í 25 tonn á dag í 40 ónýtar netadruslur eins og þú sagðir sjálfur. Mér fannst mikið til þess koma að róa með ykkur félögum, þið voruð að mínu mati miklir fagmenn og þú þvílíkur fiskimaður. Ég fékk svo að róa með þér á nokkrum bátum sem þú áttir einn og notaðir þá sem einhvers konar hobbýbáta. Þér fannst gott og gaman að vera á sjó, varst góður sjómaður, eins hafðir þú skemmtilega frásagn- arhæfileika. Þér fannst nú ekki leiðinlegt að gera þér dagamun og bregða undir þig betri fæt- inum. Síðan gastu verið smá grallari eins og þegar við fórum að versla fyrir klinkið í Minnea- polis og við fylltum eina tösku af sælgæti. Þegar við vorum látnir opna töskuna við innritunarborð- ið, já, það verður bara að segja eins og er að það var ekki öllum skemmt þegar innihaldið blasti við. Þú varst mjög bóngóður og vildir hafa alla í kringum þig góða og kannski eftir á að hyggja var það kannski þinn stærsti galli líka. Dætur mínar fengu oft að kynnast góð- mennsku þinni, sérstaklega El- ísabet María, enda er hún miklu eldri en Matthildur Bylgja, sem er bara að verða þriggja ára en ef ég sagði nei við Elísabetu Maríu þá sagði hún: ok, ég tala bara við afa Steina. Ég mun minnast þín með hlýhug og gera mitt besta til að gera lífið hjá þínu fólki sem bærilegast. Elsku Hrönn, Salbjörg, Stína, Brynjar og fjölskyldur, megi góður Guð hjálpa ykkur í gegnum sorgina og minningin um góðan mann mun hlýja ykkur um hjartaræt- urnar. Kveðja, Magnús Már Jakobsson. Þorsteinn Óskarsson  Fleiri minningargreinar um Þorstein Óskarsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HRAFN BACHMANN, fyrrverandi kaupmaður, lést á dvalarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn 23. maí. Útför hans fer fram í Kópavogskirkju þriðjudaginn 6. júní klukkan 15. Steinunn Þórðardóttir Gunnar Bachmann Margrét Sigurðardóttir Þórður Bachmann Claudia Luckas Guðný Bachmann Ástgeir Kristjánsson Guðrún Bachmann Istvan Seres barnabörn og barnabarnabörn Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför RÚNARS GUÐJÓNSSONAR, Klauf, Vestur-Landeyjum. Hildur Ágústsdóttir Sigurður Á. Rúnarsson Lára Ólafsdóttir Guðjón Rúnarsson Sandra D. Georgsdóttir Þórdís J. Rúnarsdóttir Skúli Guðmundsson Magnús Rúnarsson Elísabet Ó. Helgadóttir S. Lóa Rúnarsdóttir Steindór V. Reykdal Ágúst Rúnarsson R. Smári Rúnarsson Sævar Rúnarsson M. Sóley Sigmarsdóttir Sigurbára Rúnarsdóttir Einar Hjálmarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLFRÍÐUR BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR, Kjarrlundi 2, Akureyri, lést föstudaginn 26. maí. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 9. júní klukkan 13.30. Arnar Daníelsson Magnús Viðar Arnarsson Sólveig Björk Skjaldardóttir Ingibjörg Arnarsdóttir Einar Ólafsson Gunnhildur Arnarsdóttir Jóhann Ólafur Ingvason Bryndís Arnarsdóttir Kristinn Hreinsson ömmu og langömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES GUÐMUNDSSON verkfræðingur, Dalbraut 14, Reykjavík, áður til heimilis að Laugalæk 48, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 1. júní. Útförin verður auglýst síðar. Guðrún María Tómasdóttir Tómas Jóhannesson Pálína Héðinsdóttir Helgi Jóhannesson Gunnlaug Helga Einarsdóttir Sigríður Jóhannesdóttir Skarphéðinn B. Steinarsson Guðmundur Þ. Jóhannesson Laufey Ása Bjarnadóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.