Morgunblaðið - 03.06.2017, Qupperneq 40
40 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2017
Við Við erum meðlagersölu í Síðu-múlanum í dag
svo ég verð að vinna en í
kvöld ætla ég út að
borða með mínum nán-
ustu,“ segir Guðrún Jó-
hannesdóttir, eigandi
verslunarinnar Kokku,
en hún á 50 ára afmæli í
dag. „Við verðum með
opið til klukkan 4 og
jafnvel lengur ef það
verður fullt út úr dyrum
hjá okkur. Síðan verður
lokað hjá okkur á morg-
un vegna hvítasunn-
unnar en annars er opið
sjö daga vikunnar hjá
okkur og alltaf á
netinu.“
Guðrún hefur rekið
Kokku ásamt systrum sín-
um í 16 ár. „Já, maður trúir því varla, það er ótrúlegt hvað tíminn líð-
ur hratt þegar það er nóg að gera. Reksturinn hefur líka vaxið og
dafnað. Við tókum yfir reksturinn á Dúka í Kringlunni 2007 og opn-
uðum aðra búð í Smáralind 2011. Sú búð flutti innan Smáralindar og
stækkaði til muna á síðasta ári.“
Að auki er fjölskyldan með heildsölu sem selur beint til veitinga-
húsa og hótela um allt land. „Mikið af vörunni sem við flytjum inn er
fyrir fagmenn, en fólk gerir ekkert minni kröfur heima í eigin eld-
húsi.“
Mikil umræða hefur verið að undanförnu um ferðamenn í miðborg-
inni og hvers konar áhrif þeir hafa á verslun þar. „Mér finnst gaman
hvað það er fjölbreytt mannlíf í miðborginni og mælingar Reykja-
víkurborgar sýna að heimsóknum Íslendinga hingað niður í bæ hefur
ekki fækkað. Útlendingarnir eru hrein viðbót. Þeir koma oft í Kokku,
en það eru aðallega Íslendingar sem versla við okkur, enda eru ferða-
mennirnir ekki að kaupa potta eða eldavélar.“
Eiginmaður Guðrúnar er Þorsteinn Torfason, en hann sér um að
selja vörur Kokku til veitingageirans. Dóttir þeirra er Una, sem er 18
ára. Dóttir Guðrúnar frá fyrra hjónabandi er Ástríður Jónsdóttir, 25
ára. „Svo fékk ég kaupbæti með manninum mínum, Þór Þorsteinsson
30 ára. Ekki má gleyma hundinum Krumma, en hann fær mann til að
fara út og hreyfa sig. Frítímanum eyði ég með fjölskyldunni, en
sumarfríið í ár fer í að gera upp eldhúsið hjá okkur, enda aðaláhuga-
málið eldhús og eldamennska.“
Frú Kokka Guðrún Jóhannesdóttir.
Verður í vinnunni
fram eftir degi
Guðrún Jóhannesdóttir er fimmtug í dag
R
akel Garðarsdóttir
fæddist í Ósló 3.6.
1977 en ólst upp í
Skaftahlíðinni í
Reykjavík. Hún þurfti
ekki að fara langt í skólann því hún
var í Ísaksskóla og Æfingadeild
Kennaraskólans sem báðir eru í
allra næsta nágrenni og stundaði
síðan nám við MH. Þá var hún eitt
ár í Gommerud-skóla í Bærum í
Noregi og stundaði síðar nám í lög-
fræði við HR: „Á æskuárunum fór-
um við reglulega á sumrin til
Noregs og ég hlakkaði alltaf til að
fara til Ömmu Stjörnu á Stranda.“
Á menntaskólaárunum starfaði
Rakel á Grund, hjá ÁTVR, á Café
au lait og á Kaffibarnum. Hún ferð-
aðist með vinkonum sínum um
Skandinavíu árin 1995 og 1996 og
vann þar jafnframt ýmis störf sem
til féllu.
Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturports – 40 ára
Með eldri börnunum Björn Hlynur og Rakel, með Hlín og Emil Adrian, sem vill bæta heiminn, eins og mamma hans.
Á fullu að bæta heiminn
Yngsti fjölskyldumeðlimurinn Rakel með augasteininn sinn, Jón Marlon.
Selfoss Hilda Linnea
Aðalsteinsdóttir
fæddist 3. júní 2016
kl. 10.19 á Selfossi
og er því eins árs
gömul í dag. Hún vó
3.760 g og var 57 cm
löng. Foreldrar henn-
ar eru Elin Moqvist
og Aðalsteinn Aðal-
steinsson.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einnmánuð.
Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Opið
virka
daga
frá 9-
18
lau fr
á 10-1
6
Bátasaumur
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is
Bátasaumur, bátaspiker og rær
fyrir báta og gömlu húsin
1 1/4“ - 5“
allar stærðir
fyrirliggjandi