Morgunblaðið - 20.06.2017, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Það hefur verið staðfest að þetta
var berghlaup sem féll niður í Kar-
rat-fjörð,“ segir Jón Viðar Sigurðs-
son jarðfræðingur um flóðbylgjuna
sem reið yfir þorpið Nuugaatsiaq á
Grænlandi á laugardagskvöld.
Samkvæmt upplýsingum á vef
grænlenska ríkisútvarpsins er
ástæða berghlaupsins ekki orðin
ljós en mögulegt er talið, að jarð-
skjálfti á vesturströnd landsins hafi
valdið því að skriðan féll.
Níu slösuðust, þar af tveir alvar-
lega eftir að flóðbylgjan gekk á
land í þorpinu. Fjögurra einstak-
linga er enn saknað eftir hamfar-
irnar en þeir eru sagðir hafa verið
staddir í húsi sem skolaðist á haf
út. Mestum hluta íbúanna hefur
verið komið í öruggt skjól en um
ellefu hús eyðilögðust, þar á meðal
skóli og matvörubúð. Flytja þurfti
íbúa þorpsins á brott með þyrlu en
enginn flugvöllur er í nágrenni við
þorpið sem er í Ummanaq-firði um
800 kílómetra norðan við Nuuk.
Hætta á fleiri skriðuföllum
Jón Viðar hefur ferðast mikið um
Grænland og dvaldi meðal annars í
þorpinu í viku, hann segir að um af-
skekkt veiðiþorp sé að ræða. „Þetta
eru rétt rúmlega hundrað inúítar í
afskekktu þorpi við sjóinn sem hafa
lifibrauð af því að sigla á haf út og
veiða og selja fisk.
Jón Viðar segir hættu á öðru
stóru berghlaupi í nágrenni við
Nuugaatsiaq en fyrra hlaupið varð
um 30 kílómetra norðan við þorpið.
„Það hefur komið í ljós að rétt til
hliðar við fyrra berghlaupið hefur
önnur skriða farið af stað. „Það er
hætta á að hún muni einnig falla
niður og valda annarri flóðbylgju.“
Af þessum sökum er enn ekki
talið óhætt að leita þeirra sem
saknað er og hefur grænlenska lög-
reglan gefið út flóðbylgjuviðvörun
til íbúa nálægra byggða. Þorpin
Illoursuit og Niagornat hafa verið
rýmd og eru íbúar í þremur öðrum
þorpum beðnir um að fylgjast vel
með yfirborði sjávar og forða sér til
fjalla ef skyndileg hækkun á sér
stað.
Rauði krossinn viðbúinn
„Við erum í viðbragðsstöðu og
tilbúin að veita aðstoð á næstu dög-
um og vikum. Rauði kross Íslands
hefur boðið fram bæði fjármagn og
sérfræðiþekkingu sína á viðbrögð-
um við neyðarástandi en Rauði
krossinn á Grænlandi er enn að
meta þörfina á utanaðkomandi
hjálp,“ segir Brynhildur Bolladóttir,
upplýsingafulltrúi Rauða kross Ís-
lands.
Hún gerir ekki ráð fyrir því að
íslenski Rauði krossinn muni koma
að fyrstu viðbragðsaðstoð í þorpinu.
„Ég á frekar von á því að við mun-
um aðstoða þá síðar t.d. við að setja
upp viðbragðsáætlun og annað slíkt
ef eitthvað svona kemur fyrir aft-
ur.“
„Vinátta í verki“
Þá hefur Hjálparstarf kirkjunn-
ar, í samvinnu við KALAK, Hrók-
inn og fleiri Grænlandsvini hrundið
af stað landssöfnuninni ,,Vinátta í
verki“ vegna náttúruhamfaranna. Í
tilkynningu frá Hjálparstarfi kirkj-
unnar kemur fram að milli Græn-
lendinga og Íslendinga ríki sterk og
traust vinabönd og vísað til þess, að
þegar snjóflóð féll á Flateyri 1995
hafi verið efnt til landssöfnunar á
Grænlandi og hárri upphæð safnað.
Söfnunarfé rennur óskert til neyð-
arhjálpar og uppbyggingar í sam-
vinnu við sveitarfélagið og hjálp-
arsamtök á svæðinu.
Söfnunarreikningur: 0334-26-
056200 Kennitala: 4506700499
Ljósmynd/Jón Viðar Sigurðsson
Nuugaatsiaq Í flóðbylgjunni eyðilögðust ellefu hús, þar á meðal voru matvörubúð og skóli þorpsins.
Safnað fyrir fórnar-
lömb flóðbylgjunnar
Ekki hægt að leita að fólki vegna hættu á skriðuföllum
Vesturströnd
Grænlands
Nuugaatsiaq
Nuuk
Kulusuk
Davis-
sund
Baffinsflói
GRÆNLAND
Uummannaq-
fjörður
Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri
kirkjuráðs, segir rangt að ráðið hafi
aldrei gefið Stórólfshvolssókn í Rang-
árvallasýslu upplýsingar um hvaða
gögn vanti vegna fyrirhugaðrar
byggingar nýrrar kirkju á Hvolsvelli.
Fjallað var um málið í Morg-
unblaðinu í gær. Oddur segir við
blaðið að gögn um fjármögnunar- og
rekstraráætlun sóknarnefndarinnar
hafi verið óraunhæf.
„Þær áætlanir, sem skilað var inn,
sýndu ekki fram á það að söfnuðurinn
gæti staðið undir rekstrinum,“ segir
Oddur, spurður um þau gögn sem
skilað var til kirkjuráðs frá sókn-
arnefnd. Oddur segir þó að það hafi
verið mistök af hálfu kirkjunnar að
senda verktakamiða til sóknarinnar,
miðinn hafi „aldrei átt að fara úr
húsi“.
Deila kirkjuráðs og Stórólfshvols-
sóknar snýst um hvort styrkur að
fjárhæð tíu milljónir króna hafi verið
bundinn skilyrðum, segir í úrskurði
áfrýjunarnefndar kirkjunnar. Þá var
deilt um orðalag bókunar kirkjuráðs
um styrkveitingu ársins 2010. Skil-
yrði voru um fjármagns- og kostn-
aðaráætlun, auk þarfagreiningar sem
þarfnaðist samþykkis kirkjuráðs.
Kirkjuráð segir sóknarnefndina ekki
hafa uppfyllt skilyrðin. Þar af leiðandi
var styrkur að upphæð tíu milljónir
króna ekki greiddur út.
Í bókun kirkjuráðs frá 2010 segir
að styrkur að upphæð tíu milljónir
króna hafi verið veittur á „yfirstand-
andi ári“. Áfrýjunarnefnd mat það
svo að ritvilla hefði orðið í bókun
kirkjuráðs. Árið 2010 var í gildi styrk-
ur að fjárhæð 4,5 milljónir króna.
Segir í úrskurði að sóknarnefndin
hefði mátt átta sig á að um villu væri
að ræða sem gæti ekki „með réttu
skapað væntingar um úthlutun án
þeirra skilyrða sem getið var um“ hjá
kirkjuráði.
Kirkjuráð segir í svari til Stórólfs-
hvolssóknar árið 2015 að sóknin geti
sótt um styrk úr jöfnunarsjóði sókna
en þá „verða að liggja fyrir þarfa-
greining og raunhæfar áætlanir um
verkið“. axel@mbl.is
Áætlanir sagðar
vera óraunhæfar
Hörð deila kirkjunnar og sóknar-
nefndar Verktakamiðinn mistök
Síðasti dagur strandveiða í júní er í
dag, þriðjudag 20. júní, á svæði A
frá Arnarstapa að Súðavík, sam-
kvæmt auglýsingu Fiskistofu. Við-
miðun mánaðarins er að nást og
verða veiðidagar á A-svæði því alls
tíu í júní, sem er þremur dögum
fleira en í júní í fyrra. Alls hafa 214
bátar verið á veiðum á svæðinu,
sem er 14 færra en í fyrra.
Talsvert er eftir að veiða af júní-
skammtinum á hinum svæðunum
og ljóst að þar færast fyrningar yfir
á júlí. Alls hafa 526 bátar róið á
strandveiðum ársins. Meðalafli í
róðri til þessa er 607 kíló og er
hann mestur á A-svæði eða 677
kíló. Eingöngu er heimilt að draga
650 kíló, í þorskígildum talið, af
kvótabundnum tegundum í hverri
veiðiferð.
Strandveiðar eftir 8 veiðidaga í júní 2017
Heimild: LS
75,8% 24,2%
26,4% 73,6%
18,7% 81,3%
35,4% 64,6%
0
76%
24%
Svæði A - 234 tonn óveidd
26%
74%
Svæði B - 543 tonn óveidd
19%
81%
Svæði C - 691 tonn óveidd
35%
65%
Svæði D - 457 tonn óveiddtt
Mánaðamót
á A-svæði
Vinningar
Bi
rt
án
áb
yr
g›
arSuzuki S-Cross GLX 4WD að verðmæti 5.160.000 kr.
38988
Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr.
59427 98905 127248
Sumarhappdrætti
Krabbameins-
félagsinsÚtdráttur17. júní 2017
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 100.000 kr.
181
1034
2531
4017
4483
6196
6947
7147
7181
7376
7451
9655
10126
11019
11232
11872
13388
15127
16868
17140
18358
19236
22013
22128
23982
24536
25891
26443
27079
27987
29307
29921
30904
32605
35580
37002
37252
37431
38295
38373
38423
42243
43005
43680
44081
44230
44291
45379
46291
47463
47714
48278
48939
52654
53008
53184
56541
57242
57421
57683
58700
61285
62261
63560
64641
66528
66979
70242
70837
71284
72713
73071
73756
74192
74833
75224
76571
76600
77332
77710
78911
80292
81087
81596
83185
84667
85876
86499
86807
87809
90001
90923
93326
94773
96664
96811
97389
97674
98558
99883
100654
102308
103010
105107
105827
108076
108464
110245
112168
113141
113562
113733
114794
114989
115278
115368
116985
117822
119236
119239
119344
121227
122696
122895
124478
127042
127599
131181
132047
132577
132875
133424
136654
136804
138943
139145
139835
140381
141709
141753
142050
143806
144463
144477
144625
145001
145428
146705
147573
147582
148727
149370
152156
153769
154087
154311
154432
155507
157326
158279
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 200.000 kr.
1397
6066
6292
6337
6588
9872
11897
11950
12778
18020
18029
18297
22852
24373
25527
26464
26672
27529
28246
29209
30000
34648
34667
35824
36702
36846
38210
39330
43235
43701
43749
44556
45049
46210
46456
46459
46597
46629
47227
48435
48689
51309
51522
52554
53328
54179
55310
57364
58295
58314
59109
60481
60501
62880
67204
68089
69913
70517
70855
71377
71836
73259
73520
74739
76035
76588
79064
81867
82551
82645
82675
85413
87011
90768
91032
91538
93184
93469
94001
98510
100583
100821
102456
103477
105089
105399
105745
108940
114373
114391
116633
118521
121899
121968
122870
123301
127892
131719
134406
135843
138001
138256
138951
141744
142794
143100
147770
148391
150380
155606
155943
157060
Krabbameinsfélagi› þakkar landsmönnum veittan stu›ning.
Handhafar vinningsmi›a framvísi þeim
á skrifstofu Krabbameinsfélagsins a›
Skógarhlí› 8, sími 540 1900.
Byrja› ver›ur a› grei›a út
vinninga þann 5. júlí nk.