Morgunblaðið - 20.06.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Áfangar nást þessa dagana hjá aust-
firsku laxeldisfyrirtækjunum. Nýjar
og öflugar sjókvíar hafa verið settar
upp í Berufirði og Reyðarfirði og
norskt leiguskip, svokallaður brunn-
bátur, er að flytja laxaseiði frá seiða-
stöðvum fyrirtækjanna í Þorlákshöfn.
Á bilinu 1800 til 1900 þúsund seiði eru
sett út þessa dagana og mun það skila
um 10 þúsund tonnum af laxi í fyllingu
tímans.
Fiskeldi Austfjarða er að færa sig
úr eldi regnbogasilungs yfir í laxeldi.
Lokið verður við að slátra regnbog-
anum upp úr kvíunum á þessu ári. Fé-
lagið setti út fyrstu laxaseiðin á síð-
asta ári og hafa þau vaxið vel. Hefst
slátrun fyrir áramót.
Þessa dagana er fyrirtækið að
ljúka flutningum á seiðum frá seiða-
stöðinni Ísþór í Þorlákshöfn og setja í
nýjar kvíar á nýjum stað í Berufirði.
Eru það um 850 þúsund seiði, nokkuð
stór eða um 300 grömm á þyngd, og
hefst slátrun á þeim í lok næsta árs.
Fyrstu seiðin í sjó
Laxar fiskeldi er að setja út sjókví-
ar í Reyðarfirði og í lok vikunnar hefj-
ast flutningar á nærri milljón seiðum
frá stöð fyrirtækisins í Þorlákshöfn.
Eru það fyrstu seiði fyrirtækisins
sem fara í sjó. Seiðin eru á bilinu 100
til 300 grömm að þyngd og verða
stærstu laxarnir fullvaxnir og tilbúnir
til slátrunar undir lok næsta árs.
Bæði fyrirtækin hafa verið að
byggja sig upp tæknilega. Hafa keypt
stóra fóðurpramma og þjónustubáta.
Fiskeldi Austfjarða er með aðstöðu
á Djúpavogi og slátrar þar sínum laxi.
Laxar hafa komið sér upp starfsstöð á
Eskifirði. Ekki hefur verið ákveðið
hvar fiskinum verður slátrað. Laxar
hafa leyfi til framleiðslu á 6 þúsund
tonnum í Reyðarfirði og fullnýta það
leyfi í ár. Einar Örn Gunnarsson,
stjórnarmaður og einn stofnenda,
segir að sótt hafi verið um leyfi til
stækkunar og vonast hann til þess að
það fáist þannig að hægt verði að
halda áfram uppbyggingunni á næsta
ári.
Fullvaxnir eftir 1,5 til 2 ár
Þau 1.800 til 1.900 þúsund seiði sem
fara í sjó í ár eiga að skila tæplega 10
þúsund tonnum af afurðum í lok
næsta árs og fyrrihluta árs 2019, ef
allt gengur að óskum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Berufjörður Norski brunnbáturinn Øylaks setur út 140 þúsund stór laxaseiði í nýja stöð Fiskeldis Austfjarða.
10 þúsund tonna
laxaframleiðsla hafin
Austfirsku fyrirtækin setja 1.850 þúsund seiði í sjókvíar
Tildrög banaslyss sem varð í Ólafs-
víkurhöfn í febrúar á síðasta ári,
þegar bíll fór út í höfnina og öku-
maðurinn drukknaði, er sennilega
sú að maðurinn, sem var 88 ára, hafi
óvart stigið á inngjöf í stað bremsu
eða stigið fastar á inngjöf en hann
ætlaði. Þá reyndist hafnarkantur
gagnslaus, enda lá yfir honum snjór
svo fyrirstaðan var engin. Þetta seg-
ir í skýrslu Rannsóknarnefndar
samgönguslysa um þennan atburð,
sem varð í febrúar á síðasta ári.
Í rannsóknarskýslu er því beint til
stjórnenda Ólafsvíkurhafnar að
varna því að snjór safnist við hafn-
arkantinn svo slys líkt og varð á síð-
asta ári endurtaki sig ekki. Beinir
nefndin því einnig til Vegagerðar-
innar að senda tillögu á þessum nót-
um til hafna á landinu, enda sé varn-
argildi hafnarkanta ótvírætt.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ólafsvíkurhöfn Slysið varð í febrúar á
síðasta ári og þykir kalla á ýmsar úrbætur.
Steig á bensíngjöf
en ekki bremsu
majubud.is
Fosshálsi 5-9, 110 Reykjavík. Opið mán.-mið. 10-16, fim.-fös. 10-18.
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Tilboðsverð
9.597
verð áður 15.995
stærðir 36-46
LeFlorians 3D
Innsóli: Comfort
Sóli: PU Bidensity
Þyngd: 422gr (í stærð 42)
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Stutterma
bolir
Kr. 5.900.-
Str. M-XXXL
EFTA-löndin Sviss, Ísland og Nor-
egur voru með hæst verðlag vöru og
þjónustu ef miðað er við neyslu
heimilanna. Hvert land um sig var
með 61,47 og 40 prósent yfir með-
altali í Evrópu (EU28). Þetta og
fleira kemur fram í tölum sem Hag-
stofa Evrópu, Eurostat, birti nýlega
og Hagstofur Íslands og Noregs
hafa birt fréttir um á vefsíðum sín-
um.
Tölurnar voru afrakstur umfangs-
mikillar verðlagskönnunar sem var
framkvæmd í öllum Evrópulöndun-
um. Notast var við jafnvirðisgildi
(PPP). Þau eru notuð til að umreikna
hagrænar stærðir til sambærilegs
verðlags svo unnt sé að bera saman
rauntölur á milli landa. Balkanlöndin
voru með lægsta verðlagið í könn-
uninni. Verðlagið í Makedóníu, Búlg-
aríu, Albaníu og Serbíu er aðeins um
50 prósent af meðaltali í EU28.
„Verðlag getur verið nokkurn veg-
inn mælikvarði á velmegun, en Ís-
land er búið að vera að færast upp
listann undanfarin ár,“ segir Heið-
rún Erika Guðmundsdóttir, deildar-
stjóri vísitöludeildar Hagstofunnar,
en hún bætir við að fylgni virðist
vera á milli hárrar landsframleiðslu
og hás verðlags.
„Þetta þekkjum við sem höfum
brugðið okkur af bæ,“ segir Ólafur
Arnarson, hagfræðingur og formað-
ur Neytendasamtakanna. Hann
bætir við að sterkt gengi, húsnæð-
isbóla og há laun ýti verðinu upp.
Segir Ólafur að „verndarkerfi um ís-
lenska matvælaframleiðslu“ sé neyt-
endum mjög dýrt.
Matur, drykkur og tóbak er dýr-
ast í Norður-Evrópu en ódýrast í
Póllandi, Makedóníu og Rúmeníu.
Verð fyrir þjónustu er hæst í EFTA-
löndunum en lægst á Balkanskagan-
um. Föt og skór eru ódýrust í Tyrk-
landi. ernayr@mbl.is
EFTA-lönd dýr
og velmegandi
Ísland í hópi dýrustu landa Evrópu
Fasteignir