Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 12

Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.si Hamingjan, hún var bestaf öllu sköpunarverk-inu,“ segir í gömlumdægurlagatexta eftir Þorstein Eggertsson sem Ðe lónlí blú bojs sungu hér forðum, og í niðurlagi þess sama söngs segir: „Og ef hún birtist þér þá skaltu ekki sleppa takinu á hamingju.“ Já, þessi hamingja, hversu oft hef- ur ekki verið sungið um hana, spáð og spekúlerað, þetta fyrir- bæri sem mörgum finnst illhöndl- anlegt, en allir vilja auðvitað vera stútfullir af. Hver vill ekki búa hjá henni öllum stundum, sjálfri ham- ingjunni? Á vefsíðunni ideapod.com er áhugaverð grein um hvað skipti máli þegar kemur að hamingjunni, þessu sem fólki gengur misvel, jafnvel brösuglega, að finna. Í greininni er vísað til rannsóknar sem gerð var við Harvard og hef- ur staðið yfir í 75 ár. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvað gerir okkur mann- fólkið hamingjusamt. Rannsókn þessi er sögð vera byltingarkennd sálfræðirannsókn, en í henni var fylgt eftir lífi manna í tveimur hópum í meira en 75 ár. Og nú er fylgst með börnum þessara manna, en þau fæddust í kjölfar síðari heimstyrjaldarinnar. Þannig er ætlunin að skilja hvernig reynsla í barnæsku skilar sér yfir áratugi og hvaða áhrif sú reynsla hefur á heilsu og velferð viðkom- Hamingjan er best af öllu sköpunarverkinu Getty Images/Ingram Publishing Bros Hamingjan hittir fólk á öllum aldri, og sönn vinátta eflist með árunum. Morgunblaðið/Heiddi Kærleiksknús Dýpsta vináttan er oft sú sem verður til á æskuárunum. Flest vitum við að lítt gagnast það í hamingjuleit að eltast við hjóm eða peninga. Samt gengur mörgum illa að höndla fyrirbærið hamingju. Nú eru komnar niðurstöður í sálfræðirannsókn sem staðið hefur yfir í 75 ár þar sem leitað var svara við því hvað skipti máli þegar kemur að því sem gerir fólk hamingjusamt. M.a. er sýnt fram á að hamingjan snýst ekki um fjölda vina eða að vera í föstu sambandi, heldur vega gæði náinna sambanda þyngst. Á Jónsmessunni fljóta steinar upp úr tjörnum, álfar fara á kreik og Ferða- félag barnanna leggur land undir fót í fylgd Júlíönu Þóru Magnúsdóttur, þjóðfræðings frá Háskóla Íslands. Gangan hefst kl. 16 á morgun, mið- vikudaginn 21. júní. Gengið verður upp að Helgufossi í Mosfellsdal þar sem álfabyggðin í Helguhól verður heim- sótt, þátttakendur fræðast um álfa og heiðra þá með dansi og söng. Brottför verður á einkabílum frá skrifstofu FÍ, Mörkinni 6, og er reiknað með að ferð- in taki 2-3 klukkustundir. Gangan er hluti af verkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands, Með fróðleik í fararnesti, sem hófst á aldar- afmæli skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Há- skólans blandast saman í þessum áhugaverðu gönguferðum. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Vefsíðan www.ferdafelagbarnanna.is Ævintýri Álfar birtast í ýmsum myndum í sögum og kvikmyndum, t.d. álfurinn Legolas í Hringadróttinssögu eftir J.RR. Tolkien og samnefndri kvikmynd. Þegar álfarnir fara á kreik Ertu á leið í ferðalag og langar til að búa til persónulega dagbók tengda ferðinni? Fimmtudaginn 22. júní kl. 16-18 verður boðið upp á námskeið í gerð ferðadagbóka í Borgarbókasafn- inu Sólheimum. Leiðbeinandi er lista- konan Anna Sigríður Hróðmarsdóttir og er námskeiðið haldið í tengslum við sýningu á ferðadagbókum hennar í safninu. Takmarkaður fjöldi kemst að og er nauðsynlegt að skrá sig með því að senda póst á gudridur.sigurbjorns- dottir@reykjavik.is Endilega . . . . . . búðu til þína eigin ferðadagbók Minningar Ferðadagbók er ein leið til að varðveita skemmtilegar minningar. Gróska, félaga myndlistarmanna í Garðabæ, fagnar sumarsólstöðum og efnir til Jónsmessugleði með mynd- listarsýningu og alls konar list- viðburðum við Strandstíginn í Sjá- landshverfi í Garðabæ kl. 19.30 til 22, fimmtudaginn 22. júní. Hátíðarhöldin hefjast formlega með ávarpi frú Elizu Reid forsetafrúar. Fjölbreytt listaverk verða til sýnis í töfrandi umhverfi Ylstrandar með út- sýni yfir hafið. Sýnendur eru vel yfir 40 talsins og hafa aldrei verið fleiri enda hafa gestalistamenn í boði Grósku flykkst hvaðanæva til að taka þátt í Jónsmessugleðinni, sem félag- ið stendur nú fyrir í níunda sinn. Málverk á striga eru strengd milli staura og innsetningar ljá sýningunni sérstæðan blæ. Að venju verða líka fjölmargir aðrir listviðburðir á dag- skrá, svo sem söngur, ljóðalestur, lúðrablástur, harmonikkuleikur og ýmiss konar glens og gaman. Bæði ungir og aldnir láta ljós sitt skína enda er Jónsmessugleðin fyrir fólk á öllum aldri. Einnig býður Gróska upp á veitingar og búast má við óvæntum Níunda Jónsmessugleði Grósku, félags myndlistarmanna í Garðabæ Fjölbreyttir listviðburðir, lúðra- blástur, söngur, glens og gaman Ungir og aldnir Jónsmessugleði Grósku er fyrir fólk á öllum aldri. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is amlegt ka nýmalað, en in h Kynntu þ r ura a v ar rv . um ér í kaffi. s ylki. ík V ðJ k él í Ei

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.