Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 13

Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 13
Morgunblaðið/Jim Smart Brúðkaup Margir halda að hamingjan sé í höfn þegar í hnapphelduna er komið, en skilnaðartíðni segir allt annað. andi þegar þeir eru komnir á miðjan aldur. Stóra spurningin Spurning sem allir vilja fá svar við er því þessi: hvað er það sem heldur okkur hamingjusöm- um og heilbrigðum á ferð okkar gegnum lífið? Margir halda að frægð og peningar séu það sem skapi hamingju, en sam- kvæmt sálfræð- ingnum Robert Waldinger er það alls ekki svo. Robert þessi er sá sem leiddi rannsókn- ina og hefur fyrir vik- ið aðgang að áður óþekktum gögnum um hina sönnu hamingju og fullnægju í lífinu. Og hvað er það sam- kvæmt þessum gögnum sem skiptir mestu máli þegar kemur að hamingju og velferð? „Skýrustu skilaboðin sem við höfum úr þessari 75 ára rannsókn eru þessi: Góð sambönd gera okk- ur hamingjusamari og heilbrigð- ari,“ segir fyrrnefndur Robert. Jú, þar hafið þið það, stærsti þátturinn í ham- ingju og lífsfyllingu á lífsleiðinni er í raun ást og kærleikur. Rann- sóknin sýnir að það skiptir sér- staklega miklu máli að hafa ein- hvern til að treysta á, þegar kemur að því að halda taugakerf- inu slöku, heilabúinu heilbrigðu og draga úr tilfinningalegum sársauka. Það sem skiptir máli Rannsóknargögnin sýndu einnig ótvírætt að líkamlegri heilsu þeirra sem eru einmana hrakar fyrr á ævinni og þeir lifa ekki eins lengi og þeir sem ekki eru einmana. „Þetta snýst ekki aðeins um fjölda vina sem fólk á, og þetta snýst ekki um hvort fólk er í föstu sambandi, heldur eru það gæði hinna nánu sambanda sem skipta öllu máli,“ segir Robert. Þegar kemur að hinni eftir- sóknarverðu hamingju skiptir sem sagt ekki máli hvort fólk á gríðarlega stóran vinahóp, eða að fólk sé í hinu fullkomna róm- antíska sambandi, heldur eru það gæði vináttunnar sem telja, hversu mikil dýpt og hversu mik- ill heiðarleiki er í vináttu- samböndum fólks, hversu afslapp- að fólk er í návist hvers annars og að fólk geti notið sín eins og það raunverulega er með annarri manneskju eða öðrum mann- eskjum. Forgangsröðunin mikilvæg Þetta er heldur betur góð áminning um það að forgangsraða þegar kemur að því að velja hverja við viljum umgangast og vera í ósviknu sambandi við. Því að rannsóknargögnin sýna með óyggjandi hætti að þó svo að fólk eignist allan þann veraldlega auð sem það hefur óskað sér verður það ekki hamingjusamt nema það eigi í raunverulega nánu og sönnu sambandi við aðrar manneskjur. Lifandi fólk og góð samskipti við það eru sem sagt það sem skiptir öllu máli í lífinu. Svo sem ekki ný sannindi, en vissulega gott að fá það staðfest með ára- tuga vísindalegum rannsóknum. Við þurfum ekkert að velkjast lengur í vafa, eða eltast við vindmyllur eins og peninga. Við þurfum að rækta nánd- ina og dýpt vináttunnar, og vanda okkur við það, því jafnvel þótt flestir viti þetta gengur það misvel.Morgunblaðið/Eggert Margir halda að frægð og peningar skapi hamingju. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 Alþjóðlegi flóttamannadagurinn er í dag, 20. júní. Af því tilefni stend- ur Íslandsdeild Amnesty Inter- national fyrir sýningu á heimildar- myndinni Warehoused – The Forgotten Refugees of Dadaab í Bíó Paradís kl. 20 í kvöld. Heimildarmyndin, sem er í bíó- myndarlengd og var frumsýnd fyrr á árinu, segir afar átakanlega sögu flóttafólks sem árum saman hefur hafst við í einum stærstu flótta- mannabúðum heims í Dadaab í Kenýa. Warehoused gefur innsýn í líf og aðstæður flóttamannanna en beinir sjónum einkum að einum manni og baráttu hans við að sjá fjölskyldu sinni farborða. Saga mannsins er svipuð sögu annarra flóttamanna fyrr og nú sem hafa verið á flótta alla ævi. Að sýningu lokinni ætlar ungliða- hreyfing Amenesty International að bjóða áhugasömum að koma á kaffihúsakvöld á skrifstofu sam- takanna Þingholtsstræti 27. Talið er að um 12 milljónir manna séu í flóttamannabúðum víða um heim. Árlega fara aðeins örfáir þeirra, eða 0,1%, aftur til síns heima eða eru sendir annað þar sem þeir þurfa að laga sig að oft framandi samfélagi. Frítt verður inn og allir vel- komnir. Alþjóðlegi flóttamanna- dagurinn í dag 12 milljónir Talið er að um 12 millj- ónir manna séu í flóttamannabúðum. Frítt á heimild- armynd um flóttamenn uppákomum og furðufyrirbærum. Listamennirnir vinna nefnilega með ákveðið þema sem að þessu sinni er: „En hvað það var skrýtið“. Skorað er á gesti að taka þátt í skringilegheitunum með því að mæta í skrýtnum fatnaði eða fara á list- rænt flug með því að skreyta sig fjöðrum. Á Jónsmessugleðinni gefst svo gott tækifæri fyrir fólk til að taka myndir hvað af öðru við frumlegar aðstæður. Allir eru velkomnir á Jónsmessu- gleði Grósku, Garðbæingar jafnt sem aðrir og fólk er hvatt til að fjöl- menna. Gróska stendur fyrir Jónsmessu- gleðinni í samstarfi við Garðabæ og hefur boðið öðrum myndlistar- félögum til leiks með sér. Þess má svo geta að allir listamennirnir gefa vinnu sína þetta kvöld í anda ein- kunnarorða Jónsmessugleðinnar: Gefum, gleðjum og njótum. Eru gest- ir gleðinnar hvattir til að gera þau líka að sínum. Jónsmessugleðinni lýkur svo með lokagjörningi, sem efa- lítið kemur fólki skemmtilega á óvart. Jónsmessugleði Grósku hefur ver- ið árviss viðburður síðan 2009. Hún vex og dafnar með hverju ári og er áætlað að um 10 þúsund manns hafi mætt þegar fjölmennast var. Jóns- messugleðin er stærsta sýning Grósku en auk hennar stendur félag- ið árlega fyrir fleiri sýningum og opn- um fyrirlestrum sem tengjast listum og menningu. Milli staura Málverk á striga njóta sín vel þar sem þau eru strengd milli staura. Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur og vökvamótora Sala - varahlutir - viðgerðir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.