Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 23

Morgunblaðið - 20.06.2017, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 ✝ Benóný Bene-diktsson fædd- ist á Þórkötlustöð- um í Grindavík 28. maí 1928. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík 6. júní 2017. Hann var sonur hjónanna Bene- dikts Benónýssonar frá Þórkötlustöð- um í Grindavík, f. 21. júlí 1894, d. 29. júní 1953, og Magnúsu Aðalveigar Ólafsdóttur úr Grindavík, f. 23. september 1902, d. 26. október 1987. Systk- ini Benónýs eru: Fjóla, f. 17. jan- úar 1921, d. 27. september 2011, Þórlaug, f. 25. apríl 1923, d. 19. september 2001, Ólöf, f. 14. 1947, þau skildu. Börn þeirra: Sara, f. 1975, Dagbjört, f. 1978, Sólrún María, f. 1983, Ása María, f. 1985, Gabríela María, f. 1993, og Davíð, f. 1995. b) María Magnúsa, f. 15. september 1958, maki Hörður Guðbrandsson, f. 9. nóvember 1961. Börn þeirra: Benný, f. 1979, Einar Hannes, f. 1984, Benóný, f. 1988, Anna- bella, f. 1993, d. 1994, og Nökkvi, f. 1996. c) Edda Björg, f. 12. febrúar 1963, maki Jóhann Örn Kristinsson, f. 15. júlí 1963. Börn þeirra: Hedda Kristín, f. 1988, og Bryndís Lóa, f. 1990. Barnabarnabörnin eru 17. Benóný byrjaði ungur að vinna, fyrst sem sjómaður, síðan gerðist hann bifreiðarstjóri hjá Kaupfélagi Árnesinga í fimm ár og eftir það hjá Þorbirni í Grindavík í 44 ár. Benóný var formaður Verka- lýðsfélags Grindavíkur 1984- 2012. Útför Benónýs fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 20. júní 2017, kl. 14. mars 1927, d. 24. september 2007, Jóhann Ragnar, f. 14. nóvember 1930, Ólöf Sigurrós, f. 3. október 1934, og Elsa, f. 20. mars 1938, d. 1. júní 2015. Foreldrar hans voru bæði með búskap og útróðra ásamt Guðmundi bróður Benedikts og Sigríði systur Magnúsu og bjuggu þau alla tíð í sama húsi á Þórkötlustöðum hvort á sinni hæðinni og átti hann góða æsku þar. Benóný kvæntist Ásu Lóu Einarsdóttur, f. 26. desember 1933. Dætur þeirra eru: a) Ellen Stefanía, f. 10. mars 1955, giftist Regin Grímssyni, f. 8. mars Það var eftir áramótin 1982 sem ég fór til Grindavíkur að vinna í fiski hjá Þorbirni hf., þar voru fyrir í vinnu María M. Ben- ónýsdóttir, sem seinna átti eftir að verða kona mín, og Benóný Benediktsson, pabbi hennar, sem ók vörubíl hjá fyrirtækinu. Fljótlega fórum við María að draga okkur saman og kom að því að María ákvað að segja pabba sínum að hún væri byrjuð með strák, hann glotti og sagðist vita það þar sem þegar hann hefði sótt hana í vinnu þá hefðu verið ný för í snjónum út úr húsi hennar flesta morgna. Þar má segja að hafi hafist löng og góð kynning við tengdaföður minn hann Benóný eða Bensa eins og hann var oftast kallaður. Bensi var traustur og trúr þeim verk- efnum sem honum voru falin í líf- inu, hvort sem var í fiskvinnsl- unni, félagsmálum eða fjölskyldumálum. Alls staðar skilaði hann góðu verki, t.d. gerði hann Verkalýðsfélag Grindavíkur að því öfluga félagi sem það er í dag með vinnu sinni og félaga sinna. Bensi var hlýr maður með létta lund sem hafði gaman af því að fíflast og segja skemmtisögur þegar það átti við, einnig ferðuðust þau hjón nokk- uð bæði innan- og utanlands, hann og Ása Lóa Einarsdóttir kona hans, sem lifir mann sinn. Bensi var fróður um land og þjóð og hafði áhuga á aflabrögðum og atvinnulífi fram á síðasta dag. Einnig var skemmtilegt að hlusta á lýsingar hans á stað- háttum og mannlífi úr Þorkötlu- staðahverfinu þar sem hann fæddist og ólst upp. Bensi var hófsemdarmaður og fór vel með, t.d. sagði hann að enginn ætti að drekka meira áfengi en svo að hægt væri að innbyrða annað eins. Í einu gerði Bensi þó vel við sig, en honum fannst mikilvægt að aka á traustum og góðum bílakosti og varð Volvo fyrir val- inu síðustu áratugina. Mikilvæg- ast í lífinu fannst Bensa þó fjöl- skyldan og var hann óþreytandi við að hlúa að og leiðbeina fjöl- skyldumeðlimum, alltaf var það þó á jafnréttisgrundvelli og skipti þá aldur engu máli. Núna hefur Bensi lokið langri og giftu- samri ævi, en hann varð 89 ára 28. maí sl. Ég hef leitast við að hafa Bensa sem fyrirmynd í mörgu í mínu lífi, og vil ég þakka fyrir þau ár sem við gengum saman götuna. Að lokum votta ég Ásu Lóu Einarsdóttur, tengdamóður minni, og öðrum ættingjum samúð. Hörður Guðbrandsson. Þakklæti er mér ofarlega í huga í dag þegar ég fylgi afa Bensa í hinsta sinn. Dýrmætar minningar um besta afi í heimi ylja mér um hjartarætur. Í gegnum tíðina höfum við verið miklir mátar og borið mikla virð- ingu, kærleik og ást hvor til ann- ars. Eftir að ég varð fullorðin og eignaðist sjálf börn hugsaði ég stundum þegar börnin mín sátu í fanginu á afa, ég vildi að ég væri aftur lítil og sæti sjálf í fanginu á honum. Minningin var ljúf. Þrátt fyrir að afi hafi alltaf unnið mik- ið, bæði sem vörubílstjóri og í verkalýðsfélaginu, hafði hann alltaf tíma fyrir barnabörnin og þótti honum skemmtilegt að leika við okkur og segja okkur sögur og ljóð. Mér finnst óend- anlega dýrmætt að börnin mín hafi fengið að kynnast afa Bensa. Þegar ég flutti aftur til Grindavíkur árið 2005 og keypti Aðal-Braut kom afi daglega við í sjoppunni fyrstu árin, drakk kaffi, spjallaði og athugaði hvernig salan var daginn áður. Þrátt fyrir að vera fárveikur spurði hann mig fram á síðustu stundu hvernig gekk reksturinn í dag? Þetta gaf okkur báðum mikið og styrkti samband okkar til mikilla muna. Síðasta árið skrapp ég oft ein til afa á kvöldin í notalega heim- sókn þar sem við spjölluðum saman. Þegar hann var að skrifa afmælisgreinina fyrir 80 ára af- mælisblað Verkalýðsfélagsins sagði hann mér að hann væri þakklátur fyrir fjölskylduna og stoltur af ævistarfinu. Síðustu misseri hrakaði heilsunni veru- lega og veikindin tóku verulega á. Þrátt fyrir það þá var ljúf- mennskan alltaf til staðar og hann kvaddi mig alltaf með fal- legum orðum þegar ég fór frá honum. Fyrirmynd, kærleikur, um- hyggja, ást, vinátta, dugnaður, frændsemi, góðmennska og náungakærleikur eru allt orð sem koma upp í huga mér er ég hugsa um afa. Þú átt einstakan stað í hjarta mínu og ég verð ævinlega þakk- lát fyrir samfylgdina. Hvíl í friði, elsku afi. Þín, Benný. Í dag kveðjum við afa. Ég hef hugsað mikið um hann síðan hann dó, og mér detta alltaf í hug tvö orð þegar ég hugsa til hans. Orðin eru traustur og góð- ur. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa verið skírður í höfuðið á afa og glaður að hafa alist upp í hús- inu á móti afa og ömmu. Við systkinin höfum alltaf verið mjög náin ömmu og afa og fyrir það er ég þakklátur. Einn af mörgum kostum afa var hvað hann hafði alltaf mikinn áhuga á því hvað barnabörnin hans voru að sýsla. Hann hringdi ósjaldan í mig og spurði mig hvernig gengi í skólanum eða hvernig gengi í þeim verkefnum sem ég var að sinna á þeim tíma. Hann var nefnilega ekki bara afi minn, hann var líka svo góður vinur minn. Það var bara einn galli við það að búa á móti þeim. Nefnilega sá að stundum þurfti maður að hafa ansi mikið fyrir því þegar halda átti partí, svo amma og afi kæm- ust ekki að því. Mínar fyrstu æskuminningar eru tengdar afa. Þegar ég var lít- ill og mamma og pabbi fóru snemma í vinnu var mér rúllað inn í sængina og hlaupið með mig yfir í pössun til ömmu og afa. Þar fékk ég að kúra í rúminu hjá ömmu og þegar maður vakn- aði var svo hringt í afa og hann sótti mig og leyfði mér að vera með sér í vörubílnum þangað til að ég fór á leikskólann klukkan eitt. Afi kenndi mér líka að lesa þegar ég var fimm ára. Á hverju kvöldi áður en ég fór að sofa þá fórum við mamma í heimsókn til afa og ömmu, afi var búinn að sjá það að ég var námsfús og fór upp í grunnskóla og fékk lánaða bók fyrir mig á bókasafninu. Á hverju kvöldi stafaði ég fyrir afa upp úr bókinni og undir lok bók- arinnar gat ég lesið. Afi hvatti mig áfram í háskóla- námi og hjálpaði mér í gegnum námið. Hann hvatti mig í raun alltaf og það verður skrýtið og erfitt að fá þá hvatningu ekki áfram. En ég veit að afa líður betur núna en undir lokin. Þegar við fjölskyldan vorum að fara í sumarfrí hringdu afi og amma ósjaldan í okkur systkinin og sögðu okkur að koma í heim- sókn. Þau gáfu okkur smápening til að eyða í sumarfríinu og afi sagði alltaf að hann væri hættur að nota akkúrat þennan þúsund- kall eða fimmþúsundkall sem hann lét okkur fá. Þetta lýsir afa svo vel. Það eina sem við töluðum eig- inlega ekki um var pólitík. Þar vorum við ekki sammála en það skipti samt engu máli – við bár- um alltaf virðingu fyrir skoðun- um hvor annars. Ég sakna þín, afi minn, og ég mun alltaf hugsa hlýlega til þín. Ég ætla að reyna að lifa lífinu þannig að fólki finnist ég jafn traustur og góður og þú varst. Þinn nafni Benóný. Látinn er Benóný Benedikts- son frá Þórkötlustöðum í Grinda- vík. Við bræðurnir þekktum hann sem „Bensa frænda“ í Grindavík. Faðir okkar, sem var 10 árum eldri, og Bensi voru bræðrasynir og systrasynir auk þess að alast upp undir sama þaki á Þórkötlu- stöðum á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar. Samtals áttu foreldr- ar þeirra, þar sem tvær systur giftust bræðrum, 11 börn og bjuggu auk í sama húsinu. Því má geta nærri að hópurinn ólst upp að meira eða minna leyti sem einn stór systkinahópur. Síðar dvöldu Bensi og faðir okk- ar samtímis sem ungir menn á Vífilsstöðum vegna berklaveiki og þá sagðist Bensi hafa notið þess í mörgu að eiga eldri frænda sem hefði verið honum stoð og stytta. Þeir frændur þóttu líkir í hátt, mjög hávaxnir með stórar hendur og fætur og fyrir kom að fólk þekkti þá ekki í sundur. Við bræðurnir sem börn kynnumst Bensa eins og mörgu öðru góðu skyldfólki okkar í Grindavík þegar við dvöldum hjá ömmu og afa á Þórkötlustöðum í jólafríum og hluta úr sumri. Þá bjó móður Bensa, Magnúsa, enn á neðri hæðinni á Þórkötlustöð- um en Guðmundur afi og Sigríð- ur amma á efri hæðinni. Bensi kom gjarnan við á Þórkötlustöð- um þegar hann átti leið um en aðalstarf hans um árabil var vörubílaakstur fyrir útgerðarfyr- irtækið Þorbjörn. Okkur krökk- unum þótti sú atvinna að aka vörubíl vera toppurinn og hærra yrði vart komist. Góður vinskapur var með for- eldrum okkar bræðra og Bensa og Ásu Lóu, eiginkonu Bensa, þó nokkur aldursmunur væri þar á. Gestrisni, höfðingsskapur og glaðværð á heimili þeirra Bensa og Ásu er okkur minnisstæð. Bensi var með afbrigðum barngóður og áhugasamur um hag okkar fjölskyldu á Réttar- holtsveginum og kom Bensi stundum þar við í kaffi þegar hann var í útréttingum á vöru- bílnum í Reykjavík. Löngu síðar kom hann líka við í Gámaþjón- ustunni þar sem við bræður störfuðum. Í nokkur síðustu skiptin sem við bræðurnir hittum Bensa var heilsa hans svolítið farin að bila en áhugi hans og umhyggja fyrir fólkinu sínu og umhverfinu var söm og áður. Þar var ekki komið að tómum kofunum. Við bræður þökkum fyrir vin- áttu og væntumþykju í áratugi og kveðjum frænda okkar með söknuði og virðingu. Jafnframt sendum við Ásu Lóu, dætrunum og fjölskyldum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Elías Ólafsson, Benóný Ólafsson. Benóný Benediktsson, eða Bensi eins og hann var jafnan kallaður, byrjaði að vinna sem vörubílstjóri hjá Þorbirni hf. um 1960. Ég kynntist Bensa sem barn þegar hann kom heim á Gnúp til að tala við föður minn, en þá var skrifstofa fyrirtækisins þar. Við bræðurnir höfðum gaman af að máta okkur í skóna hans og dugði þá ekkert minna en að við kæmust allir ofan í þá í einu. Bensi var stór og myndarlegur maður og oft haft á orði í gamni og alvöru að það „færi nú enginn í skóna hans Bensa“. Við strákarnir stunduðum það að fá að sitja í vörubílunum hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tækjunum hér í Grindavík og þá var alltaf vinsælt að fá að sitja í hjá Bensa. Seinna þegar ég var orðinn unglingur og fékk sum- arvinnu við saltfiskvinnslu kynntist ég honum enn betur. Bensi var alltaf til í að atast að- eins í okkur og oft voru þjóð- málin rædd í hita leiksins. Eðlilega voru verkalýðsmálin rædd mjög ítarlega og var ekk- ert dregið af sér í þeirri umræðu. Seinna varð ég svo verkstjóri í fiskvinnslunni og hugsa ég oft með hlýhug til þess þegar ég var að byrja hvað Bensi og starfs- fólkið tók mér vel. Bensa gat maður reitt sig full- komlega á, traustari félaga var ekki hægt að hugsa sér. Það kom oft fyrir að við ræddum útfærslu og túlkun ýmissa ákvæða í kjara- samningum og Bensi kom með góðar ábendingar og aðfinnslur ef það átti við. Þetta breyttist ekki mikið eftir að hann varð for- maður Verkalýðsfélags Grinda- víkur, nema að við ræddum þá oftar og betur verkalýðsmálin og lærði ég margt af hans innsýn í þau mál. Hann hlífði mér engan veginn við því að ræða viðkvæm mál en það gerði hann alltaf á mjög málefnalega hátt. Hæst reis verklýðsumræðan þegar allt stefndi í allsherjar- verkfall í landinu á vetrarvertíð- inni 1988. Þá tóku atvinnurek- endur og verkalýðsfélagið hér í Grindavík sig saman og gengu frá nýjum kjarasamningi og skrifuðum við undir hann þegar langt var liðið á nótt. Fyrsta frétt um morguninn í öllum fjölmiðlum var að sam- staða atvinnurekenda hefði brostið með þessum samningi í Grindavík en það sem mest var um vert var að þarna var gott traust á milli forystumanna at- vinnurekenda og verkalýðsins í Grindavík og ég fullyrði það að þessi samningur skaðaði engan heldur þokaði þessum málum að- eins fram á veginn, því í kjölfar hans var samið um kaupauka- kerfi fyrir saltfiskvinnslu. Við hjónin eigum líka góðar minn- ingar frá því að við vorum að draga okkur saman, því Rut fékk þá hugmynd vorið 1972 að hjóla frá Hafnarfirði til Grindavíkur ásamt vinkonu sinni eftir ný- steyptri Reykjanesbrautinni, en gamanið kárnaði þegar komið var á stórgrýttan og holóttan Grindavíkurveginn. Bensi var á sama tíma á leið til Reykjavíkur á vörubílnum og furðaði sig á þessum hjóladömum á Grinda- víkurveginum og í bakaleiðinni voru þær komnar að Selhálsin- um þegar hann stoppaði og aumkaði sig yfir þær og bauð þeim far til Grindavíkur, sem þær þáðu með þökkum. Um leið og við þökkum Bensa fyrir sam- fylgdina og góð kynni, viljum við senda fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Gunnar og Rut. Benóný Benediktsson tók við sem formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur árið 1984 og var for- maður til ársins 2012 en það ár var hann gerður að heiðurs- félaga Verkalýðsfélags Grinda- víkur. Þegar Benóný tekur við félaginu þá var verkalýðsfélagið svo illa statt fjárhagslega að það stóð til að sameina það Sjó- manna- og verkalýðsfélagi Kefla- víkur en það lagðist mjög illa í Grindvíkinga. Benóný féllst þá á það að veita félaginu formennsku í eitt ár en hann sat í 28 ár og reif félagið upp og þá sérstak- lega fjárhagslega. Á þessum 28 árum stóð kona hans, hún Ása Lóa Einarsdóttir, við hlið hans. Saman unnu þau ötullega að kjaramálum Grindvíkinga ásamt fleira góðu fólki sem studdi Ben- óný í þeim málum sem félagið stóð fyrir. Árið 1988 fór Benóný fyrir sínu fólki í hinum svoköll- uðu Grindavíkursamningum en þá náði Verkalýðsfélag Grinda- víkur sínum bestu samningum. Hvorki Verkamannasambandið né atvinnurekendur í Reykjavík voru sammála þessum aðgerðum félagsins og fengum þau skilaboð innan frá að yrði ekki samið um nóttina yrðu engir samningar gerðir. Grindavíkursamningur- inn var svo samþykktur á fjöl- mennasta félagsfundi til þess tíma með 68 atkvæðum gegn 18 en auðir seðlar voru fjórir. Undir stjórn Benónýs fór Verkalýðs- félag Grindavíkur úr því að vera nánast gjaldþrota í það að verða fyrirmyndarfélag með mjög góð- an rekstrargrundvöll. Benóný fór fyrir hópi þeirra sem byggðu Verkalýðshúsið á sínum tíma sem margir töldu glapræði en hafa þurft að éta það ofan í sig því þetta er ein besta fram- kvæmd sem félagið hefur gert. Verkalýðsfélag Grindavíkur þakkar Benóný Benediktssyni fyrir hans ómetanlega framlag til félagsins og vottar fjölskyldu hans sína dýpstu samúð. Fyrir hönd Verkalýðsfélags Grindavíkur, Magnús Már Jakobsson. Benóný Benediktsson HINSTA KVEÐJA Þegar ég sest hér niður og ætla að skrifa nokkur orð um þig, afi, þá er þakk- læti og söknuður það fyrsta sem kemur upp í hugann, þakklæti fyrir að þú hafir verið afi minn í þessu lífi en söknuðurinn að fá ekki sím- tölin frá þér og sérstaklega þegar við töluðum saman á sjónum. Elsku afi, vonandi líður þér betur núna. Eitt veit ég, þú ert fallegasti engill- inn á himnum. Þinn dóttursonur og vin- ur, Einar. Örfá minningar- orð um Jóhann vin okkar með þakk- læti í huga fyrir góð kynni og vin- semd. Þetta var góður drengur og vinmargur, vildi allt fyrir alla gera, hann var með blandaðan búskap og þar var ekki kastað til höndum að allir fengju góða vinnumenn, bæði menn og skepnur. Lengi var mamma hans með honum líka, var hann til fyrirmyndar innan veggja sem utan. Ég var þar með hjálp innan veggja en móðir hans var orðin öldruð og lasburða. Ég eldaði stundum, þá var hann með allt tilbúið, búinn að leggja í bleyti ef þurfti, allt tilbúið. Eins til baksturs var allt til og sagði hann jafnan, þetta er hérna góða og hvarf svo út um dyrnar til sinna verka. Mamma hans og ég vorum miklar vin- konur, vorum marga vetur í saumaklúbb ásamt fleiri góðum nágrannakonum, þar var oft glatt á hjalla og þar á undan fórum við oft með foreldrum hans á böll en við áttum ekki bíl og þar var einnig oft glatt á Jóhann Gíslason ✝ Jóhann Gísla-son fæddist 8. ágúst 1933. Hann lést 2. apríl 2017. Útför Jóhanns fór fram 8. apríl 2017. hjalla. Jóhann var vinmargur, þess vegna var oft leitað til hans og var hann greiðvikinn, keyrði oft fólk á böll og fleira og hafði unun af. Eitt sinn fór ég með Jóhanni og Gunnari Óskars á landsmót hesta- manna á Einars- stöðum, við fórum um helgina þegar aðalsýningin var en sumir fóru fyrr sem þurftu að sýna hross. Þetta var ógleymanleg ferð, mikið fjör. Þú varst léttur í lund og hlátur þinn var inni- legur. Eitt sinn fórum við sonur minn í smá ferð og komum við hjá þér og sáum húsið þitt í Hveragerði, þú varst óðara kominn með kaffi og meðlæti á borðið. Þarna áttum við góða spjallstund. Að lokum þetta Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir.) Sendum systkinum hans sam- úðarkveðjur. Blessuð sé minning þín, megir þú hvíla í friði. Soffía og synir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.