Morgunblaðið - 20.06.2017, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 20.06.2017, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2017 Leikhúsum vítt og breitt um Bandaríkin sem nefnd eru eftir enska leikskáldinu William Shakespeare hafa borist hótanir frá hægra öfgafólki í framhaldi af upp- færslu Public Thea- ter á Júlíusi Sesari eftir Shakespeare í Central Park í New York. Frá þessu greinir The Guardi- an. Eins og fjallað var um í Morgunblaðinu í síðustu viku ákváðu forsvarsmenn Delta Air Lines og Bank of America að hætta stuðningi sínum við Public Theater vegna þess að Júlíus Sesar þótti í uppfærslunni minna of mikið á Do- nald Trump og fór það ekki síst fyrir brjóstið á mönnum að Sesar væri myrtur í verkinu. Lokasýning upp- færslunnar fór fram á sunnudag, en á föstudag þurfti að stöðva sýn- inguna um tíma vegna framíkalla mótmælenda sem sögðu m.a. um sýninguna: „Þetta er pólitískt of- beldi gagnvart hægristefnunni.“ Mótmælendur sögðu einnig að árás- in á Steve Scalise, þingmann Repú- blikanaflokksins, sem særðist alvar- lega í skotárás í Virginíuríki í síðustu viku, væri á ábyrgð leikhúss- ins. Samkvæmt upplýsingum frá leik- listarhátíðinni Shakespeare & Company í Massachusetts hafa for- svarsmönnum hennar borist um 40 skilaboð með svívirðingum. Ein skilaboðin voru þess efnis að send- andi óskaði þess að leikhópsins biðu „verstu mögulegu ör- lög með veikindum og dauða“. Raphael Parry, listrænn stjórnandi Shakespeare Dallas í Texas, segist hafa fengið um 80 skilaboð þar sem sér væri hót- að kynferðisofbeldi og lífláti. „Þeir óska okkur og fjölskyldum okkar dauða. Margir segjast vonast til þess að við munum brenna í helvíti,“ segir Parry og tekur fram að skila- boðin hafi komið sér á óvart. „Þeir [sem senda skilaboðin] virðast hafa leitað lauslega á Google. Ef maður gúglar „Shakespeare in the Park“ í umdæmi Texas þá skýtur nafn okk- ar fyrst upp kollinum og þeir láta síðan bara vaða.“ Stephen Greenblatt, virtur Shake- speare-fræðimaður hjá Harvard- háskóla, segir hægri öfgamenn mis- skilja inntak Júlíusar Sesars, því leikritið fordæmi ofbeldi í stað þess að hvetja til þess. Segir hann verkið vara við því að hættulegt geti verið að öðlast það sem menn sækjast eft- ir og launmorð á hötuðum leiðtoga „gæti leitt til endaloka lýðveldisins sem ætlunin var að bjarga“. silja@mbl.is Hægri öfgamenn reiðir Shakespeare Umdeildur Veggspjald hinnar umdeildu sýningar. AFP Sing Street Ungur drengur sem elst upp í Dublin á níunda áratugnum fer að heiman og stofnar hljómsveit. Metacritic 79/100 IMDb 8,0/10 Bíó Paradís 17.30, 19.30 Hjartasteinn Örlagarík þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja. Morgunblaðið bbbbm IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 17.30 Everybody Wants Some!! Hópur hafnarboltaleikmanna upplifir. árið 1980,frelsið og áhyggjulausa veröld í und- anfara fullorðinsáranna. Metacritic 83/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 17.45 Knight of Cups Kvikmynd um mann sem er fangi frægðarinnar í Holly- wood. Morgunblaðið bbmnn Metacritic 53/100 IMDb 5,7/10 Bíó Paradís 20.00 Embrace of the Serpent Metacritic 82/100 IMDb 7,9/10 Bíó Paradís 22.30 Lion Metacritic 69/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 21.30 Rough Night 12 Fimm vinkonur úr háskól- anum koma saman eftir 10 ára aðskilnað í tilefni af gæs- un einnar þeirra í Miami. Metacritic 52/100 IMDb 5,5/10 Laugarásbíó 20.00, 22.10 Smárabíó 15.10, 17.40, 19.30, 20.00, 22.15 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.10 Baywatch 12 Mitch Buchannon, sem lend- ir upp á kant við nýliðann Matt Brody. Þeir neyðast þó til að starfa saman. Morgunblaðið bbnnn Metacritic 37/100 IMDb 5,7/10 Laugarásbíó 17.30 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 20.00 Sambíóin Keflavík 20.00 Guardians of the Galaxy Vol. 2 12 Útverðir alheimsins halda áfram að ferðast um alheim- inn. Þau þurfa að halda hóp- inn og leysa ráðgátuna um foreldra Peter Quill. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 67/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 22.20 Pirates of the Caribbean: Salazar’s Revenge 12 Jack Sparrow skipstjóri á á brattann að sækja enn á ný þegar illvígir draugar, undir stjórn erkióvinar hans Salaz- ar skipstjóra, sleppa úr þrí- hyrningi djöfulsins, ákveðnir í að drepa hvern einasta sjó- ræningja á sjó ... þar á meðal hann. Metacritic 39/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.15, 20.00, 22.45 Sambíóin Egilshöll 19.50, 22.30 Sambíóin Kringlunni 22.20 Sambíóin Akureyri 22.30 Alien: Covenant 16 Áhöfnin á Covenant geim- skipinu uppgötvar áður óþekkta paradís. Fyrr en var- ir komast meðlimir hennar að því að hér er í raun og veru drungaleg veröld. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 65/100 IMDb 6,8/10 Smárabíó 19.50, 22.30 Snatched 12 Þegar kærastinn Emily sparkar henni ákveður hún að fá varkára móður sína með sér í frí til Ekvador. Morgunblaðið mnnnn Metacritic 45/100 IMDb 3,6/10 Háskólabíó 21.10 Spólað yfir hafið Morgunblaðið bbbbn Borgarbíó Akureyri 17.50 Bílar 3 Leiftur McQueen þarf að víkja fyrir nýrri kynslóð hrað- skreiðra kappakstursbíla. Metacritic 59/100 IMDb 7,4/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 15.20, 17.40, 20.00 Sambíóin Egilshöll 17.30 Sambíóin Kringlunni 17.20, 17.40, 20.00 Sambíóin Akureyri 17.40, 20.00 Sambíóin Keflavík 17.40, 20.00 Smárabíó 15.10, 17.30 Stubbur stjóri Sjö ára drengur verður af- brýðisamur út í ofvitann, litla bróður sinn. Metacritic 50/100 IMDb 6,4/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.15 Háskólabíó 17.50 Heiða Hjartnæm kvikmynd um Heiðu, sem býr hjá afa sín- um í Svissnesku Ölpunum. IMDb 7,4/10 Laugarásbíó 17.30 Smárabíó 15.10 Spark: A Space Tail Metacritic 22/100 IMDb 4,4/10 Sambíóin Álfabakka 15.00 Þó að hún hafi verið kirfilega jörðuð í grafhvelfingu djúpt í iðrum eyðimerkurinnar, þá vaknar forn drottning, sem var svipt örlögum sínum á órétt- látan hátt, upp í nútímanum. Metacritic 34/100 IMDb 5,8/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Sambíóin Álfabakka 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.20 Sambíóin Keflavík 22.30 Smárabíó 17.00, 17.20, 19.50, 22.00, 22.10 Háskólabíó 18.00, 20.50 Borgarbíó Akureyri 20.00, 22.10 The Mummy 16 Ég man þig 16 Ungt fólk sem er að gera upp hús á Hesteyri um miðjan vetur fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Morgunblaðið bbbbn IMDb 8,0/10 Laugarásbíó 20.00, 22.20 Smárabíó 17.40, 20.00, 22.20 Háskólabíó 18.10, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.50 Bíó Paradís 22.00 Kvikmyndir bíóhúsannambl.is/bio Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Wonder Woman 12 Herkonan Diana, prinsessa Amazonanna, yfirgefur heimili sitt í leit að örlögunum. Morgunblaðið bbbmn Metacritic 76/100 IMDb 8,1/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 20.00, 22.55 Sambíóin Egilshöll 17.00, 19.50, 22.40 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.35 Sambíóin Akureyri 17.15, 22.15 Sambíóin Keflavík 22.20 Mangójógúrt Ástæða þess að þú átt að velja lífræna jógúrt: Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Handfræsi tennur - Dósaborar fyrir ti b málma flísar Þjónusta við tréiðnaðinn í yfir 30 ár MEIRI HRAÐI - LENGRI ENDING Flísaborar Demantsborar m ur, og Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur • Sími 564 1212 • asborg.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.