Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.06.2017, Side 35
4.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Í bókinni Ásýnd heimsins – um listir og
fagurfræði í hugmyndaheimi nútímans
rekur Gunnar J. Árnason hugmyndir
fjölda hugsuða sem mótað hafa heims-
mynd okkar og reifar það hlutverk sem
listir og fagurfræði hafa gegnt í hug-
myndum þeirra í leit að svari við því
hvaða hlutverki listir gegni í tilveru
mannsins og samfélaginu. Gunnar hef-
ur skrifað um myndlist um árabil og
kennt heimspeki lista og fagurfræði í Listaháskóla Íslands.
Listaháskóli Íslands og Háskólaútgáfan gefa bókina út.
Listir og fagurfræði
Kólumbíski rithöfundurinn Juan Gabr-
iel Vásquez er gjarnan talinn með eftir-
tektarverðustu rithöfundum Suður-
Ameríku í dag. Skáldsaga hans, Orð-
spor, kom nýverið út í íslenskum
búningi Sigrúnar Á. Eiríksdóttur. Í bók-
inni segir frá skopmyndateiknaranum
Javier Mallarino, manni á miðjum aldri
sem er á hátindi ferils síns þegar ung
kona leitar til hans og hrindir af stað
ófyrirsjáanlegri atburðarás. Orðspor er önnur bók bóka-
klúbbsins Sólarinnar, sem bókaforlagið Benedikt rekur.
Mallarino riðar til falls
Breski rithöfundurinn Lee Child hefur
skrifað 22 bækur um hörkutólið Jack
Reacher, sem selst hafa í milljónavís.
Eftirlýstur er tíunda bókin um Reacher
sem kemur út á íslensku. Bókin hefst
þar sem Reacher húkkar sér far seint
að kvöldi. Eftir allnokkra bið stöðvar
bíll og býður honum far í austurátt.
Tímalega hefst bókin þar sem Fórnar-
dauða lauk, en sú bók kom út 2012, án
þess þó að vera beint framhald.
Jón St. Kristjánsson þýddi, JPV gefur út.
Reacher á flótta
BÓKSALA 24.-30. MAÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1
Litla bakaríið
við Strandgötu
Jenny Colgan
2 Ljótur leikurAngela Marsons
3 StofuhitiBergur Ebbi Benediktsson
4 Gæfuspor - Gildin í lífinuGunnar Hersveinn
5 Hljóðar raddirAnn Cleeves
6 Sagan af barninu sem hvarfElena Ferrante
7 Iceland Flying highÝmsir höfundar
8 Í skugga valdsinsViveca Sten
9 LögganJo Nesbø
10 Íslensk öndvegisljóðPállValsson tók saman
1
Doktor Proktor
og gullránið
Jo Nesbø
2 Risasyrpa Glóandi gullWalt Disney
3 Vaiana þrautabókWalt Disney
4
Komdu út
Brynhildur Björnsdóttir/
Kristín Eva Þórhallsdóttir
5 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
6 Bílar Tekinn með Trompi!Walt Disney
7 Fyrsta orðabókin
8 Litli prinsinnAntoine de Saint-Exupéry
9 Grimmi tannlæknirinnDavid Walliams
10
Íslandsbók barnanna
Margrét Tryggvadóttir /
Linda Ólafsdóttir
Allar bækur
Barnabækur
Ég var að lesa Bókaránið mikla
eftir Stéphanie Surrugue og Lea
Korsgaard sem kom út 2009.
Þetta er heim-
ildasaga um yfir-
gripsmesta þjófnað
á menningar-
verðmætum í sögu
Danmerkur, saga
um bókaþjóf og fjöl-
skyldu hans og
hvernig verðmætar bækur hurfu
þúsundum saman úr Konunglega
bóksafninu í Kaupmannahöfn. Ég
las hana vegna þess að ég er að
fara með samstarfsfólki mínu í
skoðunarferð til að skoða bóka-
söfn í Danmörku, og meðal ann-
ars svarta demantinn, sem er
þetta bókasafn.
Svo er ég að lesa
bókina Mannsævi
eftir Robert Seeth-
aler. Elísa Björg
Þorsteinsdóttir
þýðir hana og það
er mikill gæða-
stimpill. Hún segir frá ævi manns
sem elst upp í litlu fjallaþorpi í
Ölpunum og ræður sig til að setja
upp kláfa upp á Alpana og þá
heldur nútíminn innreið sína í
þorpið. Þetta er mjög mögnuð
bók og áhrifamikil, sem endur-
speglar eina mannsævi og líka
sögu tuttugustu aldarinnar.
ÉG ER
AÐ LESA
Ragna Guð-
mundsdóttir
Ragna Guðmundsdóttir er bóka-
safns- og upplýsingafræðingur.
Nýlistasafnið hefur gefið út bók-
ina Án titils / Untitled með verk-
um og heimildum um starf og
framlag listamannsins Ólafs Lár-
ussonar (1951-2014), einum af
stofnendum Nýlistasafnsins. Í
bókinni skrifar Halldór Björn
Runólfsson um Ólaf og birt eru
viðtöl við vini Ólafs og sam-
tímamenn, þar á meðal Hrein
Friðfinnsson, Hildi Hákonardótt-
ur, Kees Visser, Kristján Guð-
mundsson, Magnús Pálsson, Níels
Hafstein, Rúrí, Sigurð Guð-
mundsson og Þór Vigfússon.
Einnig eru birt brot úr viðtölum
við Ólaf.
Án titils /
Untitled er á
íslensku og
ensku, eins og
heiti bók-
arinnar ber
með sér. Rit-
stjórar eru
Þorgerður
Ólafsdóttir og
Becky For-
sythe. Bókin er gefin út í fram-
haldi sýningarinnar Rolling Line
sem stendur yfir í Nýlistasafninu
til sunnudagsins 11. júní. Þetta er
í fyrsta sinn sem gefin er út bók
um verk og feril Ólafs Lárussonar.
LISTASAGA
Ólafur án titils
Kringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is HEYRNARSTÖ‹IN
Enn snjallara heyrnartæki
Beltone Legend
Nýja Beltone Legend™ heyrnartækið tengist þráðlaust beint í iPhone, iPad og iPod touch.
Komdu í ókeypis heyrnarmælingu og fáðu heyrnartæki lánað til reynslu.
Beltone Legend gengur með iPhone 6s og eldri gerðum, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi.
Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
™
Ókeypis
heyrnarmælingsíðan 2004
FLUGUVARNIR – MARGAR GERÐIR
• Flugnabani, 3 gerðir
• Flugnapappír 7m x 30cm
• Flugnaspjöld 60 x 34 cm
• Flugnagildra
• Flugnabani 100g
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600