Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 24
HEILSA Laga má heimatilbúinn íþróttadrykk með því að blanda samanhreinum epladjús og vatni í jöfnum hlutföllum. Klakar skemma ekki fyrir vilji fólk hafa drykkinn ískaldan. Heimatilbúinn íþróttadrykkur 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.6. 2017 Neysla íþróttadrykkja snýstekki um „já eða nei“ hjáþeim sem æfa stíft, heldur um magnið og tilefnið. Við æfingar sem standa yfir í 30 mínútur eða minna eru íþróttadrykkir alveg óþarfir og vatn nóg, ef sá sem æfir þarf að drekka eitthvað yfirhöfuð. Þetta segir Fríða Rún Þórðardóttir, nær- ingarfræðingur og hlaupari. Hún segir besta íþróttadrykk- inn einfaldlega vera vatnið undir slíkum kringumstæðum. „Sama gildir um áreynslu sem var- ir í um eina klukkusund, þar ætti vatn að vera nóg. Hins vegar ef áreynslan stendur lengur en ein klukkustund, og álagið er mikið að auki, þá mætti nota íþróttadrykk samhliða vatni,“ segir Fríða Rún. Hún segir marga ekki átta sig á syk- urmagninu í íþróttadrykkjum, m.a. vegna þess að þeir eru kallaðir „íþrótta“, eru í boði í íþróttamann- virkinu eða heilsuræktarstöðinni sem fólk sækir eða eru styrktaraðilar íþróttaviðburða, s.s. hlaupa. „En það má nota íþróttadrykki í hófi. Bara vega og meta aðstæður í hvert sinn og einnig markmiðið með hreyfing- unni, en ekki aðeins horfa á fallegan brúsann með bláa drykknum í,“ segir Fríða Rún. Bæði kolvetni og kalóríur Innihald drykkjanna er vatn, kol- vetnagjafi og mismunandi tegundir steinefna, stundum nefnd sölt. Kol- vetnin sem helst er að finna í íþrótta- drykkjunum eru glúkósi, maltódextr- ín, sykur og ávaxtasykur. Kolvetnamagn er tiltölulega staðlað milli drykkjartegunda, en tegund kolvetna er breytilegri. Fríða Rún segir að undir álagi sé ráðlagt að drekka drykki sem séu 4-8% að styrk sem þýðir að 4-8 grömm af kolvetn- um séu í hverjum 100 ml af drykkn- um. Er það vegna þess að sé drykkjarins neytt undir álagi valdi hærri styrkur (meira magn kolvetna) líklega óþægindum í meltingarveg- inum sem þá lýsi sér sem stingir, krampar eða jafnvel niðurgangur. Kolvetnagel hafa svipaða samsetn- ingu og íþróttadrykkur, en styrkur kolvetna er meiri í geli enda ætlast til að vatnssopi fylgi á eftir þegar gelinu hefur verið sprautað upp í munninn. Þeir sem stunda heilsurækt til að lækka fituprósentu og léttast sam- hliða því að láta sér líða betur and- lega og líkamlega ættu alls ekki að drekka íþróttadrykki að sögn Fríðu Rúnar. „Ef við ætlum að grenna okk- ur þá þarf að vera mismunur á milli þeirrar orku sem við brennum og tökum inn, en það þarf einnig að vera gott jafnvægi á því hvað við borðum mikið af kolvetnum, hvað við borðum mikið af próteinum og hversu stór hluti orkunnar kemur úr fitu. Einnig skipta gæði kolvetna og fitu máli, eins og kemur fram í nýjustu næring- arráðleggingum Embættis land- læknis,“ segir Fríða Rún. Fríða Rún bendir á að með aukinni hreyfingu hækki magn þeirra pró- teina sem æskilegt sé að fólk neyti. Það fer úr 0,8 grömmum á hvert kíló líkamsþyngdar upp í 1,8 til 2 grömm á kíló. Algeng þörf kolvetna er á bilinu 3 til 6 grömm á kíló en allt að 12 grömm á kíló hjá þeim sem æfa fyrir maraþon og álíka vegalengdir. Algeng þörf fyrir kraft- og sprett- þjálfun eru fimm til sex grömm á kíló. Notar hvorki íþróttadrykki né gel í styttri hlaupum Spurð hvort einhverjir íþróttadrykk- ir séu betri, hollari, en aðrir segir Fríða Rún að sykurminni drykkirnir séu betri kostur út frá sykurmagninu að gera. Drekki fólk hins vegar meira af slíkum drykkjum, til þess að full- nægja kolvetna- og orkuþörf, hverfur hugsanlega ávinningurinn af neyslu slíkra drykkja. Fríða Rún tekur þó fram að hún sé ekki með þessu að benda á nauðsyn íþróttadrykkja við að standa straum af kolvetnaþörf í íþróttum. Sjálf not- ar hún hvorki íþróttadrykki né kol- vetnagel núna. „Ég þarf ekki á því að halda miðað við tímalengd minna æf- inga,“ segir Fríða Rún. Hún stefnir að því að keppa í hálfu maraþoni í október gangi allt að óskum. „Þá verð ég að taka nokkra æfingatúra í haust þar sem ég fer með mitt gel og vatn og prófa mig áfram,“ „Í flestöllum hlaupum í heiminum í dag er boðið upp á hressingu með til- tekið löngu millibili yfir alla hlaupa- leiðina og er oftast miðað við hverja fimm kílómetra. Þeir sem eru að hlaupa fimm kílómetra vegalengd ættu ekki að þurfa að taka inn neina næringu á leiðinni og margir sem hlaupa tíu kílómetra keppnishlaup taka hvorki vatn né íþróttadrykk á leiðinni og er það allt í lagi nema að- stæður séu þeim mun heitari. Hins vegar þurfa þeir sem eru að hlaupa hálft og heilt maraþon á drykkjar- stöðvunum að halda, annað hvort til að drekka það sem þar er í boði eða að ná sér í vatnsglas til að skola kol- vetnagelinu niður,“ segir Fríða Rún. Hún segir að oft sé boðið upp á banana í hlaupum og þeir skornir í tvennt. Þykir mörgum það vera góð og þægileg næring þrátt fyrir að lík- lega séu það síður þeir sem keppa um fremstu sætin sem þiggja slíkar veitingar. „Þeir sem stunda of- urhlaup og tengdar greinar leggja oft síðri áherslu á kolvetni í sinni næringu, heldur oft meira á fasta fæðu, og þá hærra hlutfall próteina og fitu samhliða kolvetnunum. Það er skynsamlegt því lengri tíma tekur að hlaupa vegalengdirnar og þær eru hlaupnar á minni hraða en hefð- bundin götu-langhlaup. Þar með gefst betra tækifæri til að melta mat- inn og hafa fjölbreyttari matseðil,“ segir Fríða Rún. Aquarius 500 ml Kaloríur 130 Natríum 258 mg Kolvetni 32 g Sykur 32 g Gatorade 500 ml Kaloríur 113 Natríum 225 mg Kolvetni 30 g Sykur 30 g Vitamin Water 500 ml Kaloríur 102 Natríum 0 mg Kolvetni 28 g Sykur 27 g Powerade 500 ml Kaloríur 100 Natríum 260 mg Kolvetni 24 g Sykur 19 g Leppin 500 ml Kaloríur 25 Natríum 20 mg Kolvetni 6 g Sykur 0 g Heimild: myfitnesspal.com Sykraðir, en í lagi í hófi Fríða Rún Þórðardóttir næringarfræðingur segir íþróttadrykki óþarfa, nema við mjög mikil átök. Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Fríða Rún Þórðardóttir Vinsælir íþróttadrykkir innihalda mikinn sykur. Við útreikninga er miðað við að hver sykurmoli sé 2g. RafmagnssláttuvélarVélorf Mikið úrval vélorfa með tvígengis- eða fjórgengismótor. Einnig rafknúin orf: 220V, 18V og 36V. Mótorsláttuorf 43 cc 4-gengismótor, 1,45 hö Þyngd 7,1 kg 36V rafhlöðuorf Notar 2 x 18V rafhlöður Þyngd 5,2 kg Vélorf með rafmótor 230V Afl mótors 1000W Þyngd 4,1 kg ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.