Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Side 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Side 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.6. 2017 N ýr hópur stúdenta kveður Menntaskólann á Akureyri árlega, eins og nærri má geta. Kennarar koma og fara, jafn- vel skólameistarar, en verði stúdent frá aldarafmæli skólans 1980 við- staddur skólaslit í dag, laugardag 17. júní, sér hann að minnsta kosti einu kunnuglegu andliti bregða fyrir. Reyndar tveimur; einn kennarinn er sá sami, svo og maðurinn á bak við mynda- vélina, Páll A. Pálsson. Palli ljósmyndari, eins og hann er jafnan nefndur á Akureyri, hélt upp á það á dögunum að fimmtíu ár voru síðan hann stofnaði ljós- myndastofu sína. Páll er 71 árs en „rétt að byrja“ eins og hann orðar það sjálfur við blaðamann. Hann hefur myndað nýstúdenta í tæpa fjóra áratugi og þykir það skemmtilegt verkefni. Yfirleitt verið heppinn með veður, segir hann, enda Akureyr- ingur í húð og hár! Spáin er reyndar ekki góð fyrir daginn, rign- ing er í kortunum, en þótt sólskinsdagarnir séu minnisstæðari en hinir er hér á síðunni sönn- unargagn um að hann hékk ekki alltaf þurr. Páll byrjaði ungur að munda myndavélina. „Ég fór á námskeið hjá Æskulýðsráði Ak- ureyrar, líklega 1957 eða 58, þegar ég var 11 eða 12 ára. Þetta var heima hjá Hermanni Ingimarssyni, sem var með aðstöðu í kjall- aranum heima hjá sér í Hamarstígnum. Þar hafði hann byrgt glugga, því auðvitað mátti alls ekki sjást ljós þegar menn voru að fram- kalla filmur eða kópíera myndir. Ég geng stundum framhjá húsinu og sé þennan glugga; þá rifjast þetta allt upp fyrir mér.“ Áhuginn kviknaði snemma Hann segist strax ungur hafa hugleitt að leggja ljósmyndun fyrir sig. „Ég vissi af ljós- myndurum hér í bænum eins og Kristjáni Hallgrímssyni, Eðvarð Sigurgeirssyni og Guð- mundi Trjámannssyni; hann tók einmitt ferm- ingarmynd af mér á stofu sinni í Skipagötu 12.“ Ljósmyndastofa Páls er í húsinu númer 8 við Skipagötu, 27 skrefum frá númer 2 þar sem stofan hans var til húsa fyrstu árin. Þegar Páll var 17 ára og hálfu betur, haustið 1963, hóf hann nám í ljósmyndun. Þrátt fyrir góða fagmenn á Akureyri lærði hann á Húsa- vík, hjá Pétri Jónassyni. „Þá þurfti maður að vera hjá stofu hjá meistara,“ segir hann. Haustið 1966 hóf Páll störf hjá Sigurði Stef- ánssyni, sem var með ljósmyndastofu í Amaro- húsinu í miðbænum, var þar í nokkra mánuði þangað til honum áskotnaðist húsnæði við Skipagötu og eftir að hafa standsett það var Ljósmyndastofa Páls opnuð 3. júní 1967. Bæði stofndaginn og hálfrar aldar afmælið bar upp á laugardag. Á þessum árum þótti langt til Húsavíkur, segir Palli, þannig að hann flutti þangað og dvaldi í þrjú ár meðan á náminu stóð. Segist þrátt fyrir það hafa skotist til Akureyrar um hverja einustu helgi; hann var nefnilega í sér- staklega öflugum flokki skáta og alls ekki var langt heim til að hitta félagana! Helgunum var yfirleitt varið í tjaldi, snjóhúsi eða svefnpoka undir berum himni eftir aðstæðum. Páll man tímana tvenna, jafnvel þrenna. „Ég náði að taka mynd á glerplötu hjá Pétri,“ segir hann. „Það þýðir að ég virðist orðinn hrikalega gamall! Glerið var tveir millimetrar á þykkt og varla mátti hnerra í húsinu því þá brotnaði það. Síðan kom filman, blaðfilma og svo rúllufilma, og loks stafræna tæknin.“ Palli ljósmyndari er þekktur fyrir söfnunar- áráttu. Safnaði lengi barmmerkjum og kredit- kortum. Fleira mun leynast í safni hans en hann gerir ekki mikið úr því. Hlakka alltaf til Verkefnin eru að miklu leyti þau sömu nú og fyrir hálfri öld: að mynda fermingarbörn, brúðhjón, nýfædd börn og fjölskyldur. Auk þess hefur hann tekið hópmyndir í skólum. Lengi voru passamyndatökur drjúgur hluti starfsins en duttu að miklu leyti upp fyrir eftir að ljósmyndastofa ríkisins tók til starfa, eins og hann orðar það; þegar komið var upp myndavélum hjá sýslumannsembættum. Sú ákvörðun var kærð af Ljósmyndarafélaginu, málið vannst í héraðsdómi en tapaðist því mið- ur fyrir Hæstarétti, 5:0 Ég er ekki að gagnrýni starfsfólk sýslumannsembættanna en tel gæð- in hafa horfið með þessari ákvörðun.“ Þrátt fyrir allt hefur Páll haft gaman af starfinu alla tíð. „Það hefur aldrei gerst, á þessum fimmtíu árum, að ég nenni ekki í vinn- una! Ég hef alltaf hlakkað til – hvers einasta vinnudags og geri enn.“ Hef hlakkað til hvers vinnudags Akureyringurinn Páll Andrés Pálsson fagnaði því fyrir nokkrum dögum að fimmtíu ár voru liðin síðan hann opnaði ljósmyndastofu sína. Palli Páls segist hlakka til hvers einasta vinnudags. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Páll Andrés Pálsson á ljósmyndastofu sinni í vikunni, nokkurn veginn eins og hann hefur komið „fórnarlömbum“ sínum fyrir sjónir síðustu hálfa öldina. Morgunblaðið/Skapti Páll myndar nýstúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri 17. júní 1986. Pétur Einarsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, og 25 ára stúdent þennan dag, bjargar því sem bjargað verður í rigningunni! Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson ’Það var forkastanlegt þegarráðherra ákvað að passa-myndir skyldu teknar hjá emb-ættunum. Ég fullyrði að allar myndirnar eru vondar en það er að vísu ekki ólöglegt! Páll segist alla tíð hafa lagt áherslu á að gluggi ljósmyndastofu hans væri fallegur, og jafnan fengið fagmann til að sjá um verkið.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.