Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 18
HÖNNUN Húsgögnin á pallinum og svölunum þurfa viðhald. Á tréhúsgögnþarf að bera olíu reglulega og best að gera það í upphafi sumars. Passið bara að viðurinn nái að þorna almennilega. Ekki gleyma útihúsgögnum 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.6. 2017 Hrefna Daníelsdóttir heldur úti lífs-stílsbloggi á trendnet.is og starf-ar sem ritari á fasteignasölunni Hákoti á Akranesi. Hún er mikill fagurkeri og hefur sérlega fallegan og stílhreinan smekk. Sjálf lýsir hún stíl sínum sem frek- ar svart/hvítum en um leið blómlegum og hlýlegum. „Ég heillast mjög mikið af skandinavískum heimilum og heimilið okk- ar ber þess merki,“ segir Hrefna. ,,Ég er haldin breytingaræði inni á heimilinu og færi reglulega hluti á nýja staði. En breytingunum fylgir það ekki að þurfa stöðugt að kaupa nýja hluti, heldur færi ég þá hluti sem eru til fyrir á milli rýma, því það er ótrúlegt með þessa hluti að þeir öðlast oft nýtt líf í nýju rými. Ég er líka mjög dugleg að færa plönturnar til, bæði til að færa þær á milli birtustiga og líka til að fá græna litinn í rýmin.“ Litlu hlutirnir skipta mestu máli Hrefna segir það gera ótrúlega mikið að færa smáhluti til á milli rýma. „Ég mæli með því við fólk ef það vantar að Stórglæsileg stofa og griða- staður fjölskyldunnar er fallega innréttuð og einstaklega hlýleg. Morgunblaðið/Hanna Litli myndaveggurinn setur svip sinn á eldhúskrókinn. Hlutir fá nýtt líf í nýju rými Akranesmærin Hrefna Daníelsdóttir hefur sterkar skoðanir á útliti heimilisins og finnst mikilvægt að breyta reglulega til. Hrefna bauð blaðamanni Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins inn fyrir dyrnar á fallegt heimili sitt og fjölskyldunnar á Skaganum. Gunnþórunn Jónsdóttir gunntorunn@gmail.com breyta til og er orðið leitt á uppröðuninni inni á heimili sínu, að færa til hluti og þá ekkert endilega stóru hlutina, það eru nefnilega litlu hlutirnir sem skipta mestu máli. Það eru þeir sem skreyta rýmin og lífga upp á þau. Ein græn planta gerir líka kraftaverk, það finnst mér allavega.“ Hrefna segist fá innblástur úr sínu nærumhverfi, inni á heimilum sem hún heimsækir og úr tímaritum. ,,Instagram er líka frábær samfélagsmiðill til að sækja sér innblástur þegar kemur að heimilinu. Þið finnið mig þar, @hrefna- dan.“ Aðspurð hvort hún eigi sér einhvern uppáhaldsmun á heimilinu svarar Hrefna því neitandi. ,,Ég tengist hlut- um ekki tilfinningalegum böndum en ég elska að kúra með fjölskyldunni minni í sófanum okkar. Það er fátt betra en kósíkvöld í stóra, mjúka kósí sófanum okkar. Hins vegar er ég ekkert sérstaklega ánægð með sjónvarpið inni í stofu, væri alveg til í að hafa sjónvarpsherbergi þar sem sá gripur yrði geymdur, en það bíður betri tíma,“ segir Hrefna að lokum og hlær. Hrefna Daníelsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.