Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.06.2017, Blaðsíða 35
18.6. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Vilborg Arna Gissurardóttir Everestfari
og Pálína Ósk Hraundal, einnig þaul-
vanur útivistargarpur, hafa sent frá sér
Útilífsbók fjölskyldunnar þar sem fjallað
er um útiveru og heilbrigða lífshætti
með margvíslegum hætti. Þær segja
sögu sína og bjóða upp á hagnýtan fróð-
leik. Í tilkynningu segir að bókin hafi að
geyma fjölmargar hugmyndir að gef-
andi samsverustundum utandyra. Ýmis
viðfangsefni eru tekin sérstaklega fyrir, svo sem útieldun,
útileikir og útiföndur, búnaður og galdurinn við að rata!
Útivera fjölskyldunnar
Í bókinni Það sem lifir dauðann af er ást-
in, eru sýnishorn af ljóðaþýðingum
Kristjáns Árnasonar gegnum tíðina, allt
frá fornkvæðum Grikkja og Rómverja til
nýstárlegri samtímakvæða. Að auki eru
þar nokkur frumsamin ljóð Kristjáns
sem sum hafa birst áður. „Kristján
Árnason hefur um árabil verið í hópi
nafntoguðustu þýðenda okkar Íslend-
inga og er skemmst að minnast þýðingar
hans á Ummyndunum rómverska skáldsins Óvíds sem hlaut
Íslensku þýðingaverðlaunin,“ segir í tilkynningu útgefanda.
Það sem lifir dauðann af
Norðmaðurinn Jo Nesbø er heims-
frægur fyrir stórgóðar glæpasögur en
nú hefur þessi vinsæli rithöfundur tekið
sig til og skrifað fjórðu barnabókina,
Doktor Proktor og gullránið mikla, þar
sem segir af vinunum Lísu og Búa, brjál-
aða prófessornum Doktor Proktor og
ævintýrum þeirra. Rithöfundurinn „er
heimsfrægur fyrir að skrifa óhuggu-
legar glæpasögur fyrir fullorðna en í
Doktor Proktor og gullránið mikla fær hann útrás fyrir
sprellið í hjarta sínu,“ segir í frétt frá Forlaginu.
Barnabók frá Nesbø
BÓKSALA 7.-13 JÚNÍ
Listinn er tekinn saman af Eymundsson.
1 Með lífið að veðiYeonmi Park
2 EftirlýsturLee Child
3 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
4
Litla bakaríið við
Strandgötu
Jenny Colgan
5 Talin afSara Blædel
6 Morðið í GróttuStella Blómkvist
7 BrestirFredrik Backman
8
HÍF OPP! Gamansögur af
íslenskum sjómönnum
Guðjón Ingi Eiríksson
9 Sagan af barninu sem hvarfElena Ferrante
10 Iceland Small World- lítilSigurgeir Sigurjónsson
1 Gestir utan úr geimnumÆvar Þór Benediktsson
2 Óvættaför 27 KletturAdam Blade
3 Risasyrpa Glóandi gullWalt Disney
4 Muggur saga af strákElfar Logi Hannesson
5 Vaiana þrautabókWalt Disney
6 Atlasinn minn: Undurveraldar
7
Komdu út
Brynhildur Björnsdóttir/
Kristín Eva Þórhallsdóttir
8 Bílar Tekinn með Trompi!Walt Disney
9
Vísnabókin
Ýmsir / Halldór Pétursson
myndskreytti
10 Fríða og Dýrið, Saga FríðuWalt Disney
Allar bækur
Barnabækur
Þessa stundina les ég helst ævisög-
ur íslenskra manna af landsbyggð-
inni. Ég er nýbúinn að leggja frá
mér bókina Þar sem vegurinn
endar eftir Hrafn
Jökulsson. Einstök
bók. Hún tvinnar
saman á magnaðan
máta skemmtilegar
sögur af höfundi og
fróðleik um Strand-
irnar. Þessi bók kláraðist í einni
„setu“.
Nú er ég að lesa bókina Eyr-
arpúkinn eftir Jóhann Árelíuz. Í
þessum orðum
skrifuðum er ég
hálfnaður með bók-
ina og líkar vel. Bók-
in er samansafn ör-
sagna af höfundi á
hans uppvaxt-
arárum, bæði af „Eyrinni“ á Ak-
ureyri sem og í sveit í Vopnafirði.
Bókin sem ég les næst verður Nú
brosir nóttin – Ævi-
minningar Guð-
mundar Ein-
arssonar. Ég hlakka
mikið til. Guð-
mundur frá Brekku
á Ingjaldssandi var
ein kunnasta refaskytta Íslands og
landsþekktur fyrir visku sínu og
göfuglyndi. Ekki skemmir fyrir að
hann var langafi minn og því löngu
kominn tími til að ég lesi bókina.
ÉG ER
AÐ LESA
Bjarki Ármann
Oddsson
Bjarki Ármann er íþrótta- og
tómstundafulltrúi í Fjarðabyggð
Út er komin bókin Flökkusögur
eftir Sigmund Erni Rúnarsson.
„Gömul hjón á strípibar í New Or-
leans, rottur og bækluð börn í
Varanasi, himnesk stund með
Sophiu Loren, elskendur í blóði
sínu í Sarajevo, innmúraður mað-
ur í Palestínu, átta smokka nótt í
Nata, skítafangari í París, maður
sem tapaði fjalli í Armeníu,“ segir
í tilkynningu frá Veröld, sem gefur
bókina út. Í henni lýsir Sigmundur
„ýmsum af skrýtnustu augnablik-
um sem hann hefur upplifað á
flandri sínu um framandi slóðir.
Hér fær frásagnargleði sagna-
meistarans að blómstra en líka
innsæi ljóðskáldsins. Flökkusögur
er einstök og stílfögur bók um
mannlífið í öllum sínum marg-
breytilegu myndum.“
SIGMUNDUR ERNIR Á FLAKKI
Átta smokka nótt …
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Active Liver stuðlar að
eðlilegum efnaskiptum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Nánari upplýsingar á www.icecare.is
Heilbrigð melting
Inniheldur:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil og ætiþistil sem talin eru
stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
VÍNREKKAR
stafnanlegir í þremur litum
svartir, kopar og brass
kr. 6.500
kr. 11.600
kr. 16.700Gavi vínrekki fyrir 15 flöskur - kr. 21.400
NÝTT