Víkurfréttir - 18.12.2003, Page 60
M e n n i n g a r b æ r i n nReykjanesbær tekursífellt á sig fjölbreytt-
ari mynd, en er hún öll af hinu
góða? Í nýrri og glæsilegri
Hafnargötu heldur nú klám-
iðnaðurinn innreið sína. Frá
þessu var greint í Víkurfréttum
þann 11. des. sl. Blaðið virðist
hafa sérstakan áhuga á þessum
málum og færir klámvæðing-
unni ókeypis auglýsingar. Á vef
Víkurfrétta var ítarlega sagt
frá því að á veitingastaðnum
Castró við Hafnargötu yrði
klámkvöld haldið. Eitthvað
virðist blaðið síðan hafa séð að
sér. Í prentaðri útgáfu þess
hafði „fréttinni“ verið breytt úr
klámkvöldi í nektar og erótík-
ur kvöld. Minnir það mig á
úlfinn sem brá sér í dulargervi
í sögunni um Rauðhettu.
Síðan var sagt frá því að dansað
yrði fáklætt í búrum og sýnd tæki
og tól klámiðnaðarins. Auk þess
sem klámkóngur Íslands myndi
mæta á svæðið. Hvaða ólánsami
einstaklingur sem það nú er.
Greint var frá því að konur
fengju ókeypis aðgang. Skóla-
fólk sem er að ljúka jólaprófum
var síðan boðið sérstaklega vel-
komið. Síðan rann stóra stundin
upp og voru þá einnig sýndar
klámmyndir á breiðtjaldi og þær
sagðar vera erótík.
Markhópurinn var ungt fólk, 16
– 20 ára, sem flest býr í foreldra-
húsum. Klámvæðingin lætur
greinilega ekki sitt eftir liggja í
jólaundirbúningnum á aðvent-
unni. Nú er dansað nakið í búr-
um en ekki í jólafötum í kringum
jólatré.
Hvert stefnum við sem samfé-
lag? Var dóttir þín eða sonur á
klámkvöldi á aðventunni? Dans-
ar dóttir þín nakin í búri? Þetta
kann að hljóma harkalega en
gleymum því ekki að fórnarlömb
klámiðnaðarins eiga líka for-
eldra. Hvernig skyldi þeim líða?
Er klámvæðingin bara sjálfsögð
og eðlileg ? Er okkur alveg
sama? Er þetta bara raus í mér?
Hvað þurfum við til þess að skil-
ja hvað sé skynsamlegt og hvað
ekki?
Er unga fólkið vandamálið eða
erum við foreldrarnir ef til vill
vandamálið?
Foreldrar, gleymum ekki okkar
mikilvæga hlutverki. Höfum í
huga að unga fólkið er áhrifa-
gjarnt og sækir sér fyrirmyndir.
Kennum börnum okkar hollar
lífsreglur. Kennum þeim réttlæti,
réttvísi og ráðvendni. Veitum
þeim óreyndu þekkingu og að-
gætni. Vöknum af vondum
draumi fyrirhyggjuleysis.
Stöndum saman gegn klámvæð-
ingunni og mótmælum með
framúrskarandi dómgreind að
vopni.
Birgir Þórarinsson.
Höfundur er BA í guðfræði og
situr í samstarfsnefnd lögreglu
og sveitarfélaga á Suðurnesjum.
JÓLABLAÐ VÍKURFRÉTTA 2003 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!60
G
le
ð
il
e
g
a
h
á
tí
ð
!
Klámkvöld á aðventu
Hvert stefnum við sem samfélag? Var dóttir þín eða sonur á klámkvöldi á aðventunni? Dansar dóttir þín nakin í
búri? Þetta eru spurningar sem greinarhöfundur veltir upp. Svipmynd frá umræddu kvöldi. Mynd: Tobbi
Jolablad VF 2003 HEIMA 17.12.2003 9:36 Page 60