Víkurfréttir - 18.03.2004, Blaðsíða 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Ég hef ákveðið að segjaupp starfi mínu semíþrótta- og tómstunda-
fulltrúi hjá Sandgerðisbæ.
Þessa ákvörðun tek ég að vel
athuguðu máli og í samráði við
mína nánustu. Ástæða fyrir
henni er bókun sem Óskar
Gunnarsson, Reynir Sveinsson,
Sigurbjörg Eiríksdóttir og Ing-
þór Karlsson gerðu á 208.
fundi bæjarstjórnar Sandgerð-
isbæjar 10. mars s.l. Í bókun
þeirra segir m.a.:
„Afstaða Ólafs Þórs Ólafssonar
vekur furðu þar sem hann er
starfsmaður bæjarfélagsins og
ætti að leggjast á sveif með nú-
verandi meirihluta við uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja í bænum.
Hægt er að draga þá ályktun að
afstaða hans sé einnig í mótsögn
við afgreiðslu tveggja fagráða er
málið varðar þar sem hann er
starfsmaður þeirra“.
Í ljósi þessarar bókunar þeirra
fjögurra einstaklinga sem fara
með meirihlutavald í bæjarstjórn
er ljóst að mér er ekki lengur
vært í starf i íþrótta- og tóm-
stundafulltrúa hjá Sandgerðisbæ.
Þau gera ekki greinarmun á milli
starfsmanns bæjarfélags annars
vegar og pólitísks fulltrúa hins
vegar, skilja ekki að ég sit í bæj-
arstjórn sem fulltrúi nær fimmt-
ungs kjósenda í Sandgerði en
ekki sem starfsmaður þeirra.
Hitt þykir mér þó verra að ég er
vændur um að sinna ekki störf-
um mínum fyrir íþróttaráð og
tómstundaráð af heilindum.
Þetta sárnar mér, sérstaklega þar
sem ég tel mig hafa sinnt starfi
íþrótta- og tómstundafulltrúa af
fagmennsku og trúnaði.
Það er umhugsunarefni þegar
meirihluti bæjarstjórnar notar
pólitískt vald sitt á þann hátt sem
hér hefur verið gert. Ég er ekki
reiðubúinn til að starfa við slík
skilyrði og hef því tekið þá erfiðu
ákvörðun að segja upp starf i
mínu.
Í apríl 2004 verða átta ár frá því
að ég hóf störf sem íþrótta- og
tómstundafulltrúi. Á þessum
tíma hef ég fengið tækifæri til
kynnast og starfa með mörgum
frábærum einstaklingum og lært
mikið. Ég er þakklátur fyrir það.
Ólafur Þór Ólafsson
bæjarfulltrúi í Sandgerði
Íþróttamiðstöðin í Vogum áVatnsleysuströnd fékk aðgjöf hjartastuðtæki á dög-
unum sem Lionsklúbburinn
Keilir og Kvenfélagið Fjóla
gáfu. Öllum Íþróttamiðstöðum
á Suðurnesjum hafa verið
færðar slík tæki að gjöf á síð-
ustu vikum.
Jón Guðmundsson forstöðumað-
ur íþróttamiðstöðvarinnar í Vog-
um sagði að það skipti miklu
máli fyrir stöðina að eiga slíkt
tæki. „Ef slys ber að höndum
skiptir miklu máli að hafa svona
tæki við höndina því það eru um
10 mínútur í næsta sjúkrabíl héð-
an. Það er alveg ljóst að tæki sem
þetta gæti skipt sköpum í þannig
tilfelli.“
➤ Ó L A F U R Þ Ó R Ó L A F S S O N S K R I F A R
➤ V O G A R Á V AT N S L E Y S U S T R Ö N D
Opið bréf til Sandgerðinga
FRÁ AFHENDINGU TÆKISINS.
Hanna Helgadóttir frá Kvenfélaginu Fjólu, Rikharður Reynisson
og Hrönn Kristbjörnsdóttir frá Lionsklúbbnum Keili og Jón Guðmundsson
forstöðumaður.
Íþróttamiðstöðin í Vogum
fær hjartastuðtæki
stuttar
f r é t t i r
BLETTA-
SKOÐUN
Á HÚÐ
Krabbameins fé lagSuðurnesja og HelgaHrönn Þórhallsdóttir
húðsjúkdómalæknir bjóða
þeim sem áhyggjur hafa af
blettum á húð að
koma til bletta-
skoðunar laug-
ardaginn 20.
mars. Metið
verður hvort
ástæða er til frekari að-
gerða og er skoðunin án
endurgjalds.Þeir sem vilja
nýta sér þetta þurfa að
panta tíma í síma 421 7575.
Tíðni húðkrabbameins hefur
aukist mjög hér á landi á síð-
ari árum. Mikilvægt er því að
fólk láti skoða bletti ef fram
koma breytingar svo sem
stækkun, breytingar á lögun
og lit eða sár myndast.
VF-MYND: JÓHANNES KR. KRISTJÁNSSON
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 13:17 Page 6