Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.03.2004, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 18.03.2004, Blaðsíða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! ÁSuðurnesjum hefur ekkiverið ráðherra frá stofn-un lýðveldisins. Ég hef það á tilfinn- ingunni að rík- isvaldið sé orð- ið því vant að lítið þurfi að þjóna þessu svæði. Nú á síð- ustu árum hef- ur þetta verið mjög áberandi og framkoma nokkurra ráð- herra tekið af öll tvímæli hvað þetta varðar. Við skulum hugsa okkur að Stokksnesið, sem nú hefur verið yfirgefið af Bandaríkjaher mynd- aði tungu sem skiptir miðjum Hornafjarðarbæ. Utanríkisráð- herra er búinn að taka við land- inu og hagnast um hundruð milljóna á þeim viðskiptum. Ágætu Suðurnesjamenn sjáið þið það fyrir ykkur ef staðan væri þessi að utanríkisráðherra byði þetta land út til hæstbjóðanda. Ég þarf ekki að hugsa mig lengi um. Landið hefði verið afhent án gjaldtöku og greiddar bætur fyrir, jafnvel hefði verið þakkað fyrir afnotin. En af því að Nikkel- svæðið er á milli Keflavíkur og Njarðvíkur telur utanríkisráð- herra sjálfsagt að við greiðum háar fjárhæðir fyrir landið sem tekið var eignarnámi og sáralítið greitt fyrir það á sínum tíma. Ekki dugar að benda á að fyrr- verandi landeigendur hafi átt for- kaupsrétt því ráðherra sem gat skipt landinu upp í kvótasvæði norður og suðurhluta og haft Hornafjörð með norðurhluta sem gaf 20% meiri kvóta, ætti ekki að vera í vandræðum með að semja við landeigendur um fram- reiknað verð fyrir landið. Ríkis- valdið er orðið svo vant að hunsa okkar landshluta að engu tali tek- ur. Ráðherra með sérstakan áhuga á jöfnuði Nú nýverið taldi iðnaðar og við- skiptaráðherra nauðsynlegt að jafna flutningsgjald á raforku með því að skattleggja m.a. Suð- urnesin en varð að láta í minni pokann vegna harðfylgis HS og OR. Hvað er jöfnuður í huga ráð- herra, nú nýverið var úthlutað úr nýsköpunarsjóði 550 milljónum þar af fóru 400 milljónir í kjör- dæmi ráðherra og ekki nóg með það, þetta kom henni algerlega á óvart en einhver kynni að halda því fram að þetta séu innherja- viðskipti. Nú vill hún fella niður flutningsgjald á sementi og get ég verið því sammála í megin at- riðum en ég efast um að ráðherra beitti sér í þessu máli ef sement- sala væri t.d. frá Húsavík í stað Helguvíkur hvað þá ef Sement- verksmiðja ríkisins væri starf- andi. Eitt er víst að ekki verða þessir ráðherrar vændir um að vera hér á atkvæðaveiðum, ljóst er að þeir leggja allt sitt traust á gullfiskaminni kjósenda. Ef það er vilji ráðherra að stuðla að jöfn- uði þá eru hæg heimatökin í þeim efnum t.d. að jafna lífeyris- réttindi, jafna atkvæðisrétt, jafna styrkjum og greiðslum á lands- hluta svo fátt eitt sé nefnt. Því miður blasir allt annar veru- leiki við flestum landsmönnum, þingið sýndi einstakt framtak í eftirlaunamálinu, sjálfshyggjan endurspeglast í því máli. Hæpin fjárfesting Reykjavíkurborg líður fyrir Reykjavíkurflugvöll, hundruðum milljóna er varið til endurbóta á flugvellinum jafnvel þó vél- skóflukjaftarnir bíði á hliðarlín- unni til að moka honum í burtu en mörgum þingmönnum finnst þetta hentugt. Samanburður á fjárveitingum Gaman væri að fá samanburðar- tölur á fjárveitingum og styrkjum td. Eyjafjarðarsvæðinu og Suður- nesjum þá kemur sennilega í ljós hvað er jöfnuður í hugum ráða- manna. Það má margt læra af slíkum samanburði t.d. jöfnuði og hver er að greiða niður fyrir hvern. Ef til vill eiga þingmenn okkar í erf iðleikum með að koma Suðurnesjum á fjárlaga- kortið eftir áratuga utanveltu, en ástæðan er einföld, við höfum aldrei átt málsvara á ríkisstjórn- arfundi, til þess þarf ráðherra. Ráðherra margra þingsæta virði Nú á haustmánuðum verða hrókeringar á ráðherrastólum og gefur það ekki tilefni til bjartsýni fyrir okkur Suðurnesjamenn. Það væri mikil bót fyrir kjósendur og lýðræðið ef ráðherraefni væru tilgreind á framboðslistum, land- ið gert að einu kjördæmi og hag- ur heildarinnar hafður að leiðar- ljósi en eins og málum er nú komið er ráðherra margra þing- sæta virði. Framganga Eyjafjarð- arráðherra undirstrikar græðgis- vísitöluna og vanhæfni ýmissa þingmanna til að vinna að hag heildarinnar. Hér gefst nú kjörið tækifæri til að rétta af margra áratuga slagsíðu og tilnefna ráð- herra af Suðurnesjum. Sturlaugur Ólafsson. Já, ráðherra! ➤ S T U R L A U G U R Ó L A F S S O N 12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 13:26 Page 12

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.