Víkurfréttir - 18.03.2004, Síða 12
12 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
ÁSuðurnesjum hefur ekkiverið ráðherra frá stofn-un lýðveldisins. Ég hef
það á tilfinn-
ingunni að rík-
isvaldið sé orð-
ið því vant að
lítið þurfi að
þjóna þessu
svæði. Nú á síð-
ustu árum hef-
ur þetta verið mjög áberandi
og framkoma nokkurra ráð-
herra tekið af öll tvímæli hvað
þetta varðar.
Við skulum hugsa okkur að
Stokksnesið, sem nú hefur verið
yfirgefið af Bandaríkjaher mynd-
aði tungu sem skiptir miðjum
Hornafjarðarbæ. Utanríkisráð-
herra er búinn að taka við land-
inu og hagnast um hundruð
milljóna á þeim viðskiptum.
Ágætu Suðurnesjamenn sjáið þið
það fyrir ykkur ef staðan væri
þessi að utanríkisráðherra byði
þetta land út til hæstbjóðanda. Ég
þarf ekki að hugsa mig lengi um.
Landið hefði verið afhent án
gjaldtöku og greiddar bætur fyrir,
jafnvel hefði verið þakkað fyrir
afnotin. En af því að Nikkel-
svæðið er á milli Keflavíkur og
Njarðvíkur telur utanríkisráð-
herra sjálfsagt að við greiðum
háar fjárhæðir fyrir landið sem
tekið var eignarnámi og sáralítið
greitt fyrir það á sínum tíma.
Ekki dugar að benda á að fyrr-
verandi landeigendur hafi átt for-
kaupsrétt því ráðherra sem gat
skipt landinu upp í kvótasvæði
norður og suðurhluta og haft
Hornafjörð með norðurhluta sem
gaf 20% meiri kvóta, ætti ekki
að vera í vandræðum með að
semja við landeigendur um fram-
reiknað verð fyrir landið. Ríkis-
valdið er orðið svo vant að hunsa
okkar landshluta að engu tali tek-
ur.
Ráðherra með sérstakan
áhuga á jöfnuði
Nú nýverið taldi iðnaðar og við-
skiptaráðherra nauðsynlegt að
jafna flutningsgjald á raforku
með því að skattleggja m.a. Suð-
urnesin en varð að láta í minni
pokann vegna harðfylgis HS og
OR. Hvað er jöfnuður í huga ráð-
herra, nú nýverið var úthlutað úr
nýsköpunarsjóði 550 milljónum
þar af fóru 400 milljónir í kjör-
dæmi ráðherra og ekki nóg með
það, þetta kom henni algerlega á
óvart en einhver kynni að halda
því fram að þetta séu innherja-
viðskipti. Nú vill hún fella niður
flutningsgjald á sementi og get
ég verið því sammála í megin at-
riðum en ég efast um að ráðherra
beitti sér í þessu máli ef sement-
sala væri t.d. frá Húsavík í stað
Helguvíkur hvað þá ef Sement-
verksmiðja ríkisins væri starf-
andi. Eitt er víst að ekki verða
þessir ráðherrar vændir um að
vera hér á atkvæðaveiðum, ljóst
er að þeir leggja allt sitt traust á
gullfiskaminni kjósenda. Ef það
er vilji ráðherra að stuðla að jöfn-
uði þá eru hæg heimatökin í
þeim efnum t.d. að jafna lífeyris-
réttindi, jafna atkvæðisrétt, jafna
styrkjum og greiðslum á lands-
hluta svo fátt eitt sé nefnt.
Því miður blasir allt annar veru-
leiki við flestum landsmönnum,
þingið sýndi einstakt framtak í
eftirlaunamálinu, sjálfshyggjan
endurspeglast í því máli.
Hæpin fjárfesting
Reykjavíkurborg líður fyrir
Reykjavíkurflugvöll, hundruðum
milljóna er varið til endurbóta á
flugvellinum jafnvel þó vél-
skóflukjaftarnir bíði á hliðarlín-
unni til að moka honum í burtu
en mörgum þingmönnum finnst
þetta hentugt.
Samanburður á fjárveitingum
Gaman væri að fá samanburðar-
tölur á fjárveitingum og styrkjum
td. Eyjafjarðarsvæðinu og Suður-
nesjum þá kemur sennilega í ljós
hvað er jöfnuður í hugum ráða-
manna. Það má margt læra af
slíkum samanburði t.d. jöfnuði
og hver er að greiða niður fyrir
hvern. Ef til vill eiga þingmenn
okkar í erf iðleikum með að
koma Suðurnesjum á fjárlaga-
kortið eftir áratuga utanveltu, en
ástæðan er einföld, við höfum
aldrei átt málsvara á ríkisstjórn-
arfundi, til þess þarf ráðherra.
Ráðherra margra þingsæta virði
Nú á haustmánuðum verða
hrókeringar á ráðherrastólum og
gefur það ekki tilefni til bjartsýni
fyrir okkur Suðurnesjamenn. Það
væri mikil bót fyrir kjósendur og
lýðræðið ef ráðherraefni væru
tilgreind á framboðslistum, land-
ið gert að einu kjördæmi og hag-
ur heildarinnar hafður að leiðar-
ljósi en eins og málum er nú
komið er ráðherra margra þing-
sæta virði. Framganga Eyjafjarð-
arráðherra undirstrikar græðgis-
vísitöluna og vanhæfni ýmissa
þingmanna til að vinna að hag
heildarinnar. Hér gefst nú kjörið
tækifæri til að rétta af margra
áratuga slagsíðu og tilnefna ráð-
herra af Suðurnesjum.
Sturlaugur Ólafsson.
Já, ráðherra!
➤ S T U R L A U G U R Ó L A F S S O N
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 13:26 Page 12