Víkurfréttir - 18.03.2004, Blaðsíða 14
K jartan Már Kjartanssonritaði grein á vef Víkur-frétta 8. mars s.l. þar
sem hann fer fram á að stjórn-
endur HSS geri grein fyrir
þeirri stefnubreytingu að nýta
D-álmuna undir aðra starf-
semi en þá sem þar var ætlað
rými fyrir þremur áratugum.
Stjórnendur HSS hafa að und-
anförnu fundað með sveitar-
stjórnarmönnum til að kynna
þeim stefnu stofnunarinnar
sem er unnin með fulltrúum
heilbrigðisráðuneytisins og er
bæði ljúft og skylt að gera
grein fyrir stefnu sinni og
framtíðaráformum.
Eldri hugmyndir
Þegar umræðan um byggingu D-
álmunnar hófst var landslagið í
öldrunarþjónustunni ólíkt því
sem nú er. Fólk vistaðist á sjúkra-
deildum sjúkrahúsa og bjó þar
oft árum saman. Þetta var viðtek-
ið fyrirkomulag víða á lands-
byggðinni en er nú óðum að
hverfa. Í lögum um málefni aldr-
aðra er skýrt kveðið á um að á
stofnunum fyrir aldraða skuli
þess gætt að þær séu heimilisleg-
ar og að sem flestir hafi eigið
herbergi. Sjúkradeildin í D-álm-
unni er ekki byggð sem heimili
og þar eru flest herbergin tvíbýli.
Augljóst er að á öllum þeim tíma
sem leið frá því umræður hófust
um þessa deild og þar til hún var
tilbúin, átti sér ekki stað nein
endurskoðun á þeirri áætlun að
vista 26 aldraða einstaklinga í
þessu húsnæði. Ekki var heldur
hugað að annarri heilbrigðisþjón-
ustu fyrir Suðurnesjabúa, s.s. al-
mennri sjúkrahúsþjónustu.
Breyttir tímar
Frá því fyrstu hugmyndir um
hlutverk D-álmunnar litu dagsins
ljós, hafa átt sér stað stórfelldar
breytingar á viðhorfi manna til
hagsmuna aldraðra. Þær felast
fyrst og fremst í því að styrkja
hinn aldraða til að vera heima hjá
sér eins lengi og unnt er með til-
hlýðilegri samfélagsaðstoð og
síðan möguleikum á að vistast á
hjúkrunarheimili sem er heimil-
islegt og sniðið að þörfum hins
aldraða. Því er ekki að leyna að
þegar D-deildin reis samrýmdist
hönnun hennar ekki nútíma þörf-
um aldraðra, ef horft var til þró-
unar í þjónustu við þann aldurs-
hóp. Við blasti fullbúin sjúkra-
deild með öllum tæknibúnaði og
starfsfólki sem bjó yfir faglegri
þekkingu til að sinna veikum
Suðurnesjabúum, ungum og
gömlum, sem hingað til hafa að
stærstum hluta þurft að sækja
sjúkrahúsþjónustu til Reykjavík-
ur.
Óuppfylltar þarfir
Sjúkrahúsið hefur í gegnum tíð-
ina verið skurðsjúkrahús að
langstærstu leyti og sent frá sér
þá sem hafa þarfnast lyflækninga
og hjúkrunar. Á hverju ári hefur
fjöldi Suðurnesjabúa, flestir aldr-
aðir, þurft að liggja á sjúkrahúsi í
Reykjavík vegna vandamála sem
almennt sjúkrahús á að geta
sinnt. Þá er verið að tala um
vandamál á borð við lungna-
bólgu, sykursýki, krabbamein,
heilablóðfall, sýkingar í húð og
meltingarvegi, magasár, lungna-
þembu o.s.frv. Það er metnaðar-
mál núverandi stjórnenda HSS
að uppfylla þarfir íbúanna fyrir
heilbrigðisþjónustu að svo miklu
leyti sem mögulegt er. Það verð-
ur alltaf nauðsynlegt að leita til
LSH með sérhæfða þjónustu, s.s.
gjörgæslu, hátækniaðgerðir og
sérhæfða meðferð af ýmsum toga
en þannig á líka að nota hátækni-
sjúkrahús. Það er afleitt fyrir-
komulag að blanda saman bráða-
deild og langlegudeild. Þarfir
skjólstæðinganna eru ólíkar og
hætt er við að hinn aldraði lang-
tímavistaði verði útundan í erli
dagsins. Það er mjög líklegt að
hann fái nýja stofufélaga í viku
hverri og jafnvel getur þurft að
flytja hann milli herbergja ef sér-
stakar aðstæður skapast, s.s. ef
einangra þarf sjúklinga vegna
sýkinga eða ef kynjaskipting á
deildinni krefst þess. Það er aug-
ljóst að slíkt fyrirkomulag er
hvorki heimilislegt né hollt.
Sérhæfð öldrunarþjónusta
Á sínum tíma var tekin pólitísk
ákvörðun um að hjúkrunardeild
HSS yrði staðsett í Víðihlíð í
Grindavík. Þar er í dag rekin 25
rúma hlýleg öldrunardeild þar
sem þarfir hins aldraða eru í fyr-
irrúmi, bragurinn er heimilisleg-
ur og séð er fyrir sérstökum þörf-
um þeirra sem eru heilabilaðir. Á
D-deildinni er ekki hægt að
tryggja öryggi hins heilabilaða.
Hann getur auðveldlega komist
um húsið, jafnvel út á götu og
þannig stofnað sjálfum sér í
voða.
Víðtæk þjónusta fyrir aldraða
D-deildin hefur fyrir löngu sann-
að tilveru sína sem bráðalyflækn-
ingadeild. Hún gerði það strax á
fyrstu vikunum sem hún var
opin. Þar hefur verið mætt þörf
sem ekki virðist hafa verið rædd
á opinberum vettvangi á meðan
D-álman var í smíðum. Ýmislegt
hefur hins vegar verið gert með
hag aldraðra í huga á HSS og enn
fleira er í farvatninu. Í fyrsta lagi
er ástæða til að endurtaka að
langstærstur hluti þeirra sem
njóta þjónustu á D-deildinni eru
aldraðir sem ella hefðu þurft að
leita til Reykjavíkur eftir sömu
þjónustu. Í öðru lagi er nýlega
tekin til starfa svokölluð fimm
daga deild/endurhæfingardeild í
húsnæði A-álmunnar. Þar eru 8 -
10 rými fyrir einstaklinga sem
eru á sjúkrahúsinu alla virka
daga í ákveðinn tíma, sér til
hressingar og heilsubótar. Þess-
um rýmum er ráðstafað m.a. í
nánu samráði við heimahjúkrun
sem beinir þangað skjólstæðing-
um sem þurfa endurhæfingu til
að geta verið áfram heima hjá
sér. Hin einstaka endurhæfingar-
aðstaða HSS nýtist frábærlega í
þessu skyni. Þarna er einnig gert
ráð fyrir að fólk geti komið sem
er að stíga upp úr erfiðum veik-
indum, stórum skurðaðgerðum
eða er að jafna sig eftir slys.
Nýjung í heilsugæslu
Á heilsugæslunni er verið að
undirbúa sérstaka móttöku fyrir
aldraða. Þar geta þeir sem þess
óska, komið og fengið viðtal við
hjúkrunarfræðing. Þar eru veittar
upplýsingar um þjónustu sem er í
boði s.s. heimahjúkrun og einnig
getur fólk fengið viðtal við
lækni, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa
og félagsráðgjafa, allt eftir að-
stæðum hjá hverjum og einum.
Mikilvægt er að fólk þekki rétt-
indi sín og hafi greiðan aðgang
að þeirri þjónustu sem getur
hjálpað til sjálfshjálpar. Eitt mik-
ilvægasta verkefnið í heilsuvernd
aldraðra eru forvarnir. Þegar fólk
hættir að vinna eða sest í helgan
stein af öðrum orsökum er mikil-
vægt að það viðhaldi hreyfingu,
virkni, hugarstarfi og félagslífi.
Það getur fyrirbyggt ýmsa kvilla
og heilsufarsvandamál. Um allt
þetta þarf fólk að fræðast og fá
ráðgjöf hjá fagfólki.
Hér hefur verið reynt að rök-
styðja hvernig við sem stjórnend-
ur á HSS höfum reynt að mæta
sem flestum þörfum Suðurnesja-
búa fyrir heilbrigðisþjónustu í
takti við breyttar kröfur. Við höf-
um lagt sérstaka áherslu á að
koma til móts við aldraða m.a.
með því að sinna fyrst og fremst
sjúkum öldruðum á D-deildinni,
með því að opna 5 daga endur-
hæfingardeild sem kemur á móts
við þarfir aldraðra og með því að
huga að opnun göngudeildar fyr-
ir aldraða á heilsugæslunni. Við
höfum mikinn metnað til að
þjóna öldruðum vel skv. nýjustu
þekkingu í málefnum aldraðra.
Það eru háleit markmið stjórn-
enda HSS að geta sinnt 80% af
heilbrigðisþörfum íbúa Suður-
nesja, þar með talið þörfum aldr-
aðra. Við teljum okkur vera
komin vel á leið.
Framkvæmdastjórn HSS
14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Hvernig er hagsmunum
skjólstæðinga best borgið?
H U G L E I Ð I N G A R U M F RA MT Í Ð A R Þ J Ó N U ST U
H E I L B R I G Ð I S STO F N U N A R S U Ð U R N E S JA
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 13:27 Page 14