Víkurfréttir - 18.03.2004, Qupperneq 8
ÖLDUNARMÁLIN KOMUST Í HÁMÆLI í síð-
ustu viku þegar Kjartan Már bæjarfulltrúi í Reykjanes-
bæ skrifaði í Víkurfréttir í sl. viku og spurði um D-álm-
una.
KALLINN HEFUR
HEYRT mikla umræðu um
málið meðal fólks sem er
ekki sátt við það að D-álman
verði ekki það sem hún átti
að verða; að sinna sjúkum
öldruðum einstaklingum.
Fjöldi bæjarbúa hefur komið
að söfnun fyrir D-álmuna í
gegnum tíðina og vill sjá þessa viðbyggingu sem slíka.
Kallinn heyrði sorglega sögu um daginn þegar gömul
kona úr Keflavík var færð í óþökk hennar á öldrunar-
heimilið Víðihlíð í Grindavík. Það gefur auga leið að
það er erfiðara fyrir ættingja að heimsækja gömlu kon-
una upp í Grindavík frá Keflavík. Þetta er kona sem
hefur búið í Keflavík alla tíð. Kallinn heyrir fólk spyrja
af hverju það sé ekki gott öldrunarheimili eins og D-
álman átti að vera, í Reykjanesbæ. Eiga eldri sjúkir að
þurfa að sætta sig við að fara til Grindavíkur? Kallinn
hefur heyrt að svar sé að birtast í Víkurfréttum í þessu
blaði frá Heilbrigðisstofnuninni. Það þarf að vera gott
svar og skýringar á því ef áratuga samstarfssverkefni
bæjarbúa breytist í einu vettvangi. Með einu penna-
striki. Er það ásættanlegt?
KALLINN ER ÁHUGAMAÐUR um körfuboltann.
Það er með ólíkindum hvernig í ósköpunum hægt var
að leyfa þrjá útlendinga í lið. Og Kallinn er ekki á móti
útlendingum. Þeir mega vera, einn, helst ekki fleiri, í
liðunum. Kallinn vill sjá okkar stráka vaxa en þeir gera
það ekki á bekknum. Það er helst Keflavík sem heldur í
sér með „aðeins“ tvo útlendinga. Það var gaman að sjá
Arnar Jónsson, ungan peyja klára leikinn fyrir Keflavík
í fyrrakvöld gegn Tindastóli. Þræl góður sá piltur en
þeir eru fleiri í öllum liðum en fá ekki að sýna það sitj-
andi á tréverkinu. Í leik Grindavíkur og KR í fyrra-
kvöld var baráttan á milli útlendinganna. Nánast eng-
inn annar þorði að taka af skarið nema í undantekn-
ingatilvikum. Þetta er ekki gott fyrir íslenskan körfu-
bolta, ekki heldur Snæfell sem byggir ekki lið í úrvals-
deild á útlendingum.
FLEIRI VERSLANIR ERU AÐ OPNA í Reykjanes-
bæ og er það góðs viti. Það hefur sýnt sig í góðviðrinu
síðustu daga að það hefur færst líf í Hafnargötuna. Hún
á örugglega eftir að borga sig því hún er mjög
skemmtileg eins og hún hefur verið unnin. Kallinn
hvetur Reykjanesbæ að drífa í að klára verkið!
EITT ÞAÐ ÖMURLEGASTA sem Kallinn hefur séð
í sjónvarpi er bullið í henni Leoncie. Er enginn sem vill
kaupa af henni húsið?
Kveðja, Kallinn@vf.is
stuttar
f r é t t i r
8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar:
Grundarvegi 23,
260 Njarðvík,
Sími 421 0000 Fax 421 0020
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður:
Jóhannes Kr. Kristjánsson,
sími 421 0004, johannes@vf.is
Sölu- og markaðsstjóri:
Jónas Franz Sigurjónsson,
sími 421 0001, jonas@vf.is
Auglýsingadeild:
Jófríður Leifsdóttir,
sími 421 0008, jofridur@vf.is
Útlit, umbrot og
prentvistun:
Víkurfréttir ehf.
Prentvinnsla:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Dagleg stafræn útgáfa:
www.vf.is og vikurfrettir.is
Kallinn á kassanum
MUNDI
➤ F F G Í R M E Ð N Ý J A H E I M A S Í Ð U
➤ U N G M E N N I L E I Ð B E I N A L E I K S K Ó L A B Ö R N U M
Er Kallinn þýddur á ensku
fyrir körfuboltaliðin?
FFGÍR hefur nú opnaðheimasíðu FFGIR.is þarsem hægt er að nálgast
upplýsingar um foreldrastarf í
grunnskólum bæjarins. Aukið
upplýsingaflæði bæði til for-
eldra og frá foreldrum hefur
verið eitt af aðalmarkmiðum
FFGÍR og er heimasíðan einn
liður í því að auka það.
Handbækur foreldrafélaganna
sem fengu hvatningarverðlaun
Heimilis og skóla á síðasta ári
hafa nú verið uppfærðar og hægt
er að skoða þær á heimsíðunni.
Þar er að finna allar upplýsingar
um starfsemi félaganna, hverjir
skipa stjórnir og ráð á vegum for-
eldrafélaganna og markmið sem
þau hafa sett sér.
Fundargerðir FFGÍR verða að-
gengilegar á heimasíðunni og
nýjustu fréttir af
samstarf i foreldrafélaganna.
Einnig er hægt að senda inn fyr-
irspurnir um allt er varðar starfið
og á síðunni eru ýmsir nytsam-
legir tenglar eða krækjur þar
sem foreldrar geta komist að
ýmsu fróðlegu um foreldrasam-
starf beint eða óbeint. Einnig er
hægt að skrá sig á póstlista FF-
GÍR og þar með fá allar nýjustu
fréttir af starfinu.
FFGÍR hefur nú látið hanna
„logo“ eða merki sitt og er það
sjáanlegt á síðunni. Skúli Sig-
urðsson hannaði merkið en það
var valið úr nokkrum hugmynd-
um. Skúli hefur einnig verið FF-
GÍR innan handar við gerð
heimasíðunnar. Á næstu vikum
mun FFGÍR kynna nokkur slag-
orð undir hinu nýja merki en þau
komu fram á sameiginlegum
fundi stjórna foreldrafélaga og
foreldraráða 14. febrúar s.l.
„Það er búið að vera lélegt í
febrúar og mars. Janúar
var miklu betri,“ sagði
Ragnar Ragnarsson skip-
stjóri á Arnari KE 260 þar
sem hann var að taka ís í
Sandgerðishöfn í dag.
Ragnar hefur verið á sjó
frá árinu 1970 og hann seg-
ir að febrúar hafi oft verið
slæmur á sjónum. „Þetta
hefur oft verið leiðinlegt á
þessum árstíma. Við fórum
14 róðra í janúar og vorum
með ágætisafla. Í febrúar
fórum við 7 róðra,“ segir
Ragnar og honum finnst
fiskurinn vænn. „Bæði
þorskurinn og ýsan eru
vænni en undanfarin ár.“
Meginuppistaða aflans seg-
ir Ragnar vera þorsk. „Ætli
þetta sé ekki um 60-70
þorskur og restin þá ýsa.“
Ragnar er einungis á línu, en
hann er með Torfa Torfasyni
á sjónum. Vinnutíminn getur
verið breytilegur hjá þeim en
venjulega fara þeir út á nótt-
unni og koma til hafnar sein-
nipart dags.
En verður hann aldrei
þreyttur á sjómennskunni?
„Þetta gengur í bylgjum.
Stundum verður maður þræl-
leiður en maður gleymir nú
yfirleitt erfiðu dögunum þeg-
ar vel gengur.“
Ragnar Ragnarsson á Arnari KE.
Febrúar oft
slæmur í sjó-
mennskunni
Öflugt foreldrastarf í Reykjanesbæ
HÖND Í HÖND VIÐ HAFNARGÖTU Í VOGUM
Ungmenni úr Stóru Vogaskóla í Vogum fóru í gönguferð með börnin á leikskólanum og kenndu þeim umferðar-
reglurnar. Það er nauðsynlegt að horfa bæði til vinstri og hægri áður en farið er yfir götuna.
VF
-M
YN
D:
JÓ
H
AN
N
ES
K
R.
K
RI
ST
JÁ
N
SS
O
N
VF-MYND: HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 16:11 Page 8