Víkurfréttir - 18.03.2004, Side 20
M ikill annatími er hjáprestum landsins þessadagana. Ferminga-
börnin skipta hundruðum og
undanfarna mánuði hafa
prestarnir tekið á móti börnun-
um í fermingarfræðslu. Séra
Björn Sveinn Björnsson prest-
ur í Garði og Sandgerði hefur
mikla ánægju af fermingun-
um, en segir tímann framund-
an vera krefjandi. Séra Björn
Sveinn er í stuttu spjalli við
fermingarhandbók Víkur-
frétta.
Hvernig hagar þú ferm-
ingarundirbúningnum með
fermingarbörnum?
Í vetur hefur fermingarundir-
búningnum í Útskálaprestakalli
verið þannig háttað að ferming-
arfræðslan hefur farið fram ann-
an hvern laugardag frá kl 9:30 -
12 fyrir hádegi og höfum við þá
ýmist komið saman í grunnskól-
anum í Sandgerði eða Gerða-
skóla í Garði.
Ég hef á undanförnum árum gert
fermingarbörnunum skylt að
ganga til fundar við „öldung“
einu sinni í viku þar sem mark-
miðið er að brúa bilið á milli
kynslóða með því að kynslóðir
skiptist á upplýsingum. Hug-
myndin er þá sú að öldungarnir
segi börnunum m.a. frá uppvaxt-
arárum sínum, fermingarundir-
búningnum, skólagöngu,
húsakynnum, matarhefðum, at-
vinnuháttum, fjölskyldugerðinni
og fleiru. Síðan eiga fermingar-
börnin að segja öldungunum frá
viðfangsefni sínum og vænting-
um. Fermingarbörnin skiluðu
síðan stuttri ritgerð sem var eins
konar samantekt á heimsóknun-
um.
Á fermingartímabilinu hef ég
efnt til Reykjavíkurferðar með
fermingarbörnum og foreldrum.
Þessar ferðir hafa mælst vel fyrir
að þessu sinni fórum við í Hall-
grímskirkju og héldum því næst í
Alþingishúsið þar sem Margrét
Frímannsdóttir alþingismaður
tók á móti okkur og fræddi okkur
af mikilli kostgæfni um starfsemi
Alþingis og sögu þess. Eftir við-
komuna í Alþingishúsið var farið
í flatbökuhlaðborð á Pizza 67 og
síðan endaði ferðin í Háskólabíó
á kvikmyndinni Kaldaljósi sem
byggð er á sögu Vigdísar Gríms-
dóttur rithöfundar, hún var ein-
mitt sérstakur gestur okkar á sýn-
ingunni og talaði við okkur fyrir
og eftir sýninguna. Tilgangurinn
með ferð sem þessari er að blan-
da saman fróðleik og skemmtun
og þá þykir mér afar vænt um
hvað foreldrar sýndu ferðinni
mikinn áhuga.
Þá hef ég lagt á það mikla
áherslu að fermingarbörnin sæki
guðsþjónustu í sinni sókn yfir
veturinn.
Á hvað leggurðu áherslu í ferm-
ingarfræðslunni?
Í sem stystu máli reyni ég að
leggja áherslu á kjarna fagnaðar-
erindisins sem er að Guð í kær-
leika sínum kom í manninum
Jesú Kristi til að frelsa syndugan
heim. Hvað í því erindi felst og
hvernig það talar til okkar í dag.
Trúin leitast og við að útskýra til-
vist okkar og mótar að miklu leiti
hugmyndir okkar um lífið - það
er því af mörgu að taka. Ég legg í
framsetningu minni meiri áherslu
á skilning en utanaðbókarlærdóm
þó vissulega geri ég þá sjálf-
sögðu kröfu að fermingarbörnin
kunni trúarjátninguna þegar að
þau fermast. Mikilvægast finnst
mér þó að þau skilji hverju og
hverjum þau játast. Það að játa
trú á Jesú Krist felur einnig í sér
„neitun“ við segjum „nei“ við
öllu ranglæti, illsku, óheilindum,
ofríki og ofbeldi,- og öllu því
sem að stríðir gegn samvisku
okkar og heilbrigðri skynsemi.
Það að játast Guði - er að helga
Guði líf sitt og að leyfa honum
að móta það í blíðu og stríðu.
Hvað skiptir mestu máli við
ferminguna að þínu mati?
Að játa heilshugar eftirfylgd við
Jesú Krist. Að fermast er að
standa frammi fyrir altari drottins
með ásetning í hjarta um að fylg-
ja honum og ganga í ljósi hans.
Hvaða augum lítur presturinn
gjafirnar?
Fermingin er ein þeirra stunda
þar sem gleði og alvara renna
saman í eitt og vissulega eigum
við að samgleðjast með ferming-
arbarninu á slíkri stundu. En
mikilvægt er þó að gæta hófs og
velsæmis í þessum efnum og vísa
ég þar til heilbrigðrar skynsemi.
Við skulum vera þess minnug að
„hamingjan býr í hjarta manns-
ins“ og hún fæst ekki keypt. Það
er svo margt í uppeldi nútímans
sem rænir börn bernsku sinni við
það skapast sú tilhneiging meðal
hinna fullorðnu að bæta skort á
umhyggju og tilfinninganánd
með gjöfum. Það besta sem við
gefum börnum okkar er meira af
okkur sjálfum sem birtist fyrst og
síðast í kærleika, skilningi og
umhyggju.
Hvernig var þín upplifun þegar
þú fermdist?
Fermingardagurinn minn var mér
afar eftirminnilegur. Það var sr.
Halldór Gröndal sem fermdi mig
í Háteigskirkju við þessa sömu
athöfn fór fram hjónavígsla og
systurdóttir mín var skírð. Ég
verð þó að játa að þetta var alls
ekki átakalaust fyrir mig því að
ég fermdist einn við þessa at-
höfn. Ég hafði orðið fyrir því
óláni að fótbrotna á skíðaferða-
lagi fyrr um veturinn og gat því
ekki fermst með félögum mín-
um. Ég var því hálf haltur og um-
komulaus þegar ég gekk inn
kirkjugólfið og ofan á allt saman
voru skórnir sem ég var í alltof
stórir, þetta var því í vissum
skilningi hálfgerð píslarganga.
En þetta hafðist þó allt saman að
lokum.
Finnst þér þetta skemmtilegur
tími?
Bæði skemmtilegur og krefjandi.
Skilaboð til fermingarbarna!
Mér eru ofarlega í huga orð post-
ulans þar sem að hann segir:
... allt sem er satt, allt sem er
göfugt, rétt og hreint, allt sem er
elskuvert og gott afspurnar, hvað
sem er dyggð og hvað sem er
lofsvert, hugfestið það. (Fil 4:8)
Þessi heilræði eiga vel við á
fermingardegi og þau eru gott
vegarnesti þegar haldið er út í líf-
ið.
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Fermingin skemmtilegur og krefjandi tími
Séra Björn Sveinn Björnsson, prestur í Útskálaprestakalli
Tjöld, svefnpokar og bakpokar eru vinsælar fermingargjafir sem keyptar
eru í sportbúðinni hjá Óskari við Hafnargötuna í Keflavík. Bakpokana er
hægt að fá frá 3900 kr., svefnpokana frá 4500 kr. og tjöldin frá 10.990 kr.
Óskar Færseth, kaupmaður, sagði að HENSON íþróttafatnaður og skór
væru einnig vinsælar gjafir þetta árið. Þá eru veiðivörur sígildar fyrir
strákana og þeir sem eru óákveðnir taka bara gjafakort, sem eru vinsæl.
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 14:55 Page 20