Víkurfréttir - 18.03.2004, Page 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
S tefanía Jónsdóttir skrif-stofustjóri Víkurfréttafermdist árið 1964 í
Keflavíkurkirkju, en ferming-
arhópurinn samanstóð af um
30 krökkum sem komu öll úr
Barnaskólanum í Keflavík.
Stefanía segir að kristinfræðin
fyrir ferminguna hafi verið
nokkuð ströng, en presturinn
var sr. Björn Jónsson. „Maður
þurfti að læra sálmana utan-
bókar, en við mættum vikulega
í tíma hjá Sr. Birni. Þetta gat
stundum verið dálítið stressan-
di því við vorum tekin upp og
áttum þá að fara með sálm-
ana,“ segir Stefanía og bætir
því við að í dag kunni hún ekki
sálmana.
„Eftir athöfnina í kirkjunni var
haldin veisla heima á Melteign-
um,“ segir Stefanía og hana
minnir að nokkuð margt hafi ver-
ið í veislunni. „Það voru þarna
vinir, kunningjar og ættingjar.
Það voru kökur og kaff i á
boðstólnum og allt heimabakað
að sjálfsögðu.“
Frá mömmu sinni og pabba fékk
Stefanía armbandsúr og hún seg-
ir að annar bragur hafi verið á
gjafastússinu í kringum ferming-
ar þá, en eru í dag. „Ég man að
ég fékk pening, 2000 krónur og
fyrir það keypti ég mér útvarps-
tæki, en útvarpstækið átti ég
mjög lengi,“ segir Stefanía og
hún telur að algengara hafi verið
að strákar fengju peninga í ferm-
ingargjöf en stelpur. „Það er
miklu auðveldara að gefa stelpu
gjöf heldur en strák. Og ég held
að það sé eins í dag.“
Stefanía segist bara vera nokkuð
sátt við fermingarmyndina. „Hún
pirrar mig ekkert í dag. Ég get
hlegið að henni og í raun rifjast
upp fyrir manni skemmtilegar
minningar þegar maður lítur á
hana.“
Ómar Jónsson verslunar-maður bensínstöðvarOrkunnar að Fitjum
fermdist í Kálfatjarnarkirkju
árið 1968 og segir Ómar að
fermingarundirbúningurinn
hafi verið hefðbundinn. „Mað-
ur þurfti að ganga til prestsins í
orðsins fyllstu merkingu, úr
Vogum og inn í Kálfatjarna-
kirkju en prestur var Sr. Bragi
Friðriksson sóknarprestur í
Garðabæ og Kálfatjarnarsókn.
Þetta var auðvitað langt að
fara en maður hafði gaman af
þessu,“ segir Ómar og bætir
því við að kristinfræðilærdóm-
urinn hafi verið hefðbundinn.
„Maður lærði náttúrulega trú-
arjátninguna og þegar maður
lærir hana einu sinni þá gleym-
ir maður henni aldrei. Síðan
var náttúrulega lögð áhersla á
Guðsóttann.“
Ómar segir að mikill munur sé á
fermingum í dag og hans ferm-
ingu. „Þetta var allt heimatilbúið.
Fötin voru saumuð á mann og
fermingarveislan var heima.
Auðvitað var maður jafn ánægð-
ur og börnin eru í dag, en jú,
þetta var öðruvísi. Allt aðrar
væntingar og tíðarandinn annar.“
Ómar segist ekki hafa fengið
mikið af peningum í fermingar-
gjöf. „Þetta voru bókagjafir og
ég man sérstaklega eftir upp-
stoppuðum hrafni sem ég fékk.
Síðan voru það útilegugræjur
sem ég fékk og ég og félagi minn
prófuðum tjaldið kvöldið eftir
ferminguna.“
Með Ómari á fermingarmynd-
inni er kær vinur hans, hundurinn
Tryggur sem var látinn á þeim
tíma sem myndin var tekin. „Það
voru ekki margar myndir teknar
á mínu heimili, en það hékk
mynd af Trygg upp á vegg. Og
þar sem ég stóð í stofunni þá sést
í myndina af Trygg á fermingar-
myndinni og af þeim sökum hef-
ur mér alltaf þótt mjög vænt um
fermingarmyndina, út af hundin-
um,“ segir Ómar.
Þegar Ómar er spurður að því
hvort hann búi að fermingunni
svarar hann játandi. „Ég held að
um það sé ekkert annað en gott
að segja. Það hafa allir gott af
þessari fræðslu. Hitt er annað
mál að mér finnst þetta vera orð-
in vitleysa eins og það er í dag.
Fólk er farið að kvíða fermingu
barna sinna og í raun gera miklu
meira en það ræður við. Þetta er
orðin skylda og fólk er undir
álagi. Þetta ætti að vera þannig
að þetta sé þægileg og skemmti-
leg stund þar sem fólk er með
sínum nánustu. Það verður að
segjast eins og er að það eru
alltof miklir peningar í þessu og
þannig missir þetta marks. Auð-
vitað hefur kristinfræðslan alltaf
sitt gildi, en ég held að það sé
full ástæða til að endurskoða allt
þetta tilstand með tilliti til hinar
sönnu trúar á Jesú Krist þar sem
kærleikurinn er aðalatriðið.
Fermingardagurinn er auðvitað
stór stund í lífi hvers og eins og
aðalatriðið er að hafa gaman á
deginum. Ég vil nota tækifærið
og óska öllum fermingarbörnum
til hamingju með fermingardag-
inn sinn.“
Sigurður Björgvinsson, kaupmaður í K-sport við Hafnargötu í Keflavík
segir íþróttavörumerkið PUMA vera vinsælt hjá fermingarbörnunum
þetta árið. Íþróttafatnaður sé vinsæll til fermingargjafa og þá séu
krakkarnir kröfuharðir og séu ekkert að velja ódýrustu skóna úr hillunni,
segir Sigurður og sýnir blaðamanni vinsæla PUMA skó.
Sigurður sagði að einnig njóti Adidas og hinir íslensku Henson gallar og
bolir vinsælda. Hann sagði tískuna m.a. stjórnast af því hverju fólkið á
PoppTíví klæðist.
Bókstaflega gekk til prestsins!
Ómar Jónsson, verslunarmaður og bæjarfulltrúi í Grindavík
Stefanía Jónsdóttir, skrifstofustjóri Víkurfrétta
Lærðum sálmana utan af
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 14:59 Page 22