Víkurfréttir - 18.03.2004, Qupperneq 26
26 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Gísli Guðnason, Marel
Ragnarsson, Særún Guð-
mundsdóttir
Hvernig hefur fermingarundir-
búningurinn gengið hjá ykkur?
Hann hefur bara gengið vel og
þetta hefur bara verið gaman,
allavega sumt.
Hvernig líst ykkur á ferming-
una?
Bara rosalega vel.
Hvernig er óskagjafalistinn hjá
ykkur?
Særún: Rúm, sjónvarp, DVD
tæki og snyrtidót.
Marel: Ég er búinn að fá rúm og
hillur. Svo langar mig bara í pen-
ing.
Gísli: Tölvu, sjónvarpsskáp og
pening.
Er mikill spenningur meðal
fermingarkrakkanna?
Já það er náttúrulega stutt í þetta.
Eru foreldrar ykkar á fullu í
undirbúningi fyrir ferminguna?
Já það er allt á fullu.
Hvernig verðið þið klædd?
Gísli: Þetta eru dálítið skrýtin föt.
Ég verð í rauðum buxum, hvítri
skyrtu, með bleikt bindi og í
svörtum jakka yfir.
Marel: Ég verð í íslenska þjóð-
búningnum við athöfnina, en fer
síðan í önnur föt fyrir veisluna.
Særún: Ég verð í teinóttri dragt.
Trúið þið á Guð?
Já að sjálfsögðu.
Finnst ykkur fermingin skipta
ykkur máli?
Já.
Af hverju eruð þið að fermast?
Til að staðfesta trúna og skírnina.
Spenna meðal fermingarbarnanna magnast með hverjumdeginum sem líður því stutt er til ferminga á Suðurnesjum.Fjölskyldulífið snýst að verulegu leyti um fermingarundir-
búninginn þar sem huga þarf að veislunni, gjöf, athöfninni í kirkj-
unni, fötum fermingabarnsins, boðskortum og fjölmörgum atrið-
um sem máli skipta við ferminguna.
Víkurfréttir litu við í þremur skólum á Suðurnesjum á dögunum og
tóku börn tali sem fermast innan nokkurra daga. Þau virtust öll vera
spennt fyrir fermingunni og þá sérstaklega gjöfunum. Öll börn sem
fermast um þessar mundir hafa gengið til prests undanfarnar vikur og
fræðst um ferminguna og gildi hennar fyrir viðkomandi.
Sandgerðisskóli
Fermingarbörn tekin tali
Undirfataverslunin Ég og Þú opnaði fyrir nokkrum dögum við
Hafnargötuna í Keflavík. Verslunin er útibú frá samnefndri verslun í
Reykjavík. Eigendur eru Sigríður Hermannsdóttir og Árni H. Róbertsson.
Sigríður sagði í samtali við blaðið að versluninni hafi verið vel tekið.
Mikið úrval af nátt- og undirfatnaði fyrir fermingarstúlkur er í verslun-
inni. Í boði er 15% fermingarafsláttur og einnig sérstök tilboð í körfum.
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 15:07 Page 26