Víkurfréttir - 18.03.2004, Page 28
28 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
Svæðisútvarp
ekki fyrirhugað á
Suðurnesjum
Ekki er fyrirhugað afhálfu Ríkisútvarpsinsað hefja rekstur
svæðisútvarps á Suðurnesj-
um, en þetta kom fram í svari
menntamálaráðherra við fyr-
irspurn Jóns Gunnarssonar
alþingismanns á Alþingi á
dögunum. Jón spurði ráð-
herra meðal annars hvar
reknar væru svæðisstöðvar á
vegum Ríkisútvarpsins og
hvort búast mætti við að
RÚV myndi setja á fót
svæðisútvarp á Suðurnesjum.
Menntamálaráðherra sagði í
svari sínu að það væri innri
ákvörðun Ríkisútvarpsins hvort
það hyggi á rekstur svæðisút-
varps á Suðurnesjum og að
ráðuneytið myndi ekki beita sér
í málinu. Fram kom í máli ráð-
herra að rekstur svæðisútvarps
á fjórum stöðum á landinu kosti
Ríkisútvarpið um 100 milljónir
króna á ári.
Jón Gunnarsson sagði í samtali
við Víkurfréttir að hann væri
ósáttur við svör ráðherra. „Mín
skoðun er sú að það sé óþolandi
mismunun að við íbúar Suður-
nesja skulum ekki geta fengið
sömu þjónustu og aðrir af hálfu
ríkisútvarpsins.“
Elsku Ómar minn!
Með örfáum orðum langar litlu systur
þinni að minnast góðs bróður og ástvinar.
Það var alltaf gaman að hitta þig og vera
nálægt þér (ef þér þótti gaman að láta
stríða þér).
Frá því að ég var lítil stríddir þú mér
óspart og aldrei grunaði mig að ég ætti eft-
ir að sakna þess, en nú er svo komið á dag-
inn.
Við höfum átt misgóðar stundir saman
þótt flestar væru þær góðar eins og er al-
gengt í samskiptum mannanna, en ég hef
alltaf elskað þig og fundist þú vera frábær
vinur. Þú þurftir ekkert að segja bara
glotta út í annað og þá leið mér vel.
Þú kenndir mér margt t.d. að meta ljóð,
tónlist og bækur. Þegar þú varst að glamra
á gítarinn fyrst eftir að þú fékkst hann
fékk ég litla systir þín að hlusta á frum-
flutning á lögunum þínum. Eitt laga þinna
snart mína litlu sál mest það var „Voðaskot
í Palestínu“. Mikið grét ég eftir þann flutn-
ing þinn en þú tókst mig í fangið og hugg-
aðir mig.
Skoðanir þínar á heimsmálunum mótuðu
mig og fannst mér mikið til þeirra koma.
Síðan hef ég reynt að horfa á báðar hliðar
á öllum heimsins málum. Þú varst vitur
maður og fékkst mikla náðargáfu það er
að geta sett saman sögur og ljóð á
skemmtilegan hátt.
Einnig gast þú gert góðlátlegt grín af
mönnum og málefnum án þess að særa til-
finningar annarra á einhvern hátt.
Oft sat ég inni í herberginu þínu og þú
varst að sannfæra mig um að Rolling Sto-
nes væru betri en Bítlarnir og það væri
ekki hægt og hallærislegt að halda upp á
Ringo. Þú sagðir að ef einhver væri góður í
Bítlunum væri það John Lennon og er
hann í miklu uppáhaldi hjá mér í dag.
En eitt tókst þér ekki það var að snúa mér
til þess að halda með Chelsea fótboltalið-
inu þínu sem þú fylgdist með allt til að yfir
lauk.
Nonni bað mig að minnast þess að þegar
þið voruð að spila Olsen Olsen og þú þótt-
ist vera heimsmeistari í þeirri íþrótt.
Mikið varð hann glaður þegar hann loks-
ins hafði betur.
Þegar þú veiktist fyrir næstum 30 árum
hélt ég að þú ættir ekki mikið eftir en jú
hetjan okkar stóð upp aftur og við fengum
að hafa þig áfram hér. Núna lagði skyldur
sjúkdómur þig að velli. Þú tókst fréttunum
um veikindi þín með æðruleysi og heillað-
ist ég af ró þinni.
Þegar haldnir voru tónleikar þér til heið-
urs í Stapa kom þetta æðruleysi best fram,
þú varst snortinn því þarna sást best hvílík
áhrif vera þín og verk höfðu á samtíðar-
menn þína. Þú áttir marga vini og komu
þeir í heimsókn til þín og var margt um
manninn á Skeljagrandanum síðustu dag-
ana í lífi þínu.
Víst eru gleðin og sorgin systur og þegar
þið Guðný giftuð ykkur þann 27. febrúar
s.l. var það mikill gleðidagur, en aðeins 12
dögum síðar kvaddir þú þennan heim.
Þótt jöklar og dalir skilji okkur að,
þá skaltu ávallt muna það,
að hvar sem ég er og hvert sem ég fer,
hluta af þér tek ég ávallt með mér.
Höf. Óþekktur.
Með þessum orðum langar mig að þakka
þér fyrir samfylgdina í gegnum súrt og
sætt minn kæri.
Elsku Guðný, Sella, Dóri, Lúlli, Hjördís og
litlu börnin ykkar, megi góður Guð og
englar hans vaka yfir ykkur og styrkja
ykkur á þessari stundu.
Þín systir Þórný
Ómar Jóhannsson
Minning
Fæddur 31. desember 1951 • Dáinn 10. mars 2004
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 15:04 Page 28