Víkurfréttir - 18.03.2004, Blaðsíða 30
30 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712sport@vf.is
Njarðvíkingar
fá liðsstyrk
Knattspyrnulið Njarð-víkinga hefur sóttum leikheimild fyrir
24 ára serbneskan miðvall-
arleikmann að nafni Milan
Janosevic. Helgi Bogason,
þjálfari Njarðvíkinga, segir
leikmanninn koma til
reynslu til að byrja með, en
vonast auðvitað til þess að
hann standist undir vænt-
ingum.
Leikmaðurinn kemur til
landsins um helgina og spilar
með liðinu í deildarbikarnum
gegn Fylki á sunnudaginn.
Keflvíkingar unnu góðansigur á ÍA, 5-2, í deildar-bikar karla í knatt-
spyrnu á sunnudaginn.
Keflvíkingar mættu ákveðnir til
leiks í Reykjaneshöllinni og
höfðu skorað 3 mörk eftir um
hálftíma leik. Skagamenn náðu
að minnka muninn með tveimur
slysalegum mörkum rétt fyrir
hálfleik og pressuðu vel í upp-
hafi þess seinni. Keflvíkingar
stóðu þó af sér áhlaupið og veittu
gestunum náðarhöggið með
tveimur mörkum fyrir leikslok.
Markaskorarar Keflavíkur voru
Hörður Sveinsson, Magnús Þor-
steinsson, Zoran Ljubicic, Hólm-
ar Örn Rúnarsson og Þórarinn
Kristjánsson. Gunnlaugur Jóns-
son og Stefán Þórðarson skoruðu
fyrir Skagamenn
Þá unnu Grindvíkingar Hauka, 2-
1, í leik liðanna í deildarbikarn-
um í knattspyrnu sem fór fram á
föstudaginn. Grindvíkingar
komust yfir með marki frá Sinisa
Kekic, en Haukar jöfnuðu metin
áður en flautað var til hálfleiks. Í
seinni hálfleik skoraði Paul McS-
hane sigurmark Grindvíkinga, en
leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu og mátti sjá allmargar
grófar tæklingar.
Friðrik Ingi Rúnarsson,þjálfari Grindvíkinga íkörfuknattleik, hefur
ákveðið að taka sér frí frá
þjálfun eftir að yfirstandandi
tímabili lýkur í vor.
Friðrik er einn af sigursælustu
þjálfurum landsins og hefur
þjálfað Grindavík, Njarðvík og
KR á löngum ferli sem hófst
tímabilið 1990-’91 þegar hann
tók við Njarðvíkingum, 22 ára
gamall, og gerði þá að Íslands-
meisturum. Fyrir utan árangur
sinn með Njarðvíkurliðið vann
hann m.a. Íslandsmeistaratitilinn
með Grindvíkingum 1996.
Í samtali við Víkurfréttir sagðist
Friðrik ætla að huga betur að
verslunarrekstri sínum, en sagð-
ist alls ekki vera hættur afskipt-
um af boltanum. „Það verður nú
samt skrítið að vera ekki í eldlín-
unni. Körfuboltinn er búinn að
vera stór hluti af lífi mínu í svo
mörg ár, en það hlýtur að venj-
ast.“
Nína Ósk
skorar enn
Valur tryggði sérReykjavíkurmeist-aratitil kvenna í
knattspyrnu fjórða árið í
röð með stórsigri á KR, 4-
1, í Egilshöll í síðustu viku.
Markadrottningin Nína
Ósk Kristinsdóttir frá
Sandgerði skoraði eitt
marka Vals og gerði því
hvorki fleiri né færri en 21
mark í 6 leikjum í mótinu.
Geri aðrir betur!
Færeyska knattspyrnulið-ið Götu Ítróttarfélagkom hingað til lands í
síðustu viku og lék m.a. vin-
áttuleiki gegn Keflavík og
Njarðvík.
Keflvíkingar unnu afgerandi sig-
ur á færeyingunum, 7-2, á mið-
vikudaginn þar sem þeir skoruðu
fyrstu 5 mörk leiksins áður en GÍ
svaraði með tveimur í röð.
Heimamenn smelltu inn tveimur
mörkum í viðbót áður en flautað
var til leiksloka og stórsigur var
staðreynd.
Markaskorarar Keflavíkur voru
Þórarinn Kristjánsson 2, Hörður
Sveinsson 2, Magnús Þorsteins-
son, Hjörtur Fjelsted og Haraldur
Guðmundsson.
Á fimmtudagskvöld mætti GÍ
Njarðvíkingum og skildu liðin
jöfn, 1-1. Aron Már Smárason
kom Njarðvíkingum yfir í fyrri
hálfleik, en GÍ jafnaði stuttu síð-
ar. Njarðvíkingar fengu gullið
tækifæri til að ná forystunni á ný,
en þeir misnotuðu vítaspyrnu á
30. mínútu leiksins.
Logi meið-
ist aftur
Njarðvíkingurinn LogiGunnarsson, semleikur í þýsku deild-
inni, á ekki sjö dagana sæla
um þessar mundir því að
skömmu eftir að hann var
kominn í gang eftir erfið
axlarmeiðsli fór hann úr
axlarlið á æfingu. Liðs-
læknirinn gat lítið að gert
og þurfti hann því að fara á
sjúkrahús þar sem þurfti
að svæfa hann til að hægt
væri að kippa öxlinni aftur
í liðinn.
Því er allt útlit fyrir það að
Logi verði ekki meira með á
þessari leiktíð og verður
hann þess í stað að einbeita
sér að því að koma sterkur til
leiks næsta haust.
Íslandsmót unglinga í badminton
S íðustu helgi fór Íslandsmót unglinga í badminton fram íReykjanesbæ. Aldrei hefur mótið verið stærra en nú, en274 keppendur frá 12 aðildarfélögum voru skráðir til
leiks, þar af 138 piltar og 136 stúlkur. Félögin sem tóku þátt
voru BH, HAMAR, ÍA, KR, Keflavík, TBA, TBR, TBS, UMFA,
UMFH, UMFÞ, UMSB.
Spilaðir voru 670 leikir samkvæmt mótaskrá og fór verðlaunaaf-
hendingin fór fram strax að loknum síðasta úrslitaleiknum á sunnu-
deginum þar sem krýndir voru 32 Íslandsmeistarar í einliðaleik og
16 pör í tvíliðaleik og tvenndarleik.
Páll Axel Vilbergsson,leikmaður meistara-flokks í körfuknattleik
var á þriðjudagskvöld valinn
íþróttamaður Grindavíkur. Í
öðru sæti varð Ólafur Örn
Bjarnason, landsliðsmaður og
leikmaður meistaraflokks í
knattspyrnu og í þriðja sæti
varð Guðjón Hauksson, pílu-
kastfélagi Grindavíkur.
Við athöfnina sem haldin var í
Saltfisksetri Íslands undirrituðu
bæjarstjóri og formenn aðildarfé-
laga UMFG styrktarsamning
Grindavíkurbæjar við UMFG og
sagði Ólafur Örn Ólafsson bæj-
arstjóri við það tilefni að miðað
við það sem hann hefði kynnt sér
væri styrkur bæjaryfirvalda í
Grindavík við íþróttaiðkun einn
sá mesti á landinu. Enda geta
Grindvíkingar verið ánægðir
með árangurinn þar sem 4. fl.
kvenna í knattspyrnu og 7. fl.
kvenna í körfubolta eru Íslands-
meistarar í sínum greinum og 9.
fl. kvenna eru bikarmeistarar í
körfuknattleik þannig að óhætt er
að segja að fjárfestingin er góð.
Páll Axel íþróttamaður
Grindavíkur 2003
KEFLAVÍK VANN
STÓRSIGUR Á ÍA
Færeyingar á ferð og flugi
FRIÐRIK
FER Í FRÍ
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 15:51 Page 30