Víkurfréttir - 18.03.2004, Síða 31
VÍKURFRÉTTIR I 12. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 18. MARS 2004 I 31
Tómas Guðmundsson hnefa-
leikakappi úr Grindavík segist
vera alveg rólegur fyrir bardag-
ann á laugardag, en hann tekur á
móti Lárusi Knudsen frá Ísa-
firði. Bardaginn á laugardags-
kvöldið er þeirra annar bardagi,
en Lárus sigraði Tómas síðast
þegar þeir mættust í hringnum.
Tómas segist vera í góðu formi,
en hann hefur æft af fullum
krafti síðustu vikur undir stjórn
Guðjóns Vilhelms forsvars-
manns Hnefaleikafélags
Reykjaness. „Lárus náði að
lemja mig síðast, en ég var illa
stemmdur fyrir þá keppni,“ segir
Tómas og hann gengur mjög
ákveðinn til leiks í hringnum.
„Ég ætla allavega að vinna
þennan bardaga og mun leggja
mig 100% fram. Fólk getur átt
von á mjög skemmtilegum bar-
daga,“ sagði Tómast í samtali
við Víkurfréttir.
Góður árangur
á bikarmóti FSÍ
B ikarmót FSÍ var haldiðhelgina 6.-7. mars. Fim-leikadeild Keflavíkur
sendi 12 stúlkur í tveimur lið-
um til þátttöku á mótið. Mótið
er liðakeppni og stóð yfir bæði
laugardag og sunnudag. Stúlk-
urnar kepptu í 4. og 5. þrepi ís-
lenska fimleikastigans og stóðu
sig með prýði og hreppti 4.
þreps liðið 2. sæti á mótinu sem
telst nokkuð góður árangur.
Þjálfara stúlknanna eru þau
Ionela Loaies og Robert
Bentia. Lið Gerplu var í 1. sæti
og Ármann í því þriðja.
Þess má einnig geta að Heiðrún
Rós Þórðardóttir frá Keflavík
varð í febrúar Íslandsmeistari í
samanlögðum árangri í sterkasta
flokki í hópfimleikum. Heiðrún
vann allar sínar greinar fyrir utan
gólfæfingar.
Mikil gróska er í fimleikastarf-
inu hér í bæ og eru 240 iðkendur,
sem er aukning um 60 frá árinu
áður. Mikill meirihluti þeirra eru
stúlkur en í ár er Keflavík í fyrsta
skipti með sérstakan strákahóp
sem samanstendur af tíu strák-
um, sjö og átta ára.
David Sanders leikmaðurúrvalsdeildarliðs Tinda-stóls í körfuknattleik
var á þriðjudaginn úrskurðað-
ur í 6 leikja keppnisbann
vegna atviks sem átti sér stað í
leik liðsins gegn Keflavík þann
14. mars s.l. Aganefndin skoð-
aði myndbandsupptöku frá
umræddum leik þar sem að
David Sanders virtist slá Sverri
Sverrisson leikmanns Keflavík-
ur. Það var mat nefndarinnar
að Sanders hefði gerst brotleg-
ur og er refsingin sem hann
fær nánast óþekkt stærð í ís-
lenskum körfuknattleik, en
Ágúst Dearborn, sem þá lék
með Njarðvík, fékk sex leikja
bann í nóvember árið 2002.
Á laugardagskvöld ferfram boxkeppni í Ljóna-gryfjunni í Njarðvík, en
þetta er í fyrsta sinn í tæplega
50 ár sem innlendir boxklúbb-
ar mætast í keppni. Hnefa-
leikafélag Reykjaness tekur á
móti Hnefaleikafélagi Reykja-
víkur.
Alls verða fimm bardagar háðir.
Lagt verður kapp á að gera
keppnina að skemmtun fyrir alla
fjölskylduna og verður boðið upp
á skemmtiatriði af ýmsum toga á
milli bardaga, m.a. mun Idol
stjarnan Kalli Bjarni flytja nokk-
ur lög.
Hápunktur keppninnar verður
viðureign í þungavigt, þar sem
Grindvíkingurinn Tómas Guð-
mundsson úr Hnefaleikafélagi
Reykjaness og Ísfirðingurinn
Lárus Mikael Knudsen, sem
keppir fyrir hönd Hnefaleikafé-
lags Reykjavíkur, mætast. Þetta
verður í annað sinn sem þessir
harðjaxlar mætast og hefur
Tómas harma að hefna frammi
fyrir sínu heimafólki, því Lárus
vann fyrri bardagann.
Aðrir bardagar sem fram fara
á keppninni eru:
Vikar K. Sigurjónsson (HFR)
VS. Þórir Fannar Þórisson(HR)
Heiðar Sverrisson (HFR)
VS. Gunnar Óli Guðjónsson (HR)
Örn Jónasson (HFR)
VS. Birkir Guðbjartsson (HR)
Árni Páll Jónsson (HFR)
VS. Einar Sverrisson (HR)
Í undanförnum keppnum sem
haldnar hafa verið í Reykjanesbæ
hefur ávallt myndast sérstök
stemmning. Suðurnesin hafa
verið höfuðvígi íþróttarinnar frá
því að hún var lögleidd á ný árið
2002, og er gjarnan húsfyllir á
þeim keppnum sem þar fara
fram.
Húsið opnar kl. 19:00 og mun
keppnin hefjast kl. 20:00.
Fyrsta stóra boxkeppni ársins
Boxkvöld í Ljónagryfjunni í Njarðvík:
Tómas ætlar sér að sigra
Sanders dæmdur í sex leikja bann
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 15:45 Page 31