Víkurfréttir - 18.03.2004, Qupperneq 32
32 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
sportið Umsjón: Þorgils Jónsson • sími 868 7712sport@vf.is
Úrslitakeppni
ntersport-deildarinnar
NJARÐVÍK-HAUKAR 100-61
Njarðvík: Brandon Woudstra 21, Páll
Kristinsson 18/13, Will Chavis 17,
Brenton Birmingham 16.
Haukar: Michael Manciel 12, Þórður
Gunnþórsson 10.
HAUKAR-NJARÐVÍK 61-104
Njarðvík: Brandon Woudstra 22,
Brenton Birmingham 16, Halldór
Karlsson 16.
Haukar: Michael Manciel 21, Sævar
Haraldsson 12.
KEFLAVÍK-TINDASTÓLL 98-81
K: Gunnar Einarsson 20, Derrick
Allen 18, Fannar Ólafsson 17, Nick
Bradford 15, Magnús Þór Gunnars-
son 15, Jón Norðdal 10.
T: Clifton Cook 22, David Sanders
17, Helgi Viggósson 11, Svavar Birg-
isson 11.
TINDASTÓLL-KEFLAVÍK 89-86
Keflavík: Derrick Allen 24, Magnús
Þór Gunnarsson 22, Fannar Ólafsson
11, Nick Bradford 10.
Tindastóll: Clifton Cook 28, Svavar
Birgisson 18, David Sanders 16.
KEFLAVÍK-TINDASTÓLL 98-96
Keflavík: Derrick Allen 38/14, Nick
Bradford 24, Arnar Freyr 16, Fannar
Ólafsson 9.
Tindastóll:Clifton Cook 38, David
Sanders 27, Svavar Birgisson 13.
GRINDAVÍK-KR 95-99
Grindavík: Darrel Lewis 33, Páll
Axel Vilbergsson 22, Anthony Jones
17/6/12, Jackie Rogers 14.
KR: Elvin Mimms 25/12, Josh
Murray 18/13, Skarphéðinn Ingason
13, Jesper Sörensen 13.
KR-GRINDAVÍK 95-108
Grindavík: Darrel Lewis 34/10, Ant-
hony Jones 24/7/15, Pétur Guð-
mundsson 14, Jackie Rogers 14,
Guðmundur Bragason 12.
KR: Josh Murray 38/11, Skarphéðinn
Ingason 13, Elvin Mimms 13.
GRINDAVÍK-KR 89-84
Grindavík: Darrel Lewis 28/10,
Jackie Rogers 24, Páll Axel
Vilbergsson 12 og Anthony Jones
11/12/10.
KR: Josh Murray 29/17, Elvin
Mimms 23, Skarphéðinn Ingason 11.
Úrslitakeppni
1. deildar kvenna
KEFLAVÍK-GRINDAVÍK 58-52
Keflavík: Anna María Sveinsdóttir
18/11, Birna Valgarðsdóttir 11,
Erla Reynisdóttir 10.
Grindavík: Sólveig Gunnlaugsdóttir
16, Ólöf Pálsdóttir 15,
Kesha Tardy 10/10.
Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ boðar til framkvæmdaþingsn.k. mánudag, 22. mars kl. 16.00 - 19.00. Þingið verðurhaldið á veitingahúsinu Ránni við Hafnargötu 19a og er öll-
um opið.
Á þinginu verða kynntar helstu verkframkvæmdir sem fyrirhugaðar
eru á árinu 2004 í landi Reykjanesbæjar og á Keflavíkurflugvelli.
Auk Reykjanesbæjar og aðila tengdum honum, eins og Reykjanes-
hafnar og Fasteignar hf., verða kynntar framkvæmdir vegna alþjóða-
flugvallar á Keflavíkurflugvelli, Varnarliðinu og virkjunar á vegum
Hitaveitu Suðurnesja. Þá hefur helstu verktökum á svæðinu verið
boðið að kynna eigin framkvæmdir.
E llen Hilda Sigurðardótt-ir og Óðinn Hrafn Þrast-arson, bæði 7 ára og
væntanlegir nemendur við nýj-
an skóla í Innri Njarðvík,
Reykjanesbæ, taka fyrstu
skóflustungu að byggingunni
með aðstoð Árna Sigfússonar,
bæjarstjóra og formanns
fræðsluráðs, kl. 14, laugardag-
inn 20. mars.
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf.,
sem Reykjanesbær er aðili að,
byggir skólann sem tekur mið af
teikningum Heiðarskóla í
Reykjanesbæ. Teikningar eru
síðan aðlagaðar hugmyndum um
„opinn skóla“ þar sem mikið er
lagt upp úr einstaklingsmiðuðu
námi með opnu rými og sam-
starfi kennara um tiltekin heima-
svæði.
Við undirbúning verksins hefur
náðst verulegur árangur í að
lækka kostnað við byggingu nýja
skólans sé miðað við byggingar-
kostnað sambærilegs hluta
Heiðaskóla þó ekki hafi verið
slakað á gæðakröfum vegna
verksins. Þegar hefur verið
samið við Reykjanesbæ um há-
marksverð byggingarinnar en
verði útboð hagstæðari en við-
miðunartölur mun bærinn njóta
þess.
Heildarbyggingarkostnaður 1.
áfanga er nú áætlaður 578,3
milljónir kr. eða 165.858 kr/m2 .
Til samanburðar er uppreiknaður
kostnaður vegna byggingar sama
stærðarhluta Heiðaskóla á verð-
lagi dagsins í dag 648,0 milljónir
kr. Áætlaður heildarsparnaður
miðað við sambærilegan full-
byggðan skóla er því yfir 110
milljónir kr.
Gert er ráð fyrir að skólastarf
hefjist haustið 2005 og verða
nemendur um 100 talsins fyrsta
árið. Þeim mun síðar fjölga í
400 þegar skólinn verður kominn
í fulla notkun.
Arkitektar: Arkitektastofa Suð-
urnesja ehf., Bjarni Marteinsson
arkitekt.
Verkfræðingar burðarvirkja og
lagna: Tækniþjónusta SÁ ehf.,
Sigurður Ásgrímsson bygginga-
tæknifræðingur.
Verkfræðingar raforkuvirkja:
Rafmiðstöðin ehf., Guðmundur
Guðbjörnsson rafmagnstækni-
fræðingur.
Verkefnisstjóri: Samúel Guð-
mundsson byggingatæknifræð-
ingur á Teiknistofu Halldórs
Guðmundssonar ehf.
Daglegt eftirlit: Guðni Þór Gunn-
arsson á Verkfræðistofu Suður-
nesja ehf.
Fyrsta skóflustunga að nýjum
grunnskóla í Reykjanesbæ
F R A M K V Æ M D A Þ I N G 2 0 0 4
Yfirlit helstu framkvæmda
í Reykjanesbæ 2004
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 14:33 Page 32