Víkurfréttir - 18.03.2004, Síða 33
VÍKURFRÉTTIR I 12. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 18. MARS 2004 I 33
KEFLAVÍK-TINDASTÓLL
Keflvíkingum brást bogalistin í
öðrum leik sínum gegn Tinda-
stóli í 8-liða úrslitunum og varð
því að grípa til oddaleiks til að
skera úr um hvort liðið kæmist í
undanúrslit.
Stemmningin í Sláturhúsinu var
með ólíkindum þegar leikurinn
hófst og húsið lék á reiðiskjálfi.
Gestirnir byrjuðu mun betur og
höfðu frumkvæðið frá upphafi.
Clifton Cook og David Sanders
fóru hreinlega á kostum og léku
hripleka Keflavíkurvörnina grátt.
Vörnin hjá Keflvíkingum lagað-
ist nokkuð í öðrum leikhluta, en
Derrick Allen dró vagninn aleinn
í sókninni. Þeir náðu að saxa á
forskotið gestanna áður en flaut-
að var til hálfleiks, en voru enn
10 stigum undir, 44-54.
Hjólin fóru að snúast í sóknarleik
Keflvíkinga þegar á leið og voru
búnir að minnka muninn í 7 stig
fyrir lokafjórðunginn. Þar mættu
þeir gallharðir til leiks og fóru
þeir félagar Arnar Freyr og Nick
Bradford loks að láta til sín taka.
Þeir fóru fyrir sínum mönnum
sem unnu muninn upp og jöfn-
uðu 75-75 eftir 2 mínútna leik.
Eftir það fór í hönd ótrúlegur
leikkafli þar sem spennan var í
algleymingi. Liðin skiptust á að
hafa forystuna, en Stólarnir
höfðu frumkvæðið. Þegar 15
sekúndur voru eftir af leiknum
höfðu Keflvíkingar boltann og
staðan var jöfn, 96-96. 3ja stiga
skot frá Magnúsi Þór geigaði, en
Fannar Ólafsson var tók sóknar-
frákastið og skoraði af miklu
harðfylgi og tryggði þar með sig-
urinn. Tindastóll hafði 7 sekúnd-
ur til að svara, en náðu ekki að
nýta þær.
„Þetta var bara eins og alvöru úr-
slitaleikur.“ sagði Falur Harðar-
son í leikslok. „Við gerðum okk-
ur erfitt fyrir með lélegum kafla í
fyrri hálfleik, en við hættum
aldrei að trúa því að þetta væri
hægt.“ Falur sparaði ekki hrósið
þegar talið barst að Derrick
Allen. „Hann dró vagninn gjör-
samlega fyrir okkur og það er
gott að vera með menn eins og
hann sem geta tekið af skarið
þegar á þarf að halda.“
GRINDAVÍK-KR
Grindvíkingum fataðist flugið
illilega í fyrsta leik liðanna sem
þeir töpuðu í Röstinni, en þeir
völtuðu yfir KR-ingana í öðrum
leiknum. Í oddaleiknum var því
að duga eða drepast fyrir bæði lið
ef þau ætluðu sér áfram í keppn-
inni.
Grindvíkingar hófu leikinn betur
en gestirnir úr vesturbænum og
leiddu, naumlega þó, 23-20, eftir
fyrsta leikhluta. Þeir héldu for-
skotinu fram að leikhléi, en KR
tóku sig vel á í upphafi seinni
hálfleiks og unnu upp forskotið
og komust yfir á tímabili. Þá
tóku Grindvíkingar við sér á ný
og tóku góðan kafla þar sem Pét-
ur Guðmundsson fór fyrir sínum
mönnum með tveimur 3ja stiga-
körfum í röð. Munurinn fór upp í
12 stig fyrir heimamenn sem
virtust hafa leikinn tryggilega í
hendi sér. Þá fór að gæta á því að
Grindvíkingar hættu að sækja og
reyndu þess í stað að verja for-
skotið, en slíkt kann ekki góðri
lukku að stýra. KR-ingarnir
gengu á lagið og náðu að minnka
muninn allt niður í eitt stig áður
en heimamenn hrukku í gírinn
enn einu sinni og náðu þeir að
klára leikinn eftir spennandi
lokakafla þar sem hefði getað
brugðið til beggja vona.
Friðrik Ingi hjá Grindavík var
ánægður með leik sinna manna,
en bætti við að þeir mættu ekki
við mistökum eins og þeir gerðu
sig seka um á köflum í leiknum.
„Það getur farið illa þegar maður
leikur svona við djöfulinn, en
þetta hafðist. Það er raunar aldrei
auðvelt að ná upp baráttu eftir
stóra sigurleiki eins og sá síðasti
var, en nú erum við farnir að
horfa til undanúrslitanna. Þau
leggjast bara vel í mig og þetta
eru allt alvörulið.“
Suðurnesjaliðin
í undanúrslit
NJARÐVÍK-HAUKAR
Fyrirfram var búist við því að
viðureignir Njarðvíkinga og
Hauka yrðu spennandi baráttu-
leikir. Sú varð ekki raunin því að
Njarðvíkingar hreinlega völtuðu
yfir Hafnfirðingana í tveimur
leikjum þar sem sterk vörn og
mikil keyrsla og hraði var lykill-
inn.
Njarðvíkingar unnu báða leikina
með um 40 stiga mun þar sem
erfitt var að sjá veikan hlekk á
liði þeirra. Erlendu leikmennirnir
voru mjög drjúgir í sókninni þar
sem Will Chavis kom þægilega á
óvart og stóru mennirnir, Friðrik
og Páll, settu allt í lás í vörninni
og sópuðu upp fráköstunum. Þeir
munu mæta Snæfelli í undanúr-
slitum og verður það vafalaust
eftirminnilegt einvígi.
Friðrik Ragnarsson þjálfari var
ánægður með sína menn eftir
leikina og taldi þá vera að toppa
á hárréttum tíma. „Við erum
búnir að æfa vel að undanförnu
og allir eru í hörkuformi. Vörnin
hjá okkur var sérstaklega massíf
og skilaði okkur mörgum auð-
veldum stigum úr hraðaupp-
hlaupum.“
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 14:38 Page 33