Víkurfréttir - 18.03.2004, Page 36
KEFLAVÍKURKIRKJA
Fimmtudagur 18. mars.:
Lokaæfing fyrir fermingarbörn
sem fermast 21. mars: kl. 16-
16:45 8. VG í Heiðarskóla sem
fermist 21. mars kl. 10:30 og 8.
SV í Heiðarskóla kl. 16:45-
17:30, sem fermist kl. 14 þann
21. mars.
Föstudagur 19. mars:
Útför Guðmundar Inga Ólafs-
sonar Garðvangi, Garði, áður
Suðurgötu 39, Keflavík, fer fram
kl. 14:00.
Sunnudagur 21. mars: Miðfasta.
Ferming kl. 10:30 (hópur 1, 8.
VG í Heiðarskóla)
Ferming kl. 14 (hópur 2, 8. SV í
Heiðarskóla) 4. sunnudagur í
föstu-miðfasta, 5. Mós. 8.2-3, 2.
Kor. 9.6-11, Jóh. 6.1-15.
Báðir prestarnir, Helga Helena
og Ólafur Oddur, þjóna við
athafnirnar. Kór Keflavíkurkirkju
leiðir söng. Ólafur Flosason
leikur einleik á óbó.
Þriðjudagur 23. mars:
Alfahópur kemur saman í
Kirkjulundi kl. 12-15.
Allir velkomnir.
Miðvikud.: 24. mars.:
Kirkjan opnuð kl. 12:00.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í
kirkjunni kl. 12:10.
Samverustund í Kirkjulundi kl.
12:25 - súpa, salat og brauð á
vægu verði - allir aldurshópar.
Æfing Barnakórs
Keflavíkurkirkju kl. 16-17 og
Kórs Keflavíkurkirkju frá 19:00-
22:30.
NJARÐVÍKURKIRKJA
(INNRI-NJARÐVÍK)
Fermingarmessa sunnudaginn
21. mars kl. 10.30. Kór kirkjun-
nar syngur undir stjórn Gísla
Magnasonar organista.
Meðhjálpari Kristjana
Gísladóttir. Aðalsafnaðarfundur
Innri-Njarðvíkursóknar fer fram í
safnaðarheimili kirkjunnar
fimmtudaginn 18. mars. kl. 18.
Dagskrá; Venjuleg aðalfundar-
störf. Íbúar sóknarinnar eru hvat-
tir til að mæta.
Sóknarprestur og sóknarnefnd.
HVALSNESKIRKJA
Laugardagurinn 20. mars
Safnaðarheimilið í Sandgerði
Kirkjuskólinn kl. 11.
Allir velkomnir.
Fermingarfræðsla
Í Grunnskólanum í Sandgerði
kl. 9:30 -12.
Safnaðarheimilið í Sandgerði
Námskeið Steinunnar
Jóhannesdóttur rithöfundar
„Frá Algeirsborg til Suðurnesja“
er á þriðjudagskvöldum kl. 20:30
Safnaðarheimilið Sæborg
Alfa -námskeið eru milli
kl. 19 -22 á miðvikudags-
kvöldum.
NTT-starfið -Níu til tólf ára
starf er í safnaðarheimilinu í
Sandgerði
á miðvikudögum kl. 17:30.
ÚTSKÁLAKIRKJA
Laugardagurinn 20. mars
Safnaðarheimilið Sæborg
Kirkjuskólinn kl. 14.
Allir velkomnir.
Fermingarfræðsla
Í Grunnskólanum í Sandgerði
kl. 9:30 -12.
Safnaðarheimilið í Sandgerði
Námskeið Steinunnar
Jóhannesdóttur rithöfundar
„Frá Algeirsborg til Suðurnesja“
er á þriðjudagskvöldum kl.20:30
Safnaðarheimilið Sæborg
Alfa -námskeið eru milli
kl. 19 -22 á miðvikudagskvöl-
dum.
NTT-starfið -Níu til tólf ára
starf er í safnaðarheimilinu
Sæborgu á fimmtudögum kl.
16:30.
Sóknarprestur
Björn Sveinn Björnsson
GRINDAVÍKURKIRKJA
Þriðjudagur 23. mars
Aðalsafnaðarfundur kl. 20.
Stutt helgistund í kirkjunni og
fundur í framhaldinu.
Hvetjum alla áhugasama
um málefni kirkju og safnaðar
að koma á fundinn.
Sóknarnefnd og sóknarprestur
HVITASUNNUKIRKJAN
KEFLAVÍK
Sunnudagar: Barna og fjölskyl-
dusamkoma kl. 11:00
Þriðjudagar:
Bænasamkoma kl. 19:00
Fimmtudagar:
Alfa námskeið kl. 19:00
Laugardagar:
Unglingasamkoma kl: 20:00
BAPTISTA KIRKJAN Á
SUÐURNESJUM
Sunnudagar:
Sunnudagaskóli: kennsla úr
Biblíunni, leikir, söngur, nesti.
Börn 10 ára og eldri: kl. 12.00-
13.30.
Börn 9 ára og yngri: kl. 14.30-
16.00.
Fimmtudagar:
Fræðsla f. fullorðna: fræðsluefni
mars „eigi gleyma stórvirkjum
Guðs“ kl. 19.00-20.00 Allir
velkomnir. Líttu inn!
Patrick Weimer, prestur/prédikari
Iðavöllum 9 e.h., Keflavík (fyrir
ofan Dósasel) Sími: 847 1756.
36 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
KIRKJA
Að undanförnu hefur ver-ið tekist á um það innanbæjarstjórnar í Sand-
gerði hve miklu fé eigi að verja
til framkvæmda, hvenær eigi
að hefjast handa og hvernig
staðið skuli að fjármögnun
framkvæmda.
Í ljósi þess að skuldastaða bæjar-
félagsins er ekki mjög góð, heild-
arskuldir voru við s.l. áramót tæp
960 þús. á hvern íbúa, hafa bæj-
arfulltrúar B- listans lagt til að
farið verði varlega í frekari fram-
kvæmdir a.m.k. næstu tvö árin.
Meirihluti bæjarstjórnar hefur
hinsvegar á s.l. þremur mánuðum
tekið ákvörðun um að ráðast í
framkvæmdir og fjárfestingar
fyrir um 500 milljónir króna. Til
að fjármagna þessar fram-
kvæmdir hefur meirihlutinn sam-
þykkt að selja nokkrar af fast-
eignum bæjarins og einnig hefur
verið lagt til að selja vatnsveit-
una.
Á fundi bæjarstjórnar þann 10.
mars s.l. var samþykkt með 4 at-
kvæðum meirihlutans gegn 3 at-
kvæðum minnihlutans að ganga
til samninga við Eignarhaldsfé-
lagið Fasteign hf. um að selja og
endurleigja grunnskólann,
íþróttahúsið og samkomuhúsið
og jafnframt verði ráðist í endur-
bætur á þessum eignum fyrir um
125 milljónir króna.
Við afgreiðslu þessa máls kom
bókun frá meirihluta bæjarstjórn-
ar sem er fyrir neðan allar hellur.
Þar er farið út í persónulegt skít-
kast gagnvart bæjarfulltrúum
minnihlutans, alvarlegust er þó
árásin á bæjarfulltrúa Þ-listans,
sem jafnframt er starfsmaður
bæjarfélagsins og hefur sinnt því
starfi með miklum ágætum. Í
bókun meirihlutans segir m.a.:
„Afstaða Ólafs Þórs Ólafssonar
vekur furðu þar sem hann er
starfsmaður bæjarfélagsins og
ætti að leggjast á sveif með nú-
verandi meirihluta við uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja í bænum.
Hægt er að draga þá ályktun að
afstaða hans sé einnig í mótsögn
við afgreiðslu tveggja fagráða er
málið varðar þar sem hann er
starfsmaður þeirra.“
Þar sem Ólafur Þór situr fundi
bæjarstjórnar sem bæjarfulltrúi
Þ- listans en ekki sem íþrótta- og
tómstundafulltrúi er bókun meiri-
hlutans alvarleg tilraun til skoð-
anakúgunar og móðgun við alla
starfsmenn bæjarfélagsins.
Undirrituð krefjast þess að meiri-
hluti bæjarstjórnar í Sandgerði,
sem heild eða hver fyrir sig, biðji
þann ágæta starfsmann Ólaf Þór
Ólafsson opinberlega afsökunar á
framangreindri bókun. Hið sama
þarf bæjarstjórinn að gera fyrir
það að þegja þunnu hljóði þegar
vegið er að starfsmanni hans á
þennan hátt.
Við hvetjum alla ofanritaða til að
láta af slíkum vinnubrögðum og
halda sig við málefnin,
með von um betra samstarf,
Heiðar Ásgeirsson
Ester Grétarsdóttir
„Svona gera menn ekki“
➤ S V E I TA R S T J Ó R N A R M Á L Í S A N D G E R Ð I
Útför Ómars Jóhannssonar fer fram frá
Útskálakirkju föstudaginn 19. mars kl. 14.00.
F.h. aðstandenda,
Guðný R. Reynisdóttir
✝
12. tbl. 2004 umbrot hbb 17.3.2004 14:42 Page 36