Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.12.2015, Side 14

Víkurfréttir - 17.12.2015, Side 14
14 fimmtudagur 17. desember 2015 • VÍKURFRÉTTIR -viðtal pósturu eythor@vf.is Jólahefðirnar eru æði misjafnar hér á landi. Fólk sem hefur flust hingað erlendis frá kemur með sínar eigin hefðir og fagnar jólunum með ýmsum hætti. Víkurfréttir heyrðu í ungu fólki á Suðurnesjum sem heldur upp á jól með aðeins öðruvísi sniði. Alþjóðleg jól Ljiridona Osmani er 18 ára stelpa sem býr í Keflavík. Hún fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Íslands árið 2002 frá Kosovo, en þau voru flóttafólk. Ljiridona er múslimi líkt og aðrir í hennar fjölskyldu. Þau fagna ekki jólum eins og flestir Íslendingar. Mús- limar frá Kososvo halda hátíð sem kallast Bajram tvisvar á ári. Há- tíðina ber ekki alltaf upp á sömu dagsetningu en þá skiptast ætt- ingjar á stórum gjöfum líkt og við gerum á jólum. „Aðfangadagur og jóladagur eru bara venjulegir dagar hjá okkur. En annars gerum við ekkert merkilegt, bara svona ti l þess að reyna að vera með þá gefum við gjafir og svoleiðis en annars er engin matur og ekkert sérstakt sem við gerum. Þegar það er Bajram þá er fastað í 30 daga. Það virkar bara þannig að það er settur ákveðinn tími þegar maður má ekki borða, eftir klukkan þrjú að nóttu til fram að níu um kvöldið. Það kemur alltaf svona dagatal inná netið sem maður fer eftir og þar getur maður séð hvenær maður má borða og svoleiðis.“ Ljiridona segir að þó svo að flestir vinir hennar haldi jólin hátíðleg þá finnist henni það ekkert erfitt. „Mér finnst þetta ekkert erfitt þar sem ég er vön að halda engin jól.“ Hún segir að síðan fjölskyldan kom til landsins hafi þeim verið tekið mjög vel af Íslendingum. Hún hefur alls ekki fundið fyrir fordómum vegna þess að hún sé múslimi „Margir hjálpuðu okkur og ég er bara rosa þakklát að búa hér og hvað Íslendingar tóku vel á móti mér og fjölskyldunni minni,“ segir hún. Jólaundirbúningur Íslendinga verður ekki mikið á vegi hennar en þó eru einhverjar íslenskar he fð i r s em hún kann vel við. „Það er ekkert mikið af jóla- lögum hérna heima en maður kann þó nokkur jólalög eftir öll þessi litlujól í skól- anum. Við borðum dálítið mikið af hangi- kjötinu en finnst skatan nú ekkert góð,“ segir hún að lokum. Gindvíkingurinn Ivan Jugovic tilheyrir rétttrúnaðarkirkjunni en fjölskyldan hans kom hingað til lands frá Serbíu. Þau halda ekki þessi dæmigerðu íslensku jól heldur halda þau í hefðirnar frá heimalandinu. Fjölskyldan fluttist til Íslands árið 2000 þegar Ivan var fjögurra ára gamall. Þegar íslensku jólin standa sem hæst þá sefur Ivan yfirleitt út og spilar FIFA tölvuleikinn. Áramótin hjá Ivan eru svo með sama sniði og tíðkast á Íslandi. „Á aðfangadag sem er þann 6. janúar borðum við fisk, salat, kartöflur og annað meðlæti vegna þess að við föstum. Þegar við föstum þá borðum við ekki neina af- urðir úr dýrum. Síðan er bakað kringlótt brauð og settur peningur inn í brauðið, síðan safnast fjölskyldan í kringum brauðið og það er brotið. Sá sem fær peninginn er talinn eiga gott ár framundan. Á jólunum förum við í rétttrúnaðarkirkjuna til Reykjavíkur í messu, síðan förum við heim í forrétt sem er yfirleitt súpa, síðan er heilgrillað svín og/eða lamb alltaf í aðalrétt, sem yfirleitt er þá hamborgarahryggur. Við erum svo með salat og með- læti með því. Í eftirrétt eru yfirleitt tertur, smákökur og margt fleira.“ Jólin snúast ekki um það efnislega „Yfirleitt er fastað fimm vikum fyrir jól en það er val hvers og eins hversu lengi þá langar að fasta. Hinsvegar er nauðsynlegt að fasta á aðfangadag. Jólaskreytingar og bakstur eiga sér stað til að fagna komu áramótanna. Allt tengt við jólin hjá okkur kemur skrauti, bakstri eða jólamörkuðum lítið við. Jólin er hátíð kærleiks og friðar og þakklætis. Þau snúast voða lítið um efnislegu hlutina eins og gerist víða annars staðar.“ Jól tvisvar á ári Setja peninga í brauð Olena Stetsii er 16 ára stúlka sem fæddist og ólst upp í Úkraínu. Hún er oftast kölluð Lena. Hún fluttist til Reykjanes- bæjar árið 2013. Í Úkraínu er jólum ekki fagnað. Helstu hátíðarhöldin þar í landi eru um áramótin. Þá sest fjölskyldan til borðs klukkan 23:00 þann 31. desember og borðar saman. Á boðstólnum er kjúklingur, sérstakt salat sem kallast Oliver salat og aspic súpa (sem er fryst súpa með kjöti). „Á miðnætti fagna allir með því að drekka kampavín og óska sér einhvers þegar klukkan slær tólf. Ég bíð alltaf spennt eftir flugeldunum því þeir eru mjög fallegir. Í Úkraínu skreytum við jólatréð dagana 28.- 30. desember en það er ekki mikið af húsum sem eru skreytt. Við setjum líka mikið af nammi á jólatréð okkar. Núna fögnum við íslenskum jólum og höldum svo úkraínsk áramót. Við gefum þó bara gjafir um jólin. Það besta við íslensku jólin eru 13 jólasveinar af því að þá fæ ég fleiri gjafir en ég fékk í Úkraínu. Þegar ég var í grunnskóla þá var líka gaman að syngja jólalög í mat- salnum með öðrum nem- endum,“ segir Lena. Fjölskyldan fagnar á gamlársdag Jakub Zarski fluttist til Íslands frá Pól- landi þegar hann var eins árs. Jólin hjá honum og hans fjölskyldu eru pólsk og íslensk í bland. „Á aðfangadagskvöld höfum við hlað- borð með 12 réttum. Aðalrétturinn er fiskur. Vinsæll réttur eru lítil deig sem fyllt oftast með kjöti eða blöndu úr sveppum, sem við köllum ,,Pie- rogi.“ Við borðum þegar fyrsta stjarna á himninum kemur og eftir kvöldmatinn kemur jólasveininn með pakka. Upp úr miðnætti förum við svo í messu. Á að- fangadagskvöld höfum við alltaf eitt laust sæti og leggjum á borð fyrir óvæntan gest, en það er sérstök pólsk hefð. Á mínu heimili er þetta frekar blandað. Við fylgjum bæði pólskum og íslenskum hefðum. Það besta við íslensk jól hlýtur að vera að krakkar hafa þessa 13 daga þar sem fá eithvað í skóinn og auðvitað jóla- ölið.“ Alltaf eitt laust sæti fyrir óvæntan gest

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.