Víkurfréttir - 17.12.2015, Page 29
29VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015
Ásmundur Friðriksson
þingmaður og formaður Þroska-
hjálpar á Suðurnesjum segir það
hafa verið mistök að kjósa gegn
afturvirkri hækkun á bótum til
öryrkja og ellilífeyrisþega.
Ásmundur Friðriksson þingmaður
Sjálfstæðisflokks í Suðurkjör-
dæmi og formaður Þroskahjálpar
á Suðurnesjum kaus á dögunum
á móti tillögu minnihlutans á Al-
þingi þess efnis að öryrkjar og aldr-
aðir fengju afturvirka leiðréttingu á
kjörum sínum. 17. nóvember síð-
astliðinn ákvað Kjararáð að hækka
laun þeirra sem lúta ákvörðunar-
valdi ráðsins, þar á meðal þing-
manna, um 9,3 prósent afturvirkt
til 1. mars 2015. Eftir atkvæða-
greiðsluna voru margir sem sendu
Ásmundi skoðanir sínar á afstöðu
hans, ýmist með tölvupósti, sím-
tölum eða á samfélagsmiðlum.
Hann segir dagana á eftir hafa verið
erfiða. „Ég hugsaði um mitt fólk og
hvernig ég hafði brugðist þeim. Ég
ætla ekki að gera það aftur, það er
alveg á hreinu,“ segir hann í viðtali
við Víkurfréttir.
Hann segir málið hafa snúist meira
um prinsipp en afturvirkar hækk-
anir. „Þegar Kjaradómur dæmdi
þingmönnum afturvirkar kjara-
bætur vildi þetta fólk það auðvitað
líka, þó að lögin um almannatrygg-
ingar kveði á um annað. Það voru
taktísk mistök hjá okkur að hlusta
ekki á það. Við þurfum að spóla til
baka og skoða hvort við getum ekki
fundið leið.“ Ásmundur bendir á
að til standi að hækka örorku- og
ellilífeyri um 8,9 prósent um ára-
mót en að alltaf þurfi að reyna að
finna lausnir. „Við þurfum líka að
hugsa um að skapa frið í samfélag-
inu og ekki síst fyrir þann hóp sem
hefur það verst af öllu.“ Ásmundur
kveðst þekkja vel til kjara öryrkja
og hafa haft það að leiðarljósi að
leggja sitt af mörkum þeim til
handa. „Ég eignaðist nýtt líf fyrir
tíu árum síðan þegar ég hætti að
drekka og hef haft það fyrir lífs-
mottó að þakka fyrir það. Þess
vegna voru þessi læti mér miklu
erfiðari en kannski öðrum í sömu
sporum því ég er svo nátengdur
þessu fólki.“
Þegar viðtalið var tekið voru þrír
dagar síðan atkvæðagreiðslan fór
fram á Alþingi. Aðspurður um
viðbrögðin við því að hann hafi
hafnað afturvirkum hækkunum
til öryrkja og ellilífeyrisþega segir
hann að sér hafi liðið eins og
landinu eftir veðurhaminn á dög-
unum. „Veðrið lamdi landið á 70
til 80 kílómetra hraða og lamdi
lífið úr því í smástund. Mér líður
þannig og er tómur að innan. Það
er auðvitað djöfullegt að lenda í
því að fólk ráðist á mann með svo
miklu offorsi. Það hefur eðlilega
áhrif á mann, maður er bara mann-
legur. Verst er það auðvitað fyrir
fjölskylduna, eiginkonu, börn og
aldraðan föður og bræður. Það sem
tekur mig þyngst er að fjölskyldan
sé bogin yfir þessu. Í þinginu eru
þingmenn að skiptast á skoðunum
allan daginn. Það er heilbrigt að
vera ekki öll með sömu lífsskoðun.
Mér finnst að sú umræða i þinginu
sé mjög heiðarleg, nánast undan-
tekningarlaust. Úti í samfélaginu
er hins vegar leyfilegt að drulla yfir
menn. Ekki fyrir hvað þeir segja,
heldur fyrir það hvað þeir standa
fyrir og hvaðan þeir eru. Menn
grafa upp alls konar skítalykt sem
enginn fann lengur. Það auðvitað
tekur á. “
Ásmundur kveðst halda neistanum
og kraftinum í þingstörfunum á
meðan hann telji sig vera að gera
sitt besta. „Þessir dagar hafa verið
helvíti þungir en sólin kemur upp
á mánudaginn og þá maður mætir
eldsprækur og heldur sínu striki.
Þetta atvik segir mér að það mikil-
vægasta í lífinu sé að segja alltaf
sannleikann því þá þarf maður ekki
að muna hvað maður sagði. Maður
þarf bara að standa við eigin sann-
færingu. Alveg sama hvað á dynur,
ef þú gerir það ertu sáttur í þínu
hjarta. Mönnum verða á mistök og
ég er ekki óskeikull en mér finnst
líka gott að viðurkenna þegar ég
geri mistök. Og ég ætla að bæta
fyrir það ef ég hef gert mistök. Ég
er kannski ekkert að segja að mitt
atkvæði hefði breytt miklu þó ég
hefði sagt eitthvað annað í þessari
atkvæðagreiðslu. Vissulega er það
verkefnið að bæta kjör þessa fólks.
Það er engin spurning.“
pósturu pket@vf.is
„Ég brást
mínu fólki“
Gleðilega hátíð
og verðum í stuði á nýju ári
Ásmundur
ræddi við Pál
Ketilsson,
ritstjóra-
Víkurfrétta