Víkurfréttir - 17.12.2015, Page 59
59VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagur 17. desember 2015
Stærstu styrktaraðilar jóladaga eru:
OPNUNARTÍMI VERSLANA
FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER KL. 10:00-22:00
FÖSTUDAGUR 18. DESEMBER KL. 10:00-22:00
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER KL. 10:00-22:00
SUNNUDAGUR 20. DESEMBER KL. 13:00-22:00
MÁNUDAGUR 21. DESEMBER KL. 10:00-22:00
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER KL. 10:00-22:00
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER KL. 10:00-23:00
FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER KL. 10:00-12:00JÓLASVEINAR
SPRELLA UM BÆINN
Föstudaginn 18. des. kl. 15.00-17.00
Laugardaginn 19. des. kl. 15.00-17.00
Þriðjudaginn 22. des. kl. 15.00-17.00
Miðvikudaginn 23. des. kl. 15.00-17.00
og kl. 20:00 - 23:00
VERSLUM HEIMA!
-HAGUR Í HEIMABYGGÐ
- jólin mín
Jólahefðir hjá þér?
Ég er ekki beint vanaföst mann-
eskja en það er sumt sem ég hrein-
lega get ekki sleppt að gera á jól-
unum. Ég þarf t.d. alltaf að horfa á
Breakfast at Tiffany‘s á aðfangadegi
og borða Mars kökurnar hennar
mömmu á meðan. Síðan er eitt sem
fjölskyldan hefur alltaf gert frá því
að ég man eftir mér en það er að við
vöknum eldsnemma á jóladag og
kíkjum í sokkinn okkar þar semvið
fáum að sjálfsögðu líka frá banda-
ríska jólasveininum.
Ertu dugleg í eldhúsinu
yfir hátíðarnar?
Ég er mjög dugleg að borða í eld-
húsinu yfir hátíðarnar. Telst það
með?
Hvar kaupir þú jólagjafirnar?
Það fer eiginlega eftir ýmsu, ég get
ekki sagt að ég sé með einhverja
ákveðna staði þar sem ég kaupi
alltaf jólagjafirnar.
Gefur þú mikið í jólagjöf?
Í allri hreinskilni sagt þá þarf ég al-
veg að fara að bæta jólagjafakaupin
mín. Þetta er orðið það slæmt að ef
að mér tekst að gefa mömmu jóla-
gjöf þá er ég sátt. Ég verð vonandi
orðin betri í þessu eftir nokkur ár,
en örugglega ekki samt.
Hver er besta jólamyndin?
Ég verð eiginlega að segja Die
Hard. Ég elska samt líka Grinch því
hann er krúttlegur og grænn.
Hvaða lag kemur þér í jólaskap?
Besta jólalag allra tíma er án efa
Baby, It‘s Cold Outside með Dean
Martin og Martina McBride. Það
er algörlega ómögulegt að hlusta á
þetta lag án þess að komast í jóla-
gírinn.
Hvernig er dæmigerður
aðfangadagur hjá þér?
Ég leyfi mér oftast að sofa smá fram
eftir og síðan förum við fjölskyldan
til ömmu í matarboð. Eftir það
förum við oftast að skutla pökk-
unum á rétta staði ef það er eftir
(og það er oftast) og síðan horfi ég
á Breakfast at Tiffany‘s með Mars
kökurnar í rólegheitunum á meðan
restin af fjölskyldunni er sveitt við
að undirbúa jólin. Varstu ekki ann-
ars bara að tala um daginn eða líka
kvöldið hehe?
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Þetta eru fyrstu jólin mín sem
grænmetisæta þannig að ég ætla að
elda mér hnetusteik. Ég er að biðja
til Guðs að það heppnist hjá mér.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ég er það mikill lúði að mig langar
alveg gríðarlega mikið í safapressu,
hef samt ekki hugmynd af hverju
og ég kem mest líklegast aldrei til
með að nota hana.
Eru einhverjar hefðir í kringum
Þorláksmessu hjá þér? (Borðar þú
skötu?)
Nei, í rauninni ekki og þar sem ég
er grænmetisæta þá borða ég ekki
skötu en ég gerði það ekki heldur
áður en ég varð það. Oj, lyktin er
nógu vond.
Er mjög dugleg að borða í
eldhúsinu yfir hátíðarnar
María Rose Bustos er 19 ára Keflavíkurmær. Hún var að útskrifast úr FS og ætlar sér að vera dugleg að
borða yfir hátíðarnar. Die Hard er uppáhalds jólamyndin og hún ætlar sér ekki að borða skötu á Þorláks-
messu.
FRÍTT Á LEIKINN Í BOÐI
FIMMTUDAGINN,
17. DESEMBER KL. 19:15
GRILLAÐIR HAMBORGARAR
FYRIR ALLA HEIMALEIKI
www.vf.is