Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 23

Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 23
LÆKNAblaðið 2017/103 131 saman. Markmið rannsóknarinnar var að skoða reynslu íslenskra heimilislækna sem starfað hafa bæði í Noregi og á Íslandi, nýta reynslu þeirra og þannig stuðla að jákvæðum umbótum í íslenskri heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Efniviður og aðferð Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við 16 íslenska heimilislækna sem störfuðu á Íslandi rannsóknarárin 2009-2010. Fyrsti höfundur tók öll viðtölin. Allir þátttakendur hlutu sérmenntun sína í heimil- islækningum í Noregi. Læknarnir höfðu unnið í Noregi í tvö til tíu ár og starfað í norska fastlæknakerfinu. Viðtölin voru hljóð- rituð og skrifuð niður og greindu rannsakendur niðurstöðurnar í sameiningu með aðferðafræði Vancouver-skólans í fyrirbærafræði (tafla II) sem byggir á því að sérhver manneskja upplifi veröldina á sinn einstaka hátt og sýn hennar og viðhorf mótist af reynslu og hvernig hún síðan vinnur úr reynslu sinni. Þetta gerir það að verkum að aðferðafræðin er talin henta vel til að auka skilning á mannlegum fyrirbærum og bæta velferðarþjónustu.28 Hvert við- tal tók um 45-65 mínútur og innihélt margvíslegar spurningar er vörðuðu persónulega reynslu, skoðanir og athuganir læknanna varðandi þann mun sem er á heilbrigðiskerfum landanna tveggja. Rannsóknin var samþykkt af vísindasiðanefnd (VSNb2008080001) og tilkynnt til Persónuverndar (S3998/2008). Niðurstöður Læknarnir ræddu kosti opinbers reksturs, einkarekins og bland- aðs kerfis. Kostir norska heilbrigðiskerfisins, að mati þátttakenda, er fyrst og fremst að þar hafa allir landsmenn sinn heimilislækni og þannig næst góð yfirsýn yfir heilsuvanda fólks. Í Noregi er heim- ilislæknirinn hliðvörður fyrir sérhæfða læknisþjónustu og það er góð upplýsingagjöf milli þjónustustiga sem hindrar tvíverknað í læknisþjónustunni. Samanburðurinn leiddi jafnframt áhugaverðan mun í ljós, bæði frá sjónarhóli samfélagsins (tafla III) og sjúkling- anna (tafla IV), svo sem meiri skilvirkni læknaþjónustu í Noregi en á Íslandi. Það sem einkum einkennir íslenska heilbrigðiskerfið utan sjúkrahúsa er mikið streymi sjúklinga til sérgreinalækna án tilvís- ana frá heimilislæknum, ófullkomið skráningakerfi landsmanna og mikið álag á vaktþjónustur. Vilji þátttakenda til breytinga í ljósi reynslunnar af starfi í löndunum tveimur er útlistaður í töflu V. Greining viðtalanna á áherslum þátttakenda af reynslu þeirra af störfum í löndunum tveimur leiddi jafnframt fjóra meginþætti í ljós: 1) áherslu læknanna á kosti blandaðs kerfis opinbers reksturs og einkarekins; 2) samvinnu lækna og annarra heilbrigðisstétta; 3) skil á milli fyrstu og annarrar gráðu heilbrigðisþjónustu og 4) mik- ið álag á vaktþjónustu heimilislækna og bráðamóttökur sjúkrahúsa á Íslandi. 1) Blandað kerfi heimilislækninga Allir þátttakendurnir undirstrikuðu kosti þess að byggja á mismunandi launagreiðslufyrirkomulagi til heimilislækna og blönduðu rekstrarskipulagi í heimilislækningum: ,,ég held að fyrir heildina væri betra að geta valið á milli … nú eru líka læknarnir misjafnir, það getur vel verið að það henti einum lækni mjög vel að vera í, eigum við að segja, afkastahvetjandi kerfi en svo er ekki víst að það henti í Hlíðahverfi í Reykjavík þar sem allir sjúklingarnir eru gamlir og þú getur hreinlega ekki tekið jafn stuttan tíma per haus.“ R A N N S Ó K N Tafla II. Tólf rannsóknarþrep Vancouver-skólans og hvernig þeim var fylgt í þessari rannsókn. Þrep í rannsóknarferlinu Það sem gert var í þessari rannsókn Þrep 1. Val á samræðufélögum (úrtakið - sampling). Allir heimilislæknar á Íslandi sem einnig höfðu starfað í Noregi á síðustu 10 árum, samtals 16 læknar (Total sample). Þrep 2. Undirbúningur hugans (áður en samræður hefjast - silent reflection). Fyrirframgerðar hugmyndir voru ígrundaðar og settar meðvitað til hliðar. Þrep 3. Þátttaka í samræðum (gagnasöfnun - data collection). Eitt viðtal við hvern þátttakanda, samtals 16 viðtöl. Þrep 4. Skerpt vitund varðandi hugmyndir og hugtök (beginning data-analysis). Hugmyndum komið í orð. Unnið var samhliða að gagnasöfnun og gagnagreiningu. Þrep 5. Þemagreining (kóðun - coding). Leitast var stöðugt við að svara spurningunni: Hver er kjarninn í því sem þessi þátttakandi er að segja? Greind voru bæði megin- og undirþemu. Þrep 6. Að smíða greiningarlíkan fyrir hvern þátttakanda (construction of individual analytic frameworks). Meginþemun í sögu hvers þátttakanda voru dregin fram og þau mikilvægustu sett fram í greiningarlíkani fyrir hvern og einn. Þrep 7. Staðfesting á hverju greiningarlíkani með viðkomandi þátttakanda (individual verification). Staðfestingar var leitað hjá fjórum þátttakendum, hjá þremur símleiðis og fundað með einum. Þrep 8. Heildargreiningarlíkan er smíðað úr öllum einstaklings- greiningarlíkönunum (final analytic framework constructed). Öll einstaklingsgreiningarlíkönin voru borin saman innbyrðis og smíðað heildargreiningarlíkan. Þrep 9. Heildargreiningarlíkanið borið saman við rannsóknargögnin (rituðu viðtölin) (comparison of the final analytic framework with the research data). Til að tryggja þetta voru öll viðtölin lesin yfir aftur og borin saman við heildargreiningarlíkanið. Þrep 10. Meginþema sett fram sem lýsir fyrirbærinu (niðurstöðunum) í hnotskurn (construction of the study‘s main theme). Heimilislækningar á Íslandi og í Noregi: Reynsla lækna af ólíku fyrirkomulagi heilbrigðisþjónustu í löndunum tveimur. Þrep 11. Staðfesting á heildargreiningarlíkani og meginþema með einhverjum þátttakendum (final verification). Staðfestingar var leitað hjá einum þátttakanda sem gaf gagnlegar ábendingar. Þrep 12. Niðurstöður rannsóknarinnar skrifaðar upp þannig að raddir allra heyrist (multivoiced reconstruction). Vitnað var beint í þátttakendur til að auka trúverðugleika rannsóknarinnar og sýna að niðurstöður byggja á orðum þátttakenda.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.