Læknablaðið - 01.03.2017, Blaðsíða 33
við Íslandsbanka réði betur en flest önnur við að taka á svona
vanda. En hvað um fjársvelt ríkisfyrirtæki sem hafa neyðst til
að halda viðhaldi í lágmarki um árabil? Má nokkuð minnast á
viðbyggingu við BUGL í þessu samhengi? Og hvað um smærri
fyrirtæki, svo ekki sé talað um eigendur og leigjendur íbúða þar
sem raki og mygla nema land? Þar er sjaldnast hægt að seilast í
digra sjóði til að fjármagna endurbætur.
Ýmsir sjúkdómar tengjast myglu
Ofnæmi og astmi tengt myglu er vel rannsakað. Þar er ljóst að
bæði eru ofnæmi og astmi algengari, auk þess að vera erfiðari
viðureignar ef einstaklingur dvelur í húsnæði þar sem er raki
og mygla. Börn sem dvelja í umhverfi þar sem er mygla á fyrsta
aldurári eru líklegri til að mynda með sér bæði ofnæmi og astma
síðar á lífsleiðinni. Mikilvægt er að greina ofnæmi og astma með
húðprófum, blóðrannsóknum og öndunarmælingum auk þess
að taka góða sjúkrasögu. Síðan er ráðlagt að forðast húsnæði sem
gæti verið heilsuspillandi og valdið þessum einkennum. Dvöl í
mygluhúsnæði getur líka valdið því að einstaklingurinn svari
síður meðferð, til dæmis með innúðasterum. Astmi og ofnæmi
sem tengist myglu er meðhöndlað með hefðbundinni meðferð:
innúðasterum, berkjuvíkkandi lyfjum og andhistamínum eftir
alvarleika sjúkdómsins. Mikilvægast er að sjúklingurinn dvelji
ekki í húsnæði þar sem grunur er um rakaskemmd eða myglu.
Varðandi önnur einkenni sem tengd hafa verið myglu og nefnd
eru CIRS (Chronic inflammatory response syndrome) eru rann-
sóknir enn skammt á veg komnar, hvað þá meðferðarúrræði.
Að sögn Unnar Steinu er í raun ekki til önnur meðferð við
þessum einkennum en sú að ganga út og forðast húsið sem veld-
ur þeim. Rannsóknir hafa verið gerðar á lyfjum við einkennun-
um en þær eru ekki komnar nógu langt til þess að hægt sé að slá
neinu föstu. Eitthvað hefur verið reynt að gefa lyf sem nefnist
Questran og er notað til lækkunar á blóðfitu. Virka efnið í því er
nefnt cholestyramín. En eins og áður segir er þessi verkun lyfs-
ins ekki fullrannsökuð og því óljóst hvort það geti orðið einhver
lausn.
Byggja við eða byggja nýtt?
Á meðan leitin að nýrri meðferð og hugsanlega lyfjum við
einkennum sem raki og mygla geta valdið hjá fólki stendur
yfir getum við velt fyrir okkur þeirri staðreynd að stór hluti
heilbrigðiskerfisins glímir við þennan vanda og þeir sem halda
um pyngju hins opinbera hafa ekki verið sérlega örlátir á fé til
lausnar hans. Vitaskuld kostar það mikið fé að gera upp hús-
næði sem orðið hefur fyrir rakaskemmdum og myglu. Þá vaknar
spurningin hvort ekki sé viturlegra og jafnvel ódýrara að spýta
í lófana við að byggja nýjan spítala og jafnvel önnur mannvirki
sem nútímaleg heilbrigðisþjónusta þarf á að halda til að standa
undir nafni og þjóna sínum tilgangi.
Það má alveg taka undir með Kristínu Sigurðardóttur sem
sagði á fundi með verkfræðingum að henni fyndist óásættanlegt
að veikasta fólkinu í landinu og þeim sem eru að sinna því sé
boðið upp á þær aðstæður sem ríkja á Landspítalanum. Verk-
fræðingarnir sýndu því fullan skilning að þeir þyrftu að byggja
betri hús og sinna viðhaldi þeirra. Það væri framtíðarlausnin.