Læknablaðið - 01.03.2017, Page 50
158 LÆKNAblaðið 2017/103
Tíðni
munnþurrks
sambærileg við
lyfleysu1,2
Er munnþurrkur umkvörtunarefni
sjúklinga með ofvirka þvagblöðru?
Fyrsti ß3-örvinn við ofvirkri
þvagblöðru1,2
Hefur áhrif á öll aðaleinkenni
ofvirkrar þvagblöðru1,2
Tíðni munnþurrks sambærileg
við lyfleysu1,2
Opnaðu umræðu um
ofvirka þvagblöðru við
þína sjúklinga
BET-165760-IC
09.2016
Heimildir: 1. Khullar et al. European Urology 63;(2013):283–295. 2. Nitti et al. J Urol 2013;189:1388–1395
Orlofsjóður Læknafélags Íslands
Seint á áttunda áratug síðustu aldar
var um það samið að atvinnurekendur
greiddu ákveðið hlutfall af launum laun-
þega í orlofssjóð viðkomandi stéttarfélags.
Vinnuveitandi greiðir 0,25% af fullum
launum þeirra lækna sem kjarasamn-
ingur milli fjármálaráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs og St. Franciskusspítala annars
vegar og Læknafélags Íslands hins vegar
tekur til í Orlofssjóð lækna (OSL). Þetta
þýðir að greiðsla til OSL er ekki dregin
af launum lækna. Rekstur OSL verður
sífellt umfangsmeiri eftir því sem eignum
fjölgar. Núverandi stjórn tók við skömmu
fyrir hrun 2008. Fyrri stjórn hafði leigt
íbúðir erlendis yfir sumarið, í Strasbourg,
Barcelona og Alicante, og var með heils-
ársleigu í Kaupmannahöfn. Þessir kostir
urðu óheyrilega dýrir við hrunið og fall
krónunnar og sjálfhætt með slíkt. Stjórn-
in hefur alla tíð einbeitt sér að öflugri
uppbyggingu innanlands og farið þar
blandaða leið eignar- og leiguíbúða/húsa.
Teljum við að með innanlandsáherslu sé
fé sjóðsins best varið og flestir njóti góðs
af. Fyrir hrun voru umsóknir um sumar-
valkosti um 350 en árin eftir tvöfaldaðist
fjöldi umsókna og erfitt reyndist að upp-
fylla þá þörf sem skapaðist.
OSL á eignir víða um land og hefur
stjórnin haft að leiðarljósi að eignir sem
sjóðurinn kaupir séu með góðu aðgengi
fyrir aðila með skerta hreyfifærni. OSL
á blokkaríbúð í Ljósheimum og nýjasti
sumarbústaður sjóðsins er í Svignaskarði,
tekinn í notkun 2015. Einn bústaður er í
Húsafelli og tveir við Hreðavatn. Á Ak-
ureyri á sjóðurinn íbúð á jarðhæð í keðju-
húsi í Skálatúni og á dögunum voru fest
kaup á annarri nýlegri íbúð þar, á jarðhæð
í fjórbýlishúsi í Hólmatúni sem fer í leigu
á næstu vikum. Á Kirkjubæjarklaustri
á OSL gott einbýlishús á einni hæð. Í
Brekkuskógi eru þrír bústaðir sjóðsins,
byggðir 2007, 2008 og 2012, og í Vaðnesi
eldri vinalegur bústaður. Samtals eru
þetta 12 eignir.
Í gegnum tíðina hefur páska- og
sumarúthlutun verið langvinsælust og á
sumrin höfum við náð að bæta við eignar-
kostina nokkrum leigukostum. Í sumar
verður sjóðurinn með bústað á leigu í
Svarfaðardal, tvo bústaði á Egilsstöðum,
íbúð í Vestmannaeyjum og hús á Suður-
eyri. Alls verða því 17 valkostir í boði í
sumar.
Úthlutunarkerfi OSL byggist á
punktasöfnun. Fjöldi punkta ræður for-
gangi að sumri og um páska. Félagsmenn
fá 12 punkta fyrir útskriftarárið og síðan
12 punkta á ári. Ekki eru veittir punktar
eftir 70 ára aldur nema menn séu í fullu
starfi og greiði í Orlofssjóð. Á því ári sem
félagar ná 70 ára aldri fá þeir 70 punkta.
Punktafrádráttur er eingöngu að sumri og
um páska og er hann 36 punktar (þrjú ár)
fyrir hverja úthlutun. Utan sumartímabils
og páska er aðgengi allra sjóðfélaga jafnt
og enginn punktafrádráttur.
Bókunarvefurinn Frímann var tekinn
í notkun árið 2014 og samhliða var út-
gáfu Orlofsbæklings hætt. Vefurinn gerir
líka kleift að setja inn nýja valkostir með
skemmri fyrirvara en áður.
Umgengni um húsin er yfirleitt til
fyrirmyndar, en á því er þó stundum mis-
brestur. Umsjónarmaður lítur yfir húsið
eftir að gestir fara úr húsi. Gestir þrífa
Málefni Orlofssjóðs lækna
Jörundur
Kristinsson
heilsugæslulæknir
í Hafnarfirði
formaður Orlofssjóðs lækna
jorundur.kristinsson
@heilsugaeslan.is
• Klaustur
Akureyri ••
Svarfaðardalur •
••• Brekkuskógur
Vestmannaeyjar •
Egilstaðir ••
•• Hreðavatn
Svignaskarð •
• Húsafell
Orlofskostir Læknafélags Íslands 2017
Suðureyri •
• Vaðnes
Reykjavík •
Nýjasta viðbótin
hjá Orlofssjóði er
þriggja herbergja
íbúð á Akureyri.
sjálfir og þess er vænst að þeir skilji við
húsið eins og þeir myndu vilja taka við
því. Ef eitthvað vantar í hús, skemmist
eða gengur úr sér er mikilvægt að koma
þeim upplýsingum til umsjónarmanns eða
á skrifstofu LÍ. Framleiga húsa/íbúða er
alfarið bönnuð.
OSL dafnar og vex, eignunum fjölgar
og ekki sér fyrir endann þar á. Markmiðið
er að fá góða nýtingu helst allt árið á þeim
húsum sem við eigum en fylla upp í á
sumrin með valkostum á öðrum svæðum.
Ég vil í lokin minna á að síðasti dagur
til að sækja um páskaúthlutun 2017 er
6. mars og fyrir sumarúthlutun 11. apríl.